Fréttablaðið - 30.09.2010, Page 20

Fréttablaðið - 30.09.2010, Page 20
20 30. september 2010 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna „Því er fljótsvarað hvað eru bestu kaupin,“ segir Andrea Hjálmsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri. „Ég fjárfesti í róbotryksugu þegar ég bjó í Vancouver og held að það séu bestu kaupin sem við hjónin höfum gert.“ Andrea segir ryksuguna góðu frá Kanada létta heimilisstörfin mikið fyrir upptekið fólk. „Ryksugan svínvirkar og er þvílíkt þarfaþing á nútímaheimili. Maður setur hana í gang þegar maður fer út á morgnana og hún er búin að ryskuga þegar maður kemur heim,“ lýsir Andrea sem kveður erfiðara hafa reynst að velja verstu kaupin sem hún hafi gert. Sennilega vegna þess hversu meðvitaður neytandi hún sé. „Ætli að einna verstu kaupin sem við höfum gert sé ekki krakkahús sem við keyptum í Húsasmiðjunni og kom svo í ljós að dætur okkar léku sér ekkert í. Það var lagt rafmagn í kofann og allt var rosa flott en þær hafa aldrei notað hann mikið,“ segir Andrea sem þó segir kofakaup- in virðast ætla að enda vel: „Svo getur verið að kofinn sé að breytast í bestu kaupin líka því hann er orðinn hænsnakofi. Þannig að við erum að reyna að gera það besta úr þessari fjárfestingu. Batnandi kofum er best að lifa.“ NEYTANDINN: Andrea Hjálmsdóttir, bæjarfulltrúi VG á Akureyri Þarfaþingið róbotryksugan svínvirkar „Tesateip heldur saman heimilinu,“ segir Guðrún Gísladóttir leikkona og kveður nær endalaust hvað límband þetta er gagnlegt. „Þetta er svona striga-, eða taul- ímband, nokkuð dýrt, en níðsterkt og til allra hluta nytsamlegt,“ segir hún og kveður meðal annars mega nota það til að falda buxur. „Það heldur líka saman Þjóðleikhúsinu, en núna er verið að skera niður Tesateipið þar þannig að við erum voða hrædd um að það hrynji bara í sundur. Það er allra meina bót að eiga þetta í skúffu.“ GÓÐ HÚSRÁÐ TEIPIÐ MÁ EKKI VANTA ■ Guðrún Gísladótti leikkona segir Tesalímband ómissandi hjálpargagn. Verslunum verður óheimilt að taka við forverðmerktum kjötvörum frá framleiðend- um á næsta ári. Slíkt hefur í för með sér aukin útgjöld og kostnað hjá smásölum. Mjög líklegt að verð á kjöti hækki í kjölfarið, segir aðjúnkt í markaðsfræði við Háskóla Íslands. Forverðmerkingar geta í sumum tilvikum komið sér vel fyrir neyt- endur. Þær gera það að verkum að framleiðendur hafa ekki mögu- leika á frekari verðhækkun á við- komandi vöru. „Með því að hætta forverðmerk- ingum er verið að gefa smásölum meira svigrúm til verðhækkana,“ segir Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt í markaðsfræði við Háskóla Íslands. Hann segir afar líklegt að verslanir hækki verð eftir að forverðmerkingum verði hætt á næsta ári, bæði vegna aukins svig- rúms og einnig þess kostnaðar sem því fylgir að vigta og verðmerkja allar þær vörur sem ekki koma inn í verslanir í stöðluðum pakkning- um. Á næsta ári stendur einnig til að koma upp fleiri verðkönnunar- skönnum í verslunum Bónuss og því fylgja einnig aukin útgjöld. „Hér áður fyrr voru kaupmenn hlynntir því að forverðmerk- ingum væri hætt, vegna þess að þeir vissu að ákveðnir vