Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 95

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 95
95 LE IÐBE IN INGAR Leiðbeiningar fyrir greinahöfunda Tímaritið Uppeldi og menntun kemur út tvisvar á ári. Greinar til birtingar í vorhefti tímaritsins þurfa að berast fyrir 1. október og greinar til birtingar í haustheftinu fyrir 1. maí. Allar greinar skal senda til ritstjóra á tölvutæku formi. Ritnefnd tekur afstöðu til þess hvort grein fæst birt í tímaritinu. við ákvörðun um birtingu greina er í fyrsta lagi tekið mið af þeirri stefnu að um sé að ræða fræðilegar og/eða rannsóknartengdar greinar, í öðru lagi að þær eigi erindi til þeirra sem sinna uppeldis- og menntamálum. Í þriðja lagi verður gætt að heildasvip tímaritsins hverju sinni. Meginreglan er sú að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undan tekning er gerð frá þessari reglu ef ritnefnd telur greinar sem birst hafa í viðurkennd um er- lendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birtingar á íslensku. Erlendum fræðimönn- um er heimilt að birta efni í tímaritinu á ensku. fyrsti höfundur greinar er jafnframt ábyrgðarmaður. Ef ritnefnd metur greinina svo að hún eigi erindi í tímaritið og uppfylli kröfur um efni og framsetningu er hún send til a.m.k. tveggja aðila til ritrýningar. Grein sem samþykkt er með fyrirvara um að brugðist sé við faglegum ábendingum er send til greinarhöfundar til lagfæringar í samræmi við ábendingar ritrýna og ritstjórnar. Höf- undur sendir greinina síðan aftur til ritnefndar með greinargerð um þær breytingar sem hann hefur gert á greininni. Framsetning efnis Miðað er við að framsetning efnis sé í samræmi við venjur sem gilda í virtum erlendum tímaritum um uppeldis- og menntamál. Miðað er við APA kerfið við framsetningu efnis, þetta á m.a. við um gerð heimildaskrár, tilvísanir í texta, töflur og myndir, kafla- fyrirsagnir og lengd beinna tilvitnana. Reglur um framsetningu má finna t.d. í Hand- bók Sálfræðiritsins (1995) eftir Einar Guðmundsson, Gagnfræðakveri handa háskólanem- um (2002) eftir friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson og Publication Manual of the American Psychological Association 5. útgáfa (2001). vitna skal til skírnar- og föðurnafns íslensks höfundar en ekki föðurnafns eingöngu eins og gildir um erlenda höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heimildaskrá samkvæmt skírnarnafni þeirra. Ætlast er til að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu þýddar á íslensku. Handrit skulu vera með 12 pt. letri (Times New Roman) og línubili 1,5. Einfalt orðabil skal vera á eftir punkti. Notið íslenskar gæsalappir. Greinar skulu vera vel yfirfarnar með tilliti til málfars og framsetningar. Lengd handrita skal að jafnaði vera 15–25 blaðsíður. Á forsíðu skal koma fram heiti greinar og nafn höfundar ásamt aðsetri (stofnun/fyrirtæki). Á eftir forsíðu á að vera u.þ.b.100–150 orða útdráttur á íslensku og annar á ensku. Á þriðju síðu handrits eða við upphaf greinarinnar sjálfrar skal heiti greinarinnar einnig koma fram, án nafns

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.