Fréttablaðið - 29.05.2010, Síða 69
5vín&veisla
1,5 kg svínarif
salt og nýmalaður pipar
2 ½ msk rifinn engifer
3 hvítlauksrif, pressuð
4 msk sojasósa
4 msk þurrt sérrí
4 msk Hoisin-sósa
4 msk tómatþykkni
2 msk púðursykur
1 tsk múskat
1/2 tsk kanill
1 1/2 msk sesamfræ
Hitið ofninn í 140 C. Raðið svínarifum
í eldfast mót, kryddið með salti og
pipar og bakið í 1 ½ klukkustund.
Blandið saman afganginum af hrá-
efninu í pott og hitið að suðu. Takið
pottinn af hellunni og penslið rifin
með sósunni. Hækkið ofnhitann í 180
C og bakið áfram í 25-30 mínútur.
Einnig er hægt að grilla rifin, þá eru
þau grilluð á meðalheitu grilli í 15 mín-
útur á hvorri hlið. Stráið sesamfræum
yfir rifin áður en þau eru borin fram.
GRÁÐOSTASÓSA
1 dós 10% sýrður rjómi
100 g gráðostur
salt og nýmalaður
pipar
Hrærið öllu
vel saman
og berið
fram með
svínarifj-
unum.
Það sem er langbest í gogginn við svona tilefni, hvort sem þau heita Eurovision-kvöld, kosninganótt og ég tala nú ekki um
heimsmeistarakeppni í knattspyrnu, eru kjúklingavængir í ofni,“
segir Dagur B. Eggertsson, læknir og efsti maður á lista Samfylk-
ingarinnar í borginni. Hann gefur okkur fúslega leiðbeiningar um
matreiðsluna og tekur fram að ekki sé um flókna hluti að ræða.
„Maður byrjar á að taka plastpoka og setja í hann eina og hálfa
matskeið af hveiti, þó nokkurn slatta af pipar og aðeins meira salt
en maður heldur. Svo skolar maður af kjúklingavængjunum, þerrar
þá vel með pappír og setur þá ofan í pokann, lokar honum og hristir
þannig að hveitið með kryddinu dreifist jafnt og festist utan á bitun-
um. Smellir þeim svo á plötu og inn í ofn og hefur þá þar þangað til
þeir eru orðnir fallega brúnir,“ lýsir Dagur og telur ráðlegt að snúa
öllum bitunum einu sinni meðan á steikingunni stendur.
„Kjúklingavængir eru einhver ódýrasti lúxus sem hægt er að
leyfa sér og ómetanlegur kostur á sumarkvöldum,“ heldur Dagur
áfram og bendir á að með afslætti kosti tíu vængir svona tvö hundr-
uð og fimmtíu kall og hveiti, pipar og salt sé ekkert til að hafa
áhyggjur af. „Svo er eldamennskan á allra færi og ég skora á fólk
að nota þunnu pokana utan af ávöxtunum fyrir kryddunina, þá fá
þeir svolítið framhaldslíf,“ segir hann og bætir við glaðlega: „Allir
sem reyna þennan skyndibita munu ánetjast, þannig að á endanum
verð ég líklega gerður að heiðursfélaga í sölusamtökum kjúklinga-
framleiðenda!“
Ódýrasti lúxus sem hægt er að leyfa sér
ÓDÝRT OG FLJÓTLEGT Dagur eldhress í eldhúsinu tilbúinn með goggmáltíð á
kosninganótt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
dvitanna í Reykjavík
Ég geri ömmu Lillu-réttinn,“ segir Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins
í Reykjavík, inntur eftir auðveldum rétti á
kosningakvöldi. „Það er uppáhaldsréttur
strákanna minna og er ótrúlega einfaldur.“
Uppskriftin er fengin frá Bóthildi,
mömmu Einars, sem kölluð er Lilla. „Hún
eldaði þetta fyrir strákana þannig að þeir
kalla þetta ömmu Lillu-réttinn. Þetta er
mjög vinsælt hérna á heimilinu.“
Einar segist vanalega elda mjög mikið
en býst ekki við að tími vinnist til að gera
ömmu Lillu-réttinn í kvöld þótt hann sé fljót-
legur en Einar hyggst eyða kvöldinu á kosn-
ingavöku Framsóknarflokksins. „Ég verð nú
bara þar að mestu leyti.“
En ætlar Einar að kíkja eitthvað á Euro-
vision? „Já, örugglega, svona með öðru aug-
anu. Við erum líka með Eurovision-sérfræð-
ing á listanum hjá okkur. Hann Reyni Þór
Eggertsson,“ segir Einar en þeir voru ein-
mitt saman að gefa fólki framsóknarkaffi
þegar náðist í hann. „Ég held að hann passi
það að við fylgjumst vel með Eurovision.“
Uppáhaldsréttur strákanna minna
GÓÐUR Ömmu Lillu-rétturinn er vinsæll á heimili Einars.
