Fréttablaðið - 16.01.2010, Side 80
48 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> FRAMLEIÐIR HEIMILDARMYND
Leikstjórinn Steven Spielberg ætlar
að framleiða heimildarmynd í sam-
vinnu við sjónvarpsstöðina Science
Channel um endurbyggingu staðar-
ins þar sem tvíburaturnarnir hrundu
í New York. Myndin verður sýnd í sex
hlutum á Discovery-stöðinni á
næsta ári.
Leikarinn George Clooney hefur
umsjón með sjónvarpssöfnun sem
verður haldin á MTV-stöðinni
næstkomandi föstudag fyrir fórn-
arlömb jarðskjálftans á Haítí.
Fjöldi stjarna mun í sjónvarps-
útsendingunni hvetja almenning
til þess að láta fé af hendi rakna
til fórnarlambanna. Brad Pitt og
Angelina Jolie hafa þegar riðið á
vaðið með því að gefa samtökun-
um Læknar án landamæra eina
milljón dollara til hjálparstarfs.
Á meðal annarra sem hafa hvatt
fólk til að styðja við bakið á Haítí-
búum eru söngvararnir Wyclef
Jean og Chris Martin ásamt leik-
urunum Ben Stiller og Scarlett
Johansson.
Stjörnurnar safna á MTV
GEORGE CLOONEY Clooney hefur
umsjón með sjónvarpssöfnun á MTV
fyrir fórnarlömb jarðskjálftanna á Haítí.
Gus Gus heldur sína fyrstu tón-
leika á árinu á Selfossi í kvöld.
þetta eru fyrstu tónleikar sveit-
arinnar á Selfossi á fimmtán ára
starfsferli. Tónleikarnir fara
fram á skemmtistaðnum Hvíta
húsið sem er stærsti skemmti-
staður Suðurlands. Húsið opnar
kl. 23 og hljómsveitin mun stíga
á svið upp úr miðnætti. Gus Gus
er að kynna sjöttu plötuna sína,
24/7, en hún hefur fengið góða
dóma víðs vegar um heim.
Loks á Selfossi
DRESSMAN Gus Gus eru alltaf smart.
„Hvers vegna skyldu menn ekki geta
sungið um það sem skiptir máli þarna
líka. Ekki það að ást og hamingja skipti
ekki máli,“ segir Sváfnir Sigurðarson.
Hann samdi textann við lag hljóm-
sveitarinnar Menn ársins, Gefst ekki
upp, sem keppir í Eurovision í kvöld.
Flest lögin í keppninni fjalla um ást-
ina á einn eða annan hátt en lag Manna
ársins snýst um kreppuna, þar á meðal
búsáhaldabyltinguna, þar sem meðal
annars segir: „Að glænýjum sið þá
mótmæltum við, stóðum saman við
þinghúsið“.
Sváfnir segir textann byggðan á
reynslu sinni af kreppunni. „Ef menn
hafa ekki orðið fyrir áhrifum af and-
rúmsloftinu í þjóðfélaginu hljóta þeir
að hafa verið sofandi. Þetta er leið til
að súmmera það aðeins upp og smá
hvatning líka. Það er búið að vera svo
rosalega mikið þunglyndi í gangi en
við eigum ekkert að gefast upp,“ segir
hann.
Sváfnir tekur fram að textinn hafi
ekki verið saminn sérstaklega fyrir
Eurovision. „Við sömdum bara þetta
lag og síðan var ákveðið að dúndra því
inn í Eurovision. Það var ekki meðvituð
ákvörðun að gera Eurovision að pólit-
ísku hreyfiafli. En á þeim tímum þegar
menn þurfa að þjappa sér saman er
þetta kannski rétta lagið.“
Menn ársins tóku þátt í undankeppni
Eurovision árið 2007 er þeir flutti lagið
If You Were Here eftir Þórarin Freys-
son. Sveitin gaf út sína fyrstu plötu
ári síðar og fyrir áhugasama er hægt
að hala henni frítt niður á síðunni
Bandcamp.com. - fb
Krepputexti í stað ástaróðs
MENN ÁRSINS Hljómsveitin Menn ársins tekur
þátt í undankeppni Eurovision í kvöld.
