Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 80

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 80
80 FAGLEGT S JÁ LFSTRAUST GRUNNSKÓLAKENNARA skóla hefur aðeins fylgni við einn undirþátt faglegs sjálfstrausts, þ.e. bekkjarstjórnun, og ekki fylgni við neinn undirþátt kulnunar, þannig að skýrar aðgerðaráætlanir vegna hegðunar nemenda og áfalla, góð aðstaða til undirbúningsvinnu og nægileg kennslu- gögn virðast hafa lítil áhrif á faglegt sjálfstraust og kulnun. Þættir í kennarastarfinu hafa fylgni við alla undirþætti faglegs sjálfstrausts, bekkjarstjórnun, kennslu og hvatn- ingu og tvo undirþætti kulnunar, hlutgervingu og starfsárangur. Þeim kennurum sem líkar vel við námsmat og sýna sveigjanleika í starfi virðist því vegna vel hvað varðar faglegt sjálfstraust og kulnun. Þátturinn önnur vinnuskilyrði, sem varðar afstöðu til stærðar bekkja, blöndunar og annarra verkefna en beinnar kennslu, sýnir enga fylgni við faglegt sjálfstraust eða kulnun, og því kemur hann ekki fram í töflunni. Marktæk sambönd faglegs sjálfstrausts við heilsufarsþætti Leiter og Maslach sjást aðeins hvað varðar gildismat og starfssamfélag, en eru engin hvað varðar vinnuálag, umbun, verkstjórn, samskipti og samstöðu hópsins. Í heild sinni hafa þeir því lítil áhrif á faglegt sjálfstraust kennara. Hvatningarþáttur faglegs sjálfstrausts sýnir hvergi fylgni við þessa vinnustaðarþætti. Marktæk sambönd milli undirþátta kulnunar og heilsufarsþátta Leiter og Maslach eru þannig að tilfinningaþrot sýnir marktæka fylgni við sex þeirra, vinnuálag, umbun, starfssamfélag, gildismat, samskipti og samstöðu hópsins. Marktæk fylgni hlutgervingar er einnig við sex þætti, þó ekki við vinnuálag, en verk- stjórn bætist við. Starfsárangur sýnir aðeins marktæka fylgni við gildismat. Í heild hafa heilsufarsþættirnir svokölluðu því veruleg áhrif á kulnun. Mynd 2 – Niðurstöður um orsakasambönd rannsóknarinnar. Mynd 2 sýnir á myndrænan hátt þá þrjá aðalþætti rannsóknarinnar sem sýndu or- sakasambönd sín á milli, þ.e. vinnustaðarþætti, faglegt sjálfstraust og kulnun. fjórða aðalþættinum, sem laut að bakgrunni þátttakenda er sleppt, því undirþættir hans reyndust ekki sýna neina fylgni við hina þrjá, virðist sem sagt ekki hafa nein áhrif á hvernig faglegt sjálfstraust kennara þróast eða hvort þeir verða kulnun að bráð. Þeir vinnustaðarþættir sem hafa áhrif á faglegt sjálfstraust eru eftirfarandi í styrkleikaröð (a): Þættir í kennarastarfinu, fjarlæg skilyrði, hlutverkaskýrleiki, hvatning til kenn- ara, gildismat, faglegur aðbúnaður skólans og starfssamfélag. Þeir vinnustaðarþættir sem hafa áhrif á kulnun eru eftirfarandi í styrkleikaröð (b): fjarlæg skilyrði, gildismat, hlutverkaskýrleiki, hlutverkaárekstur, hvatning til kennara, þættir í kennarastarfinu, umbun, samskipti, samstaða hópsins, starfssamfélag, vinnuálag, verkstjórn. Allir und- irþættir faglegs sjálfstrausts og kulnunar reyndust hafa veruleg áhrif hver á annan (c). Vinnustaðarþættir Hlutverkaskýrleiki/-árekstrar eigin spurningar, heilsufarsþættir Leiter og Maslach a) samband margra þátta c) samband allra þátta b) samband margra þátta Faglegt sjálfstraust (bekkjarstjórnun, kennsla, hvatning) Kulnun (tilfinningaþrot, hlutgerving, starfsárangur)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.