ömmu Lillu-rétturinn
Hæfilega mikið af makkarónum
1 dós maísbaunir
1 Medisterpylsa
Fullt af osti
Sjóðið makkarónurnar í saltvatni. Skerið
medisterpylsuna í bita og steikið. Blandið
makkarónunum, medisterpylsunum og maís-
baununum saman. Setjið ost yfir. Stingið
inn í ofn þar til osturinn er
bráðinn.
FR
É
TTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Einar hefur skipt
medisterpylsunni út
fyrir vínarpylsu eða
hakk.
Mér finnst ótrúlega gaman að halda veislur og geri það af tiltölulega litlu
tilefni. Þó hefur það aðeins elst af mér, ég
hef svolitlar áhyggjur af því,“ segir Sóley
Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í
Reykjavík, á léttu nótunum. „Einu sinni hitti
þrítugsafmælið mitt á sama dag og Euro-
vision-keppnin og þá bakaði ég fimm brauð
sem mynduðu nafnið JÓNSI en það var árið
sem Jónsi í Svörtum fötum keppti.“
Innt eftir því hvernig hún muni eyða
kvöldinu og hvað verði á borðum segir Sóley
mat ekki ofarlega í huga sér enda verði hún
á þönum. „Í kosningabaráttu hugsar maður
lítið um hvað maður lætur ofan í sig, þá
sjaldan maður fær að borða. Í kvöld mun ég
því sennilega bara borða það sem hendi er
næst. En dagurinn verður skemmtilegur. Ég
mun fá mér tertukaffi með mínu fólki hér
á kosningaskrifstofunni en ég mæli frekar
með því að fólk hafi það skemmtilegt á kosn-
ingavökunni og borði bara eitthvað hollt og
gott.“
Fljótlegt og hollt
HOLLIR Sóley Tómasdóttir, frambjóðandi VG, grípur
kannski í þurrkaða ávexti í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það er nú afar ólíklegt að ég nái því að steikja rifin í kvöld, en þessi réttur er
eftir uppskrift frá Friðriku Hjördísi Geirs-
dóttur og hefur slegið í gegn hjá okkur. Út-
koman var alveg ný fyrir okkar bragðlauka
og við látum fagnaðarerindið út ganga,“ segir
Hanna Birna þar sem hún leggur lokahönd
á súrsæt svínarif fyrir landsmenn að prófa
á þessum mikla hátíðisdegi. „Þetta er hæfi-
lega mikið og passar vel á svona kvöldi; létt
en samt með góðri fyllingu.“
Í aðdraganda kosninga hefur borgarstjóri
látið í minni pokann fyrir sínum ektamanni
í eldhúsinu heima. „Ég er afar áhugasöm um
mat og matargerð en undanfarið hefur elda-
mennskan verið í höndum eiginmannsins.
Hann er hrikalega góður kokkur og betri en
ég að því leyti að ég er tiltölulega föst í bók-
stafnum og fylgi uppskriftum eftir í þaula
meðan hann hefur þetta í puttunum og galdr-
ar fram kræsingar eftir blæbrigðum skaps
og tilfinninga.“
Hanna Birna segir hefðbundið Eurovision-
kvöld vera með fjölskyldu og vinum yfir
söngvakeppninni þar sem allir leggja eitt-
hvað í púkk og elda saman. „En í kvöld verð
ég uppteknari af öðrum kosningum þótt ég
muni auðvitað horfa á Heru og styðja hana
heilshugar alla leið.“
- þlg
Boðar fagnaðarerindi svínarifjanna
GÓÐ FYLLING Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri í
blómlegum garðinum heima með nýgrilluð svínarif með
sesamfræjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ég mun bjóða mínu fólki sem verður heima hjá okkur hjónum í Vesturbæ
Reykjavíkur í kvöld upp á hjónabandssælu.
Við munum gæða okkur á ljúffengum kaffi-
sopa með henni og jafnvel horfa á gamlan
Matlock þátt af myndbandssnældu.
Hjónabands-sæla
500 g spelt
500 g lífrænir hafrar
500 g púðursykur
500 g smjör
1 og 1/2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
Þurrefnum blandað saman og smjör brætt.
Smjörinu hellt saman við og öllu bland-
að saman, helmingur af þessu sett í stóra
ofnskúffu, og þrýst niður, rabbarbarasulta
sett ofan á og restinni af blöndunni stráð yfir,
bakað í 40 mín. á 180 gráðum.
Sæla í Vesturbæ
Súrsæt svínarif með gráðostasósu
SÁTTUR Jón Gnarr gæðir sér á ljúffengri kökunni.