Valsblaðið - 01.05.1995, Qupperneq 26

Valsblaðið - 01.05.1995, Qupperneq 26
Hildur Guðjónsdóttir 3. flokki í fótbolta „Því miður komust við ekki í úrslit í Islandsmótinu í 4. flokki en við sigruðum á Gull- & Silfurmótinu. Á Pæjumótinu gekk okkur ekki vel. Já, ég er tiltölulega sátt við mína fram- mistöðu í sumar nema í síðasta leiknum í Islandsmótinu því þá klúðraði ég töluvert. Eg leik á miðjun- ni og líkar það ágætlega. Við erum líklega ijórar eða fímm sem göngum upp í 3. flokk en samt erum við ekki svo margar sem erum að æfa núna. Sumar stelpur er að æfa einhverjar vetraríþróttir og bætast því í hópinn í vor. Það sem háði okkur dálítið í sumar var að okkur vantaði meiri breidd. Okkur vantar sterkari kjama til að mynda öfíugt lið. Annars er Ragna Lóa Stefánsdóttir, landsliðskona og leikmaður Stjömunnar í fyrrasumar, tekin við þjálfun í 3. flokki og mér líst mjög vel á hana. Hún ætlar að leika með meistaraflokki Vals í sumar og það er mjög gott að fá hana yfir." Hildur æfir þrisvar í viku með flokknum en segist alltaf vera á leið með að byrja að æfa aukalega. „Það gengur erfiðlega að koma sér af stað." Hún er í 10. bekk í Laugalækjaskóla og byrjaði í Val þegar knattspymu- áhuginn kviknaði íyrir alvöru. „Pabbi spilaði með Val í yngri flokkunum og mér leist strax mjög vel á starfið í deildinni. Annars finnst mér tíminn, sem við megum vera á grasinu, allt of stuttur. Það er alltaf verið að spara það og þegar rignir eða eitthvað erum við sendar á mölina. Eg held að grasið þoli miklu meira en margir halda. Það er fremur fult að þurfa að nota mölina þegar grasið er við hliðina." Hildur hefur aðeins velt því fyrir sér hvaða hana langar að leggja fyrir sig í framtíðinni. „Eg er búin að vera að spá í rosalega margt án þess að komast að niðurstöðu. Mig langar að verða læknir en ég held að það sé svo erfitt nám." Hildur spilar á selló og leikur með Hildur Guðjónsdóttir. strengjasveit skólans. „Það er mjög skemmtilegt en við mættum fá fleiri verkefni. Ég æfi mig töluvert heima en þarf að sækja tíma- í tónfræði." Berglind Iris Hansdóttir 4. flokki í handbolta Berglind íris Hansdóttir. „Okkur hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel í 4. flokki í vetur," segir Berglind Iris. „I fyrstu túmer- ingunni vorum við í 1. deild, töpuðum öllum leikjunum og féllum. I næstu túmeringu unnum við okkur aftur upp í 1. deild og vonandi tekst okkur betur upp í þriðju túmeringunni. Annars spila ég líka með 3. flokki í fótbolta en okkur gekk ekkert sérstaklega vel í sumar. Við komust ekki í úrslit á Islandsmótinu en ég meiddist á fæti í lok sumarsins og var heilan mánuð í gifsi. Ég hef ekki gert það upp við mig hvora íþróttgreina ég ætla að velja." Berglind íris segir að hún eigi ekki í mikilli samkeppni um að komast í lið í handboltanum. „Ég er markvörður og sá eini í flokknum. Þegar Dagur Sigurðsson þjálfaði mig fyrir þremur árum setti hann mig í markið en ég vildi reyndar frekar spila úti. Það er því eiginlega Degi að kenna að ég er alltaf á milli stanganna. Ég kann mjög vel við hann sem þjálfara." Berglind hefur töluverða trú á því að sá kjami, sem myndar 4. flokk, eigi framtíð fyrir sér. „Hvað sjálfa mig varðar hef ég ekkert velt framhaldinu fyrir mér. Stefna ekki allir að því að komast í landsliðið? Núna kemst fátt annað að hjá mér en íþróttir því við æfum þrisvar í viku í fótbolta auk handboltaæfinganna. Það eina, sem mætti betur fara hjá Val, er að við fengjum einhvem tímann að æfa í stóra salnum. Við erum alltaf í þeim litla." Berglind hóf að stunda íþróttir þegar vinkona hennar dró hana með sér en Berglind býr reyndar í Víkingshverfinu. „Pabbi var í Val og er auðvitað Valsari þannig að það er ágætt að allir styðji sama félagið." 26

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.