Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 56

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 56
56 UMBROT nokkurn veginn skipulagt hvernig ég ætlaði að bera það á borð fyrir nemendur, sem og þátttöku þeirra í því. Hins vegar gat ég illa séð fyrir samskiptin við nemendurna, nema þá helst endurtekin orð og æði sem voru farin að verða býsna kunnugleg er á leið veturinn og flestir kennarar kannast við, á borð við beiðni um að fá að fara fyrr út úr tíma, kvartanir yfir miklum heimalærdómi og fleira í þeim dúr. Ég gerði mér ávallt far um að ræða öll mál sem komu inn á borð til mín og leitaðist við að skýra út fyrir nemendum mínum hvers vegna ég gerði eitt fremur en annað. Það féll þó ekki alltaf í góðan jarðveg. oftast nær líkuðu mér samskiptin við nemendur mína afar vel og þá sérstaklega þegar mér fannst mér takast að virkja þá vel í tímum. Snemma í október átti ég slíka „góða stund“ með nemendum mínum sem hefur yljað mér lengi síðan: Ég fór nánast fljúgandi út úr kennslustofunni í dag. Krakkarnir voru að vinna hópverkefni og sumir fljótari en aðrir, eins og gengur. Ég dreifði krossgátum en það var kominn föstudagsfílíngur í hópinn, a.m.k. suma hverja, og ákvað ég að virkja þennan kraft. Ég benti nemendum á að þeir gætu samið texta og lag sem tengdist Njálu. Það var eins og við manninn mælt að kröftugu nemendurn- ir hófu að semja. Þegar munnlegum flutningi hópverkefna var lokið voru tveir hópar með aukaframlag, býsna skemmtilegt! Þau höfðu greinilega öll gaman af (dagbókarfærsla, 7. október). Skömmu síðar fékk ég bandamann minn inn í kennslustund til mín til að fylgjast sér- staklega með samskiptum mínum við nemendur. Hann sat fyrri kennslustundina af tveimur samfelldum og að þeim loknum greindi hann mér frá upplifun sinni í viðtali sem ég átti við hann. Hann sagði ýmislegt sem bæði gladdi mig og hvatti mig áfram, og mér finnst gott að rifja upp, m.a.: Mér fannst þau bara jákvæð líka, bara, og prúð og stillt. og svo sagði einhver: „kona“ og þá var sagt: „kona, hvað, eitthvað kona? Þetta er Jóna“. Þá kom upp strax eitthvað svona „passa upp á“, af því að þetta gæti virkað smá svona stuð- andi. Að ávarpa kennarann ekki með nafni og svona. Muna ekki nafnið og það er alltaf svolítið leiðinlegt (viðtal, 18. október). Auðvitað fann bandamaður minn einnig að ýmsu í þessari kennslustund en þó fáu sem varðaði beinlínis samskipti mín við nemendurna. Ég var því að vonum kát og get ekki stillt mig um að gefa honum aftur orðið: Mér finnst ég finna bara á þessari stuttu heimsókn að þú ert alveg í góðu sam- bandi við þennan bekk. Þeim líður vel þarna og þetta einhvern veginn bara svona rúllar alveg. Þannig upplifi ég þetta. og þú virkar mjög afslöppuð. Þó að þér hafi fundist þú stífna þá virkarðu mjög afslöppuð og svona. og talaðir bara í þínum venjulega tóni og varst ekkert að setja þig í stellingar (viðtal, 18. október). Ég trúi því einnig að samskiptum mínum við nemendurna hafi verið háttað á þann veg sem bandamaður minn upplifði í þessari heimsókn sinni. Sjálf var ég sömuleiðis orðin mun afslappaðri og farin að geta notið betur bæði kennslunnar og samvistanna

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.