Fréttablaðið - 16.01.2010, Síða 24
24 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Kristinn H. Gunnars-
son skrifar um Ice -
save
Forset i Í s l a nd s hefur vísað ti l
þjóðarinnar lögum
um ríkisábyrgð á
Icesave-skuldun-
um. Þjóðaratkvæða-
greiðslan á skilyrðis-
laust að fara fram, annars væri
gengið gegn ákvörðun forset-
ans. Kjósendur gera best í því
að samþykkja lögin og ljúka þar
með þessari langvarandi deilu. Sá
kostur er illskástur og
verður þegar útgjalda-
minnstur þegar upp
verður staðið bæði
fyrir ríkissjóð og ein-
staklinga.
Þjóðaratkvæða-
greiðslan dregur fram
valkostina í stöðunni.
Ef lánasamningurinn
verður samþykktur
er málinu lokið. Engu
síður er samkomu-
lag um að taka samn-
inginn upp síðar ef sýnt verður
fram á bersýnilega ósanngjörn
ákvæði eða óvænta þróun. Ef
hins vegar lánasamningurinn
verður felldur þá er enginn samn-
ingur til og deilan óleyst. Þá er
tvennt í stöðunni. Annars vegar
að neita að greiða nokkuð og bíða
dómsniðurstöðu og hins vegar að
freista samninga enn að nýju.
Verði lögin felld þarf að liggja
fyrir hvert þjóðin vill að fram-
haldið verði, annars er málið í
sjálfheldu. Þeir sem munu beita
sér gegn staðfestingu laganna,
stjórnmálaflokkar og samtök,
þurfa því að skýra afstöðu sína.
Hún er óljós. Einn daginn er sagt
að Íslendingar munu virða skuld-
bindingar sínar, annan daginn
að ekkert beri að greiða, þriðja
daginn að málið eigi að fara fyrir
dómstóla og þann fjórða að það
eigi að semja, en borga minna eða
öðruvísi. Fimmta daginn er lagt
til að þjóðin kjósi og ákveði örlög
sín og þegar svo skal vera þá er
sjötta daginn betra að hætta við
og skipa öðru vísi samninga-
nefnd. Sjöundi dagurinn er svo
hvíldardagur.
Grundvallarspurningin er
hvort beri að greiða erlendu inn-
stæðurnar í Landsbankanum
eða ekki. Ef því er svarað neit-
andi þá er engin von til þess að
almenningur sætti sig við að
borga brúsann. Ef lög og skuld-
bindingar standa ekki til þess þá
eiga Íslendingar ekki að greiða.
Svo einfalt er það. Þegar stjórn-
málamenn segja að ekki beri að
borga, en leggja samt til að það
verði gert, verður uppreisn. Það
vill engin þjóð sætta sig við að
vera kúguð til óréttlætis.
Þennan leik hafa stjórnmála-
flokkarnir leikið. Þeir segja að
útlendingar séu að kúga okkur.
Þannig hefur tekist að beina reiði
almennings vegna bankahrunsins
að útlendingum frá flokkunum
sjálfum og ábyrgð þeirra. En það
skapar vanda þar sem lausnin er
ekki í samræmi við málflutning-
inn. Lausnin er að gangast við
ábyrgðinni og semja um skuldirn-
ar, en málflutningurinn er aðeins
til heimabrúks.
Svarið við grundvallarspurn-
ingunni er já, Íslendingar bera
ábyrgð á Icesave-innstæðunum
í Landsbankanum á sama hátt
og öðrum innstæðum í öllum
íslenskum innlánsstofnunum.
Það er samkvæmt lögum um
innlánstryggingar og Evrópska
efnahagssvæðið, jafnræðisreglu
stjórnarskrár og ákvæðis henn-
ar um bann við mismunun eftir
þjóðerni. Stjórnvöld og Alþingi
hefur nær einróma viðurkennt
ábyrgð ríkisins á 1.400 milljarða
króna innstæðum bankanna, að
fullu og öllu fyrir hvern og einn,
og eru í þungri stöðu fyrir hvaða
dómstól sem er til að hafna allri
ábyrgð á Icesave-innstæðunum.
