Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 23

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 23
E LSA S IGR ÍÐUR JÓNSDÓTT I R 23 væri svo léleg hérna og hún þyrfti þess vegna að fara inn í Háskóla Íslands. Það var aldrei mín skoðun, heldur trúi ég því að báðir skólar hagnist á sameiningu, ekki síður Háskóli Íslands. Hver telur þú að verði áhrif Kennaraháskólans á Háskóla Íslands? Ég tel að þau eigi eftir að verða mikil og jákvæð. Auðvitað hafa miklar breytingar einnig verið að gerast í Háskóla Íslands, hann hefur þróast frá því að vera skóli með nokkur hundruð nemendum í það að vera tíu þúsund manna skóli. Samhliða er skól- inn einnig orðinn hluti af þessu almenningsmenntunarkerfi. Ég sagði á fundi um dag- inn í Háskóla Íslands að nú væri hann að taka við því fjöreggi sem Kennaraháskólinn hefði varðveitt í 100 ár, það er að segja kennaramenntuninni. Ég tel að við komum sterk þarna inn, við eyðileggjumst ekki eða þurrkumst út, við förum inn sem ein heild og verðum uppistaðan í menntavísindasviði skólans. Mér hefur fundist að í samein- ingarferlinu hafi Háskóli Íslands mætt okkur á jafningjagrundvelli. Mér sýnist jafnvel að í Háskóla Íslands hafi orðið ákveðin hugarfarsbreyting því að í stefnu þeirra sem samþykkt var 2006 er framúrskarandi kennsla einn af áherslupunktunum, og það er nýbreytni. Ég man eftir því að í fyrstu var gjarnan talað um að það þyrfti ekki að sameina skólana, það væri nóg að vinna saman. Staðreyndin er sú að það var margoft reynt. við sátum í samstarfsnefnd á hinum og þessum sviðum. Einu sinni var ég formaður nefndar sem skilaði skýrslu um hvernig Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og við gætum unnið saman. En það varð ekki neitt úr neinu nema í þeim tilvikum þegar einstaklingar náðu saman á persónulegum grundvelli. Núna verðum við í einni stofnun og við verðum að setjast við borðið og ræða málin, takast á um þau og finna lausnir. Þetta er eilífðarbarátta og í raun eðlilegt að það sé togstreita um hvað eigi að kenna, hvernig eigi að kenna og hverjum eigi að kenna. Ef togstreita er ekki fyrir hendi í skóla- og menntastarfi er eitthvað að. Þú minntist á ímynd kennara og Kennaraháskólans í samfélaginu og að hún hafi ekki verið nógu sterk og örugg? Þegar ég hóf hér störf fyrir 25 árum og tók leigubíl í skólann vissu fæstir leigubíl- stjórarnir hvar Kennaraháskólinn var. Þetta hefur gjörbreyst og ég held að fólki finnist að margt hafi verið að gerast í Kennaraháskólanum á síðustu tíu árum. Reyndar er það svo að fjölmiðlar gleyma oft ennþá að Kennaraháskólinn er háskóli, háskólarnir hafa verið taldir Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík, hinir vilja gleymast. Það skiptir líka máli að okkur hefur tekist að reka skólann þannig að eftir því er tekið, við höfum aflað okkur trausts í ráðuneytum og það er litið á Kennara- háskólann sem vel rekna stofnun. Traust skiptir höfuðmáli og það getum við óhikað þakkað Guðmundi Ragnarssyni, framkvæmdastjóra rekstrar- og fjármálasviðs, sem ég hef átt eindæma gott samstarf við. Eins og við vitum hefur lengi eimt eftir af neikvæðum viðhorfum til kennara. Þeir voru kallaðir seminaristar, sem var skammaryrði og var notað um þá sem vissu lítið um margt, voru með grunna þekkingu. Kennarinn vissi hvað var rétt af því að hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.