Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 38
6 fjölskyldan
leikhús
upplifun fyrir alla fjölskylduna...
2004 Skoppa og Skrítla verða til. Hrefna
Hallgrímsdóttir leikkona fær hugmyndina að
þeim vinkonum og fær Lindu Ásgeirsdóttur
leikkonu til liðs við sig.
2004 Skoppa og Skrítla í Húsdýragarðinum.
DVD-diskur unninn í samstarfi við Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn með
tónlist og fræðslu um
dýr.
2006 Litla stundin með
Skoppu og Skrítlu. Í
kjölfar vinsælda DVD-
disksins eru framleiddir
sjónvarpsþættir með
Skoppu og Skrítlu
sem sýndir eru á RÚV
í maí 2006. Þættirnir
eru allir þematengdir og
í hverjum þeirra er
fræðsla, tónlist, dans og
fleira.
2006 Skoppa og Skrítla í
Þjóðleikhúsinu. Sýningin er sett upp í
Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins, í
október 2006. Sýningin er hugsuð fyrir börn
á aldrinum 9 mánaða til 6 ára. Hún er
tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem besta
barnasýningin.
2008 Skoppa og Skrítla í söngleik. Annað
leikrit um stöllurnar frumsýnt í Þjóðleikhús-
inu í apríl 2008. Þar fá þær góðan
liðsauka, nokkra dansara á aldrinum 9 til
16 ára og hitta áhugaverðar persónur
á borð við Englandsdrottningu og
William Shakespeare.
2008 Skoppa og Skrítla í bíó.
Fjölskyldumynd í fullri lengd um
ævintýri þeirra vinkvenna á
Íslandi og Flórída í Bandaríkjun-
um frumsýnd í íslenskum
kvikmyndahúsum á annan í
jólum 2008. Um 15.000
manns sækja myndina
meðan á sýningum stendur.
2009 Skoppu og Skrítlu-ís. Emmessís setur á
markað nýjan Skoppu og Skrítlu-ís í júní
2009. Reyndar er um gular og grænar
ávaxtastangir að ræða svo flest börn geti
notið góðs af, líka þau sem eru með mjólkur-
óþol.
2009 Skoppa og Skrítla vígja óskabrunn
barnanna í Borgarleikhúsinu við hátíðlega
athöfn í nóvember 2009. Þær vinkonur hafa
safnað óskum barna í brunninn víða um
heim í þrjú ár og eru þær um þrjátíu þúsund
talsins.
2010 Skoppa og Skrítla á tímaflakki. Nýtt
leikrit frumsýnt í Borgarleikhúsinu 6. febrúar
næstkomandi. Skoppa og Skrítla ásamt Lúsí
vinkonu þeirra hjálpa Bakara Svakara að finn
púsl í púsluspil sem reynist vera fjársjóðs-
kort.
Nýtt verkefni í uppsiglingu? Leikkonurnar
Hrefna og Linda eiga í viðræðum við aðila í
Los Angeles um mögulegt verkefni en mikil
leynd hvílir yfir því.
Öll ævintýri eiga sér upphaf
Þetta er klárlega stærsta leikritið til þessa um þær Skoppu og Skrítlu. Okkur bauðst að komast á stærra
svið í Borgarleikhúsinu og ákváð-
um því meðal annars að fjölga
persónum þar sem karakterum
sem börnin þekkja úr Skoppu
og Skrítlu bíómyndinni bregð-
ur fyrir. Þannig að persónurn-
ar hafa aldrei verið fleiri og lit-
ríkari,“ segir leikkonan Hrefna
Hallgrímsdóttir sem fer með hlut-
verk Skrítlu í stykkinu Skoppa og
Skrítla á tímaflakki.
