Fréttablaðið - 16.01.2010, Síða 68
36 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
Ertu orðin það sem þú ætlaðir að verða
þegar þú yrðir stór?
Nei, ekki alveg, ég á eftir að gera fullt í
viðbót enda er ég bara tuttugu og fimm ára
og hef aðeins starfað í fjölmiðlum í ár. En ég
er ánægð með hvert þetta stefnir.
Hvernig byrjaðir þú í fjölmiðlum?
Ég byrjaði sem sumarstarfsmaður á Séð og
heyrt þegar ég var í sumarfríi frá The Uni-
versity of Derby þar sem ég stundaði BA-nám
í fjölmiðlafræði. Meðan ég bjó í Bretlandi
vann ég líka sem almannatengill og blaða-
maður fyrir matreiðslu- og menningarblað.
En þar á undan hafði ég náð mér í alls
konar reynslu í gegnum hin ýmsu verkefni.
Málið er bara að vera óhræddur við að senda
greinar, útvarpsupptökur eða hvað sem er
á miðlana til að koma sér af stað. Svo er
blogg alger snilld til að æfa sig og koma sér
í gang.
Er enginn sviðsskrekkur fyrir að byrja í
sjónvarpi?
Jú jú, en ég hamast í ræktinni sex sinnum
í viku til að styrkja taugarnar og kroppinn.
Ef maður undirbýr sig vel andlega og lík-
amlega og tapar ekki gleðinni er þetta mun
minna mál. Svo er hún Ragnhildur Magnús-
dóttir sem er með mér í þessu svo traustur
meðstjórnandi að hún grípur mig ef ég dett
og hysjar upp um mig buxurnar ef ég er með
„plömmer“.
Ert þú rómantísk manneskja?
Já, ég er rómantískur töffari. Það þarf
nefnilega gott jafnvægi í rómantíkina. Fjór-
hjól, fjallgöngur, hestbak eða skvass. Það er
mín tegund af rómantík. Sveittir kossar og
rauðvín geymt í bakpoka.
Ef þú værir bíómynd, hvaða bíómynd
værir þú?
Coming to America með Eddie Murphy. Ég
kann hana utan að og finnst hún skemmti-
legasta mynd í heimi þótt hún sé auðvitað
barn síns tíma. Ég horfði á hana á hverjum
degi sem barn og grét í viku þegar mamma
tók óvart yfir hana. Svo fann ég hana á DVD
um daginn mér til mikillar gleði. Bauð upp
á hana á deiti stuttu síðar. Hef ekki heyrt í
þeim manni aftur.
Hvaða geisladisk hlustaðir þú á síðast?
Jóladiskinn með Þremur röddum og
Beat.
Ef þú ættir einn flugmiða hvert sem er í
heiminum, hvert myndi það vera?
Til Brasilíu að heimsækja fjölskylduna
sem ég bjó hjá þegar ég var skiptinemi. Sól,
hlátur og grillveislur með salsa-tónlist undir.
Já og dökkir og dularfullir folar!
Hvert er versta starf sem þú hefur
gegnt?
Hef verið svo heppin að vera alltaf í brilli-
ant starfi. Ég tók þó einu sinni næturvakt á
barnum Nelly’s með vinkonu minni og safn-
aði glösum eftir sauðdrukkið fólk. Það var
ömurlega leiðinleg. Mun skemmtilegra að
moka hestaskít!
Hvernig er hinn fullkomni karlmaður?
Hann er einlægur, ævintýragjarn, fyndinn
og elskar ís. Hann gæti þó hugsanlega verið
latur við að vakna og vaska upp.
Hvað er fallegast á Íslandi?
Fólkið og húmorinn.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Ó mæ. Fæ bara valkvíða. Ég elska mat. Er
núna sjúk í grillaðan fisk og sushi.
Hver er uppáhalds skemmtistaðurinn þinn
í Reykjavík?
Stofan hennar Önnu Maríu vinkonu. Þar
slefa ég oft úr hlátri.
Hvenær táraðist þú síðast?
Í gær á Ægisíðunni á línuskautum í sér-
legu roki.
Hvenær fékkstu síðast hláturskast?
Áðan í vinnunni. Ég vinn með hrikalega
fyndnu fólki og er mörgum til ama í vinn-
unni vegna háværra hláturskasta.
Uppáhaldsorðið þitt?
Whoop! Þetta orð lýsir einskærri tilhlökk-
un og gleði. Aldrei of mikið notað. Ef ég er
stuði býð ég upp á whoop whoop eða jafnvel
Whoopedí whoop!
Í hvaða litum er fataskápurinn þinn?
Öllum! Ég elska liti og á eyrnalokka í stíl
við hvert dress. Meira að segja í stíl við
hlaupaskóna!
Hvað myndi fullkomna líf þitt?
Lyf sem læknaði þá sem eru veikir í kring-
um mig. En þangað til að það finnst þá reyni
ég að temja mér meira umburðarlyndi og
þolinmæði, það lagar lífið mikið.
Er til meðfædd illska eða er þetta bara
uppeldið?
Meðfædd. Sumt er ekki hægt að laga þótt
uppeldi hafi auðvitað mikið að segja.
Hver er leiðin út úr kreppunni?
Það er exit-hurð inni á Alþingi. Bara opna
það kvekendi.
Hvað er næst á dagskrá?
Koma Íslandi út úr vetrinum fullum af
kossum og keleríi. Markmiðið er Djúpu
laugar-brúðkaup 2010! Whoopedí Whoop!