Robert Pattinson úr Twilight-
myndunum er talinn líklegast-
ur til að taka við af Tobey Mag-
uire sem næsti Spider-Man. Fyrir
skömmu var tilkynnt að Maguire
hefði yfirgefið þennan vinsæla
kvikmyndabálk ásamt leikstjóran-
um Sam Raimi. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær fjórða myndin
um Spider-Man verður frumsýnd.
Söguþráður hennar verður frá-
brugðinn því sem verið hefur því
hún á að gerast á menntaskólaár-
um Péturs Parker.
Pattinson líklegastur
ROBERT PATTINSON Pattinson er talinn
líklegastur sem næsti Spider-Man.
Sími 580 4600 - Faxafen 10 - 108 Reykjavík - www.eignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, lögg.fasteignasali
Viltu minnka við þig?
Við erum með kaupanda að góðu 200-250 fm. einbýlishúsi
í Kópavogi eða Garðabæ. Skipti möguleg á notalegu 154 fm. parhúsi
á frábærum stað í Kópavogi.
Við leitum að raðhúsi, parhúsi eða einbýlishúsi með lágmarki 4
svefnherbergjum í skiptum fyrir 3ja herbergja íbúð í Lindaherfi
í Kópavogi.
Erum einnig með kaupanda að 2ja og 3ja herbergja íbúðum í hverfi
101 Reykjavík.
Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur
fasteignasali í síma 893 2495, tölvupóstur: adalheidur@eignir.is
Gunnar Nelson mætir Bret-
anum Sam Elsdon í blönd-
uðum bardagaíþróttum í
London 13. febrúar. Gunnar
undirbýr sig nú að kappi
fyrir bardagann, en and-
stæðingurinn leitar ráða á
spjallborði á Netinu.
„Þetta er svolítið spes. Ég er ekki
búinn að skoða spjallborðið mikið,
en pabbi er búinn að segja mér
frá þessu. Það eru misalvarleg
ummæli þarna,“ segir Gunnar
Nelson.
Hinn breski Sam Elsdon þykir
ekki eiga góða möguleika á móti
Gunnari, sem er talinn mun sig-
urstranglegri. Hann leitar því
ráða á spjallborði á netinu fyrir
bardaga þeirra í London hinn 13.
febrúar. Aðspurður segist Gunn-
ar ekki leita að leiðum til að sigra
andstæðinga sína á spjallborðum
og telur að Elsdon þrái athygli.
Þrátt fyrir þessar sérstöku þjálf-
unaraðferðir, þá vanmetur Gunn-
ar ekki Elsdon. „Hann er öflugur.
Hann er með 2. dan í júdó og mikla
reynslu í muay thai líka. Þannig að
hann verður erfiður, það er ekki
spurning,“ segir Gunnar.
Gunnar hefur hingað til mætt
mönnum í blönduðum bardaga-
listum sem eru fyrirfram taldir
sigurstranglegri. Þrátt fyrir það
er hann ósigraður og nú er hann
talinn sigurstranglegri. „Ég reyni
að láta það ekki trufla mig. Það er
náttúrlega bara bardaginn sem
skiptir máli,“ segir Gunnar, sem
æfir nú á Íslandi, í fyrsta skipti
fyrir bardaga sem þennan. „Það
gengur bara vel. Ég þarf að fara
út líka en mér finnst ég ná að und-
irbúa mig mjög vel núna. Mér líður
vel og ég er með gott lið með mér
að æfa.“ atlifannar@frettabladid.is
Andstæðingurinn leitar
ráða gegn Gunnari á Netinu
VÍGALEGUR Gunnar heldur til London í febrúar til að berjast við hinn breska Sam
Elsdon. Elsdon þessi þykir sterkur, en Gunnar er talinn sigurstranglegri.