Fyrir þau yngstu
Hrefna lýsir söguþræðinum á
eftirfarandi veg. „Í stuttu máli
sagt biður Bakari Svakari Skoppu
og Skrítlu að hjálpa sér að finna
púsl í púsluspil sem reynist svo
ekkert venjulegt púsluspil heldur
fjársjóðskort. Hann er að hjálpa
geimsjónræningjum sem eru á
höttunum eftir fjársjóðnum. Við
tökum þátt í leitinni ásamt Lúsí
vinkonu okkar og ferðumst með
aðstoð tímavélar aftur í fortíð
og framtíð þar sem við hittum
kúreka, sjóræningja og alls kyns
furðuverur.“
Að sögn Hrefnu verður kapp-
kostað að gera sýninguna sem
aðgengilegasta fyrir yngstu
áhorfendurna. „Við höfum haft
það að leiðarljósi í öllu sem við
tökum okkur fyrir hendur í nafni
Skoppu og Skrítlu. Leikritið verð-
ur í takt við það þar sem börnun-
um er líka gert ljóst að þau séu
í leikhúsi. Við sýnum hvernig
töfrarnir eru búnir til með ljós-
um og búningaskiptum og stílum
inn á þátttöku áhorfenda. Börnin
verða á fullu við að hjálpa okkur
að leysa gátuna og fræðast í leið-
inni mikið um tíma, rúm, liti og
form, sem börn þurfa að hafa á
hreinu. Þarna erum við að ala upp
næstu kynslóð leikhúsgesta með
því að kynna fyrir þeim þá töfra
sem leikhúsið getur búið yfir.“
Sigurganga frá 2004
Skoppa og Skrítla hafa frá því að
þær litu fyrst dagsins ljós árið
2004 átt miklum vinsældum að
fagna meðal yngstu kynslóðarinn-
ar. Sem dæmi um það sáu 15.000
manns kvikmyndina um ævintýri
Skoppu og Skrítlu þegar hún var
sýnd í íslenskum kvikmyndahús-
um veturinn 2008-2009. Hrefna
telur að það verði að teljast nokk-
uð gott í ljósi þess að upphafleg-
ur markhópur myndarinnar voru
börn á aldrinum 1-6 ára, þótt eldri
börn hafi svo sótt hana. En hvert
er leyndarmálið á bak við þessa
samfelldu sigurgöngu?
„Vinsældir kvikmyndarinnar
út af fyrir sig útskýrast hugsan-
lega af því að myndin er sú fyrsta
sem var gerð fyrir þennan aldurs-
hóp hérlendis,“ svarar þá Hrefna
og bætir við eftir örlitla umhugs-
un að sjálfsagt eigi ástríðan fyrir
umfjöllunarefninu þátt í almennri
velgengni. „Við gerum þetta alfar-
ið frá hjartanu. Erum að ala upp
börn sem eru á sama aldri og
okkar áhorfendur og erum því í
nánum tengslum við þennan heim.
Upphaflega vildum við búa til
sögu þar sem þáttum eins og kurt-
eisi, aga og fegurð eru gerð góð
skil og sýna þessum litlu börnum
lífið og tilveruna í sinni í björt-
ustu mynd. Vonandi tekst okkur
það áfram í nýja leikritinu. Það er
nægur tími til að læra um allt hitt
sem kemur síðar.“
Leikritið um þær Skoppu og
Skrítlu verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu 6. febrúar næst-
komandi. Þangað til gefst áhuga-
sömum færi á að fylgjast með
uppsetningu verksins þar sem
myndskeið með lögum úr sýn-
ingunni verða reglulega sett
inn á Facebook. Leikstjórn er í
höndum Gunnars Helgasonar en
auk Hrefnu og Lindu fara Vig-
dís Gunnarsdóttir og Viktor Már
Bjarnason með helstu hlutverk í
sýningunni. - rve
Lífið og tilveran
í fallegum búningi
Vinkonurnar Skoppa og Skrítla munu kæta leikhúsgesti í nýju leikriti, Skoppa og Skrítla á
tímaflakki, sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 6. febrúar. Stærsta verkefnið á fjölun-
um til þessa segir Hrefna Hallgrímsdóttir sem á hugmyndina ásamt Lindu Ásgeirsdóttur.
Gert af heilum hug Linda og Hrefna telja að velgengni Skoppu og Skrítlu
skýrist meðal annars af ástríðunni sem þær hafa fyrir umfjöllunarefninu.
Gott gengi Ævintýri Skoppu og Skrítlu hafa fengið góða dóma í gegnum
tíðina. Time Out mælti meðal annars með sýningu um þær í New York.
Komið víða við Skoppa og Skrítla hafa glatt börn víða um heim. Hér eru þær
ásamt börnum í Tógó í Afríku. MYND/ÚR EINKASAFNI
BÖRN Í LEIKHÚSI Mörg börn hafa ríka þörf fyrir að tjá sig og
troða upp. Af ýmsum leiklistarnámskeiðum er að taka fyrir börn,
meðal annars í Kramhúsinu sem býður upp á tónlistar-, leik- og
hreyfinámskeið fyrir börn frá þriggja ára aldri.
ERTU ORKULAUS?
Viltu finna orkubreytingu
STRAX!
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
heilsuhillum flestra stórmarkaða.
Énaxin total er frábær
jurtaformúla með Rhodiolu
ásamt dagskammti af
vítamínum og steinefnum
Þægilegt, aðeins 1 tafla á dag