Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 50

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 50
50 UMBROT Myndin sýnir vel hvernig McNiff hugsar sér ferli starfendarannsókna. Það sér ekki fyrir endann á síendurteknum spírölum og í ferlinu geta þeir teygt anga sína í ýmsar áttir. ferlið er öðrum þræði eins konar óvissuferð, líkt og lífið sjálft, enda segir McNiff á einum stað að eitt sé víst og það sé óvissan. Spíralarnir breyta þó aldrei lögun sinni, ekki fremur en markvisst ferli rannsóknarinnar sem heldur sér þó svo að viðfangs- efnið, eða -efnin, kunni að þróast og taka breytingum. Þá er afar mikilvægt að gera sér grein fyrir að starfendarannsókn felst ekki síður í þeim aðgerðum sem mistakast en þeim sem vel heppnast. ferlið felur í sér rannsókn- ina og framkvæmdin lærdóminn. Allt ber þetta að sama brunni því að langtímamark- mið starfendarannsókna er að leggja sitt af mörkum til þess að breyta samfélaginu til hins betra, og sú vinna tekur engan enda (McNiff, 2002). Samskipti fjöldi rannsókna gefur til kynna að gæði samskipta kennara og nemenda haldist í hendur við námsárangur nemenda og félagsþroska og að sama skapi bendir flest til þess að góð samskipti milli kennara og nemenda séu mikilvægur hvati kennarans í starfi (t.d. Lortie, 1975; Hafdís Ingvarsdóttir, 2004; Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2004). Kennararannsóknir sem gerðar hafa verið allt frá 1955 benda til þess að hlýja og eld- móður kennara hafi góð áhrif á námsárangur nemenda. Þá stuðli þessir eiginleikar kennara jafnframt að betri og virkari svörun frá nemendum og jákvæðara andrúms- lofti í skólastofunni (Brophy og Good, 1974). Nýrri rannsóknir gefa svipaðar nið- urstöður, t.d. bendir rannsókn Wentzel (2002) til að kennarar hafi jafnvel frekar áhrif á námsárangur nemenda með samskiptum við þá en með fræðunum. Þá gefur rann- sókn Watson og Ecken (2003) til kynna að traust og umhyggja í samskiptum kenn- ara og nemenda stuðli bæði að aukinni getu nemenda í námi og til að sýna öðrum umhyggju. Watson (2003) hefur unnið með kennurum og menntunarfræðingum að skólaþró- unarrannsóknum sem hafa það að markmiði að byggja upp umhyggjusamt og styrkj- andi námsumhverfi sem hlúir að tilfinningu nemenda fyrir því að þeir tilheyri og tengist skólanum. Þegar Watson hafði fylgst í rúma tvo áratugi með árangri þeirra skóla sem unnu að slíkum skólaþróunarrannsóknum sannfærðist hún um að ákveðin aðferð við aga og bekkjarstjórnun sem hefur verið kölluð tengslakenningin (develop- mental discipline) væri lykillinn að allri velgengni nemenda. Með þessa sannfæringu að leiðarljósi fékk hún grunnskólakennarann Ecken til liðs við sig til þess að sýna fram á hvernig tengslakenningin birtist í verki í skólastofunni. Tengslakenningin er byggð á geðtengslakenningu (attachment theory) og gengur út frá því að ýmsir hegðunar- og námserfiðleikar stafi fyrst og fremst af því að geð- tengslum sé í einhverju ábótavant en tengist ekki eigingjörnum ákvörðunum barns- ins. Þessi aðferð við aga og bekkjarstjórnun byggist á góðum samskiptum milli kenn- ara og nemenda og umhyggjusömu andrúmslofti í skólastofunni. Tengslakenningin er andstæð allri valdbeitingu og í henni felst að kennarar: Skapi hlýleg og styrkjandi tengsl við nemendur sína og þeirra á milli.•
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.