Það eru 15 mánuðir síðan
íslensk stjórnvöld féllust á að
borga Icesave-innstæðurnar í
Landsbankanum í samkomulagi
við hollensk stjórnvöld. Það eru
14 mánuðir síðan íslensk stjórn-
völd viðurkenndu með Brussel
viðmiðunum að löggjöf um inn-
stæðutryggingar ættu að gilda
hér á landi með sama hætti og
í öðrum ríkjum Evrópska efna-
hagssvæðisins og það eru 13
mánuðir síðan Alþingi staðfesti
það með sérstakri þingsályktun.
Fjórir stjórnmálaflokkar hafa
komið að þessum ákvörðunum
og sýna þar hinn kalda veruleika,
en hafa samt haldið áfram öðrum
málflutningi til heimabrúks. Það
eru fyrst og fremst íslensk stjórn-
völd sem forðast dómstólana og
það eru fyrst og fremst íslensk-
ir hagsmunir að semja um málið
fyrr en seinna.
Samningurinn er umdeilanleg-
ur eins og allt sem gert er og sjálf-
sagt að nýta tækifæri sem kunna
að gefast til þess að gera hann
skárri. En það verður að teljast
viðunandi niðurstaða að greiða
aðeins um helming Icesave-inn-
stæðnanna og fá Breta og Hollend-
inga til þess að taka á sig um 400
milljarða króna, þriðjunginn af
heildarfjárhæðinni. Þeir lofa jafn-
framt að fara ekki í mál við Íslend-
inga til þess að krefjast fullrar
ábyrgðar á innstæðunum og þeir
öðlast hagsmuni með Íslending-
um í því að neyðarlögin haldi gildi
sínu. En þau gera það að verkum
að stærstur hluti þess sem Íslend-
ingar samþykkja að greiða mun
koma frá þrotabúi Landsbankans
en ekki skattgreiðendum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla er
tækifæri fyrir kjósendur til þess
að ljúka málinu með því að sam-
þykkja lögin og það tel ég skyn-
samlegast að gera. Það verður
kostnaðarminnst þegar upp er
staðið og dreginn saman kostn-
aður við Icesave, atvinnuleysi,
verðbólgu, skatta og annað sem
leggst á herðar skattgreiðenda á
næstu árum.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
Kjósum og samþykkjum Icesave
KRISTINN H.
GUNNARSSON
Þegar stjórnmálamenn segja
að ekki beri að borga, en
leggja samt til að það verði
gert, verður uppreisn. Það vill
engin þjóð sætta sig við að
vera kúguð til óréttlætis.
Ráðstefnan verður haldin .knlaugardaginn 16. janúar
í sal bæjarstjórnar Kópavogs, Fannborg 2, kl. 13.00 0.06.–1
Til ráðstefnunnar er boðað fólk í kjörnum nefndum
mesir Kópavogsbæjar, embættismenn bæjarins og aðrir þe
áhuga kunna að hafa.
Verkefni ráðstefnunnar er að leggja grunn að tillögugerð
fyrir bæjarstjórn um málefni langtímaatvinnulausra.
Dagskrá:
1. Erindi félagsmálastjóra Kópavogs: eið-aflgar Félagsle
ingar atvinnuleysis.
2. Erindi frá Vinnumálastofnun: siley Greining á atvinnu
í Kópavogi og möguleg úrræði.
3. Sigríður Snævarr sendiherra: t viðfásNýjar leiðir til að
atvinnuleysi.
Kaffihlé
4. Þrír starfshópar vinna tillögur.
5. Ráðstefnuslit.
Aðgerðir
gegn lang maatvinnuleysi
Atvinnu- og upplýsinganefnd Kópavogsbæjar efnir til ráðstefnu um
aðgerðir á vegum Kópavogsbæjar gegn langtímaatvinnuleysi.
Verslunarhúsnæði við Laugaveg óskast
Traustur leigutaki
Eignaumboðið auglýsir eftir 80-150 fm. verslunarhúsnæði til leigu
fyrir trausta aðila. Helst neðarlega við Laugaveg eða í Bankastræti.
Traustur leigutaki. Langtímaleiga.
Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur
fasteignasali í síma 893 2495, tölvupóstur: adalheidur@eignir.is
Sími 580 4600 - Faxafen 10 - 108 Reykjavík - www.eignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, lögg.fasteignasali
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki