Fréttablaðið - 30.09.2010, Qupperneq 6
6 30. september 2010 FIMMTUDAGUR
IÐNAÐUR Íslenskir bankar hafa ekki
enn sýnt áhuga á áætlun Evrópu-
sambandsins (ESB) þar sem boðin
er trygging á hluta lántöku smærri
og meðalstórra fyrirtækja. Sam-
keppnis- og nýsköpunaráætlun sam-
bandsins er til umræðu á ráðstefnu á
Grand Hótel Reykjavík í dag. Smá og
meðalstór fyrirtæki teljast þau sem
eru með minna en 250 starfsmenn
og velta innan við 50 milljónum evra
(rúmum 7,7 milljörðum króna).
Hanna Dóra Hólm Másdóttir,
deildarsérfræðingur á skrifstofu
nýsköpunar og þróunar í iðnaðar-
ráðuneytinu, segir fjölda fjármála-
fyrirtækja í Evrópu hafa séð sér
hag í að taka þátt í verkefninu, en
það hafi verið opið íslenskum bönk-
um frá því sumarið 2007. „Líklega
hafa þeir bara verið uppteknir við
að vinna úr margvíslegum vanda
öðrum,“ segir hún, en bætir um
leið við að skortur á lánsfjármagni
sé eitt af því sem helst hafi hamlað
vexti fyrirtækja. Því sé varla nema
jákvætt ef banki telji fyrirtæki
skorta veð að ESB sé þá tilbúið að
leggja til ábyrgð fyrir allt að fjórð-
ungi lánsins.
ESB leggur tæpa 560 milljarða
króna til áætlunarinnar. - óká
Evrópuáætlun ýtir undir lánveitingar til smærri og meðalstórra fyrirtækja:
Ábyrgjast allt að fjórðungi láns
TIMO SUMMA Yfirmaður sendinefndar
ESB á Íslandi heldur ávarp á ráðstefnu
um fjármögnunarleiðir fyrirtækja.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lífrænt skiptir máli
fyrir barnið þitt
- Engin erfðabreytt innihaldsefni
- Ræktað án notkunar meindýraeiturs
Kíktu í heimsókn á www.hipp.is
Kitlar bragðlaukana
Nafn óskast!
Ferðamálastofa , í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands,
Sam tök ferða þjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands, efnir til
samkeppni um nafn á nýju gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska
ferðaþjónustu. Nafnið skal vera á íslensku og lýsandi fyrir verk-
efnið en jafnframt þjált í framburði á alþjóðavettvangi.
Vinningshafi hlýtur í verðlaun 100.000.- kr. Ferðamálastofa áskilur sér
óskorað an rétt til að nota það nafn sem hlutskarpast verður án þess að til
komi aðrar greiðslur en verðlaunaféð.
Ef fleiri en einn aðili eiga sömu tillögu verður vinningshafinn dreginn út.
Keppnin er öllum opin og frestur til að skila inn tillögum er til 18. október
2010.
Tillögum skal skila, í lokuðu umslagi merktu dulnefni, til Ferðamálastofu,
Geirsgötu 9, 101 Reykjavík. Í umslaginu skal vera annað lokað umslag
með réttu nafni þátttakanda, heimilisfangi og símanúmeri.
Nánari upplýsingar um verkefnið fást á www.ferdamalastofa.is og hjá
Öldu Þrastardóttur, alda@icetourist.is.
Ferðamálastofa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar og Ferða málasamtök
Íslands hafa um nokkurt skeið unnið að samræmdu gæða- og umhverfis kerfi sem fyrirhugað er
að innleiða á komandi misserum. Meginmarkmið kerfisins er að auka og efla gæði í ferðaþjónustu
á Íslandi með faglegri handleiðslu og byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja
hér á landi.
ÁRÓSAR Fjórtán ára drengur var
úrskurðaður í fjögurra vikna
gæsluvarðhald af dómara í Árós-
um í Danmörku þar sem hann er
grunaður um að hafa staðið fyrir
fjölmörgum íkveikjum í borginni
ásamt 15 ára félaga sínum sem
einnig fer í gæsluvarðhald.
Yngri drengurinn er yngsti ein-
staklingurinn sem setið hefur í
gæsluvarðhaldi í Danmörku, en
þar var sakhæfisaldur lækkaður
niður í 14 ár í sumar.
Drengirnir og verjendur þeirra
íhuga að áfrýja dómnum. - þj
Brennuvargur í Árósum:
14 ára settur í
gæsluvarðhald
EFNAHAGSMÁL Þriðja endurskoð-
un efnahagsáætlunar Íslands og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
var tekin fyrir og samþykkt í
stjórn sjóðsins í gær.
Eftir samþykktina stendur
íslenskum stjórnvöldum til boða
lánafyrirgreiðsla sjóðsins að jafn-
gildi 19 milljarða króna, að því er
fram kemur í tilkynningu efna-
hags- og viðskiptaráðuneytisins.
Að auki er gert ráð fyrir lánum frá
Póllandi og Norðurlandaþjóðum.
Með samþykktinni nálgast mið-
bik efnahagsáætlunarinnar, sem
alls verður end-
urskoðuð sjö
sinnum. Í upp-
færðri viljayf-
irlýsingu ríkis-
stjórnarinnar
kemur fram að
stefnan leggi
grunninn að
endurreisn hag-
kerfisins og að
umtalsverður
árangur hafi náðst frá hruni.
„Aukið jafnvægi í ríkisfjármálum
hefur sýnt sig í vaxandi trausti,
sterkara gengi krónunnar og meiri
stöðugleika hagkerfisins frá lokum
ársins 2009,“ segir þar.
Árni Páll Árnason, efnahags- og
viðskiptaráðherra, segir ekkert
upp á stjórnvöld að klaga í fram-
kvæmd áætlunarinnar. „Allar
áætlanir hafa staðist hvað varð-
ar ríkisútgjöld, jafnt á tekju- og
gjaldahlið,“ segir Árni Páll. Þá
sé efnahagsáætlunin ekki held-
ur byggð á óraunhæfum vænting-
um um tekjustreymi. „Þessi mynd
teiknast óvíða upp í heiminum þar
sem lönd hafa lent í erfiðleikum,“
segir hann. „Við höfum frá upp-
hafi kosið að vinna þetta af fag-
mennsku og ábyrgð og það skilar
aukinni tiltrú.“
Óskyld mál á borð við Icesave
segir Árni vissulega hafa þvælst
fyrir á einhverjum tímapunkti.
Sú deila sé hins vegar í farvegi
og ríkið tilbúið að leysa hana með
sanngjörnum samningum. „Og þá
sjá allir að ekki er ástæða til ann-
ars en að við njótum sannmælis í
samræmi við þann árangur.“
Um leið segir Árni Páll mikil-
vægt að undirstrika að hefði ekki
verið farið í þessa vinnu með AGS
þá hefði þurft að grípa til meiri
skattahækkana og meiri niður-
skurðar í ríkisútgjöldum, sem
aftur hefði stórskaðað velferðar-
þjónustuna.
Þá segir Árni Páll samstarfið
við AGS sýna mikilvægi þess að
vinna með færustu sérfræðing-
um sem hafi sjálfstæða skoðun
á málum. „Það er kannski sá agi
sem í gegn um tíðina hefur skort
í íslenskri stjórnsýslu og efna-
hagslífi. Ég held að ekki hafi verið
neinum hollt að vera ekki undir
reglubundnum aga í aðdraganda
hrunsins og reglubundnum sam-
skiptum alls stjórnkerfisins við
færustu sérfræðinga. Við höfum
tekið þessu fagnandi og byggt allar
áætlanir á raunsæjum forsendum.
Það er að skila sér og hefði betur
verið gert fyrir hrun líka.“
olikr@frettabladid.is
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
Á KYNNINGARFUNDI Franek Rozwadowski og Mark Flanagan, fulltrúar AGS á fundi í júní.
Þeir sitja fyrir svörum um framvindu efnahagsáætlunar ríkisins þegar AGS hefur gefið út
öll skjöl varðandi þriðju endurskoðun hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þriðju endurskoðun
lokið hjá stjórn AGS
Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti í gær þriðju endurskoðun efnahags-
áætlunar ríkisins. Með samþykktinni stendur ríkinu til boða 19 milljarða króna
lánafyrirgreiðsla. Afrakstur aðhalds sem þörf hefði verið á fyrr, segir ráðherra.
EFNAHAGSMÁL „Þessari endurskoð-
un var lokið á áætlun og við gerum
ráð fyrir að halda áætlun í fram-
vindu efnahagsáætlunarinnar,“
segir Franek Rozwadowski, full-
trúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(AGS) á Íslandi. Hann segir sam-
þykkt endurskoðunar efnahags-
áætlunar stjórnvalda og AGS í
stjórn sjóðsins sýna að Ísland sé
enn á batavegi.
„Í grunninn hefur árangurinn
verið tilkomumikill, hann endur-
speglar öfluga stefnumörkun og
sveigjanleika í að bregðast við
breyttum aðstæðum. Verðbólga
er á niðurleið og útlit fyrir að hag-
vöxtur taki við sér á ný þrátt fyrir
mótbyr í efna-
hagslífinu,“
segir Franek
Rozwadowski.
Samkvæmt
núverandi fram-
göngu áætlunar-
innar er gert ráð
fyrir að henni
ljúki í ágúst
2011. „Þetta var
þriðja endur-
skoðunin og svo verður ein í hverj-
um ársfjórðungi fram til loka áætl-
unarinnar.“
Auk þess að fjalla um efnahags-
áætlun Íslands fjallaði stjórn AGS
líka um reglubundið yfirlit efna-
hagsmála í samræmi við reglugerð
fjögur (Article IV) hjá sjóðnum.
„Þá er fjallað um stöðu efnahags-
lífs þjóða á breiðum grundvelli og
komið fram með almennar ábend-
ingar og athugasemdir,“ segir
Rozwadowski. Slík umfjöllun fer
fram annað hvert ár hjá þjóðum
sem vinna efnahagsáætlun undir
væng AGS, en er árviss hjá öðrum
aðildarríkjum sjóðsins.
„Við gerum ráð fyrir því að
skýrsla starfsliðs sjóðsins verði
gefin út næsta mánudag, ásamt
völdum skrifum þar sem ýmsar
hliðar íslensks efnahagslífs verða
greindar,“ segir Rozwadowski.
- óká
FRANEK
ROZWADOWSKI
Fulltrúi AGS segir árangur Íslands tilkomumikinn og sýna getu til að bregðast við:
Fleira rætt en efnahagsáætlunin
Við höfum frá upphafi
kosið að vinna þetta
af fagmennsku og ábyrgð og
það skilar aukinni tiltrú
ÁRNI PÁLL ÁRNASON
EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Ert þú sátt(ur) við þá ákvörðun
Alþingis að ákæra skuli Geir H.
Haarde fyrir landsdómi?
Já 42,6%
Nei 57,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er réttlætanlegt að loka á aðra
en göngufólk um Vonarskarð í
Vatnajökulsþjóðgarði?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN