Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 58

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 58
58 UMBROT ingar fyrir nemendur mína um hvað þeir teldu einkenna góð og vond samskipti milli kennara og nemenda. Afgerandi var svarið virðing / virðingarleysi. Af átján nem- endum kom hugtakið virðing fyrir í öllum svörum utan einu og í þrettán svörum var nefndur skortur á virðingu eða vanvirðing við gagnstæðri spurningu. önnur hugtök voru einnig ofarlega á blaði þótt þau kæmu ekki fyrir í sama mæli og virðingin. Það voru hugtök á borð við tillitsemi, sanngirni og málamiðlun og andstæður þeirra, eins og ósanngirni og tillitsleysi. Mig langaði til að taka upp umræðu í bekknum um þessi hugtök, skilning nemenda á þeim og fá jafnvel dæmi. Það vildi svo til að á sama tíma skrifaði ég niður hugleiðingar mínar í þessa veru og sendi ráðgjafanum sem hélt utan um hóp okkar kennaranna sem voru að rannsaka eigið starf. Þar kemur m.a. fram hugleiðing mín um hvernig mér líður með starfendarannsókn mína og hvaða áhrif hún hefur á mig: flestum stundum líður mér vel með rannsóknina en stundum miður. Hún ger- ir það að verkum að ég er afar meðvituð um allt sem ég segi og geri. Ég er í stöðugri sjálfsrannsókn og sjálfsgagnrýni og mér hættir trúlega til að fara offari. Rannsóknin hefur töluverð áhrif á mig og suma daga meira en aðra: Ég á það til að dragnast heim með stöku orð og svipmynd úr skólastofunni. Leggjast síðan til svefns með nemendum mínum og drekka með þeim kaffi í morgunsárið. Ætli nemendur þvælist svona um með kennara í hugskotinu? Þessi „sambúð“ býður þó alls ekki heim neinni vanlíðan, öðru nær. Það er til- finningin um að gera aldrei nógu vel sem vofir yfir. Hún er réttmæt þar sem ég þykist vita að ég get ævinlega gert betur, bætt mig á einhvern hátt. En ég mun aldrei gera nógu vel því ég er alltaf að læra, ég verð aldrei fullnuma. Þess vegna snýst mitt „hugarstríð“ um að sætta mig við að gera eins vel og ég get hverju sinni og læra af mistökum mínum. Eða, þegar öllu er á botninn hvolft, að sætta mig við að vera manneskja (hugleiðing, 12. janúar). Ráðgjafinn stakk þá að mér tillögum um spurningar til að fylgja eftir svörum nem- enda og fá fram skilning þeirra á þessu stóra hugtaki sem virðingin er. Í byrjun febrúar sýndi ég nemendum yfirlit yfir svör þeirra og bað þá í kjölfarið um að svara fleiri spurningum sem lutu að upplifun þeirra á virðingu og virðingarleysi í námi og kennslu. Allt miðaðist þetta við að ég áttaði mig betur á samskiptunum og skildi betur þau óvæntu atvik sem upp komu í skólastofunni. Í huga nemenda felst það í hugtakinu virðing að sýna náunganum kurteisi, hlýða á skoðanir hans, taka mark á þeim og koma fram við hann eins og jafningja. Þessi skil- greining nemenda endurspeglaðist einnig í næstu spurningu, sem vék að því hvernig virðing eða virðingarleysi birtist í kennslunni. Þeim fannst virðingin koma einna helst fram í því að nemandi og kennari hlustuðu hvor á annan og sýndu hvor öðrum til- litsemi. Þá fannst þeim virðingarleysið birtast í því þegar ekki fengist vinnufriður í tímum. Sumir nefndu einnig virðingarleysi á borð við að gera lítið úr öðrum, muna ekki eftir nemendum sínum og jafnvel niðurlægja þá. Nemendur töldu virðingu hafa góð áhrif á námsáhuga sinn og að sama skapi drægi virðingarleysi úr áhuganum. flest svör nemenda voru á þessa lund utan eitt því þar var tekið mun sterkar til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.