UPPÁHALDSORÐIÐ ER „WHOOP“ Þorbjörg Marinósdóttir segir þetta óspart þegar hún vill lýsa einskærri
tilhlökkun og gleði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vetur fullur af kossum og keleríi
Djúpa laugin snýr aftur á Skjá einn í byrjun febrúar en stöllurnar Ragnhildur Magnúsdóttir og Þorbjörg Marinósdóttir eru kon-
urnar sem tendra ástarblossann í þetta sinn. Anna Margrét Björnsson fékk Þorbjörgu, eða Tobbu, í þriðju gráðu yfirheyrslu.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Þorbjörg Marinósdóttir
FÆÐINGARÁR: 1984
STARF: Blaðamaður og þáttastjórnandi á
Skjá einum
■ Á uppleið
Menning. Janúar er síður en svo
leiðinlegur heldur uppfullur af spenn-
andi listsýningum og leikverkum.
Um helgina verður Faust frumsýnt í
Borgarleikhúsinu, Ragnar Kjartansson
sýnir afrakstur sinn í Hafnarborg og
hipp og kúl-málararnir fjölmenna í
Hafnarhúsinu.
Súrmatur. Nammi
namm, það er kominn
þessi svarthvíti mónó-
tón-tími í matargerð
þar sem allur matur
er grár og furðulegur.
Hermannagrænt. Vor
og sumar eru uppfull af
flíkum í hermannastíl og upp-
lagt að fjárfesta í jakka eða skyrtu.
Græni risinn. Bragðgóður og ódýr
skyndibitastaður á Grensásvegi. Húrra
fyrir ódýrum og hollum mat.
■ Á niðurleið
Dúnn. Erlendur
dúnn það er
segja, því
komið hefur
í ljós að
meirihluti
hans er
reyttur af
lifandi fugl-
um. Veljum
íslenskt.
Hipsterar. Leiðinlegt orð yfir fólkið
sem hefur ekki um neitt að tala nema
hversu hipp og kúl það er sjálft og
eyðir dögunum í tískupælingar og að
láta taka myndir af sér í töff stelling-
um fyrir Facebook. Boring …
Gervineglur. Það er ekki
svalt að vera með langar
ferkantaðar neglur með
hvítum endum. (Endurtaka
þrisvar sinnum þar til þetta
síast inn).
Júróvisjón. Dularfullt
að öll lögin eru samin af
læknum og tannlæknum.
Og af hverju þurfa þau að vera
svona skelfilega leiðinleg?
MÆLISTIKAN
FRÆÐAFUNDIR
LAGADEILDAR HR
VORIÐ 2010
VERÐUR TAKMARKAÐRI ÁBYRGÐ HLUTAHAFA
AFLÉTT?
Um lagaleg og siðferðileg álitamál þegar hlutafélaga-
formið er misnotað
Hádegisfundur – 12. janúar 12:00-13:00
Jóhannes Rúnar Jóhannsson,aðjúnkt við lagadeild
Háskólans í Reykjavík og Stefán Einar Stefánsson,
viðskiptasiðfræðingur við lagadeild HR.
„ÞEIR FÓLAR SEM FRELSI VORT SVÍKJA”
Lög, ásakanir og dómar um landráð á íslandi
Hádegisfundur – 26. janúar 12:00-13:00
Guðni Th. Jóhannesson, lektor við lagadeild HR.
UMHVERFISÁHRIF – HVAÐ ER ÞAÐ?
Hádegisfundur á vegum Auðlindaréttarstofnunar
– 2. febrúar kl. 12:00-13:00
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt við tækni- og
verkfræðideild HR, Katrín Theódórsdóttir, hdl. og Rut
Kristinsdóttir frá Skipulagsstofnun.
Fundurinn er í samstarfi við tækni- og verkfræðideild HR.
UNGIR KYNFERÐISAFBROTAMENN
Málþing – 12. febrúar 13:00 -17:00
Dr. Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og
prófessor við félags- og mannvísindadeild HÍ, Anna
Newton, réttarsálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun
ríkisins, Hulda Elsa Björgvinsdóttir, saksóknari við
embætti ríkissaksóknara, Heiða Björg Pálmadóttir,
lögfræðingur Barnaverndarstofu, Chien Tai Shill,
félagsráðgjafi og aðjúnkt við HR og HÍ, Sigríður
Björnsdóttir, verkefnisstjóri Blátt áfram og Aron Pálmi
Ágústsson, nemi í hegðunarsálfræði við Lamar-
háskólann í Beaumont Texas og annar tveggja
höfunda bókarinnar Enginn má sjá mig gráta. Barn í
fangelsi.
Málþingið er í samstarfi við Blátt áfram - forvarnar-
verkefni gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.
WORKING IN THE EU INSTITUTIONS
Hádegisfundur á vegum Evrópuréttarstofnunar –
2. mars kl. 12:00-13:00
Peter Chr. Dyrberg, gestaprófessor og forstöðumaður
Evrópuréttarstofnunar HR.
ER MANSAL OG VÆNDI VANDAMÁL Á ÍSLANDI?
Hádegisfundur – 16. mars 12:00-13:00
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu, Hulda María Stefánsdóttir, aðstoðar-
saksóknari við embætti ríkissaksóknara og Hildur
Jónsdóttir, formaður sérfræði- og samhæfingarteymis
gegn mansali.
STATE POWERS AND ENERGY AFFAIRS – FROM
EEA TO EU
Hádegisfundur á vegum Auðlindaréttarstofnunar
– 15. apríl kl. 12:00-13:00
Dr. Dirk Buschle, sérfræðingur hjá Energy Community
Secretariat í Vínarborg og stundakennari við HR.
√
www.lagadeild.is