Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 49

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 49
49 JÓNA GUÐBJÖRG TORFADÓTTIR, hAFDÍS INGvARSDÓTTIR megi rekja til Stenhouse (1975). Í tímans rás hafa orðið til ýmis líkön og mismunandi túlkanir á starfendarannsóknum en hér eru hugmyndir ensku fræðikonunnar Jean McNiff einkum hafðar að leiðarljósi. McNiff leggur áherslu á að fólk hugsi um starf- endarannsóknir með ólíku móti og skilgreini þær ekki alltaf á sama hátt. Hún aðhyllist þá tegund starfendarannsókna sem kallast self-study, og þýða má sem sjálfsrýni eða sjálfsskoðun. Hún telur að sjálfsskoðun rannsakandans sé þungamiðja starfendarann- sóknar; hann, sem er í senn rannsakandi og viðfangsefni, er kjarni rannsóknarinnar. Rannsakandinn þarf að skoða hvernig og hvers vegna lífi hans og starfi sé háttað eins og raun ber vitni til þess að hann geti vaxið í lífi sínu og starfi (McNiff og Whitehead, 2002; McNiff, 2008). Ígrundunin er veigamikill þáttur í þessu ferli, að rannsakandinn hugsi gaum- gæfilega um sjálfan sig, líf sitt og starf. Ígrundun er ennfremur lykilhugtak í starf- endarannsóknum. Elliot (1991) segir að til að unnt sé að bæta sig í starfi sé þarft að ígrunda samspil vinnulags og árangurs. Slík ígrundun sé megineinkenni þess sem Schön (1983) hefur kallað ígrundun í starfi (reflective practice) en Elliot sjálfur, og fleiri, starfendarannsókn (action research) (Elliot, 1991). McNiff lítur svo á að rannsóknarferlið og starfið séu eitt, þetta sé samtvinnað; kenn- ing og framkvæmd séu tvær hliðar á sama peningi enda nálgist kennsla það oft að vera starfendarannsókn, einkum ef kennaranum er umhugað um að þróa starfshætti sína með því að læra af reynslunni. McNiff telur að oft sé gjá á milli kenningar, rann- sóknar og framkvæmdar og áréttar að starfendarannsókn sé raunverulegt og lifandi ferli en ekki óhlutbundin orðræða um viðfangsefni fræðimanna. Allir sem vilja geta gert starfendarannsókn með því að hugsa vandlega um eigið starf með skipulagðri sjálfsskoðun, skráningu atburða og gagnasöfnun í félagi við aðra sem eru einnig að vinna starfendarannsókn. Æskilegt er einnig að þeir eigi sér bandamann eða banda- menn (Hafdís Ingvarsdóttir, 2006). Samkvæmt skilgreiningu Hafdísar eru bandamenn samkennarar sem ræða saman um starf sitt af hreinskilni og fá álit hvor eða hver hjá öðrum. Þannig geta þeir fengið nýjar hugmyndir og skipst á skoðunum og eflt með því sjálfsmynd sína og sjálfstraust í starfi. McNiff hefur búið til líkan sem sýnir starfendarannsókn sem spírala. Þar birtist ferli sem í felst að skoða núverandi starfshætti, koma auga á hvað vert sé að bæta, ímynda sér framvindu mála, láta á hana reyna og safna gögnum. Síðan er verklýsingu og fram- kvæmd breytt í ljósi þeirra upplýs- inga sem liggja fyrir og henni haldið áfram. Loks er lagt mat á breytta framkvæmd o.s.frv. þar til fullnægj- andi árangur liggur fyrir. McNiff sér þetta ferli þó ekki endilega sem sam- fellt eða röklegt, það getur hæglega leitt rannsakandann út á ófyrirséðar brautir (McNiff og Whitehead, 2002; McNiff, 2008): 1 Myndin af líkaninu er sótt á heimasíðu McNiff (McNiff, 2008). Mynd 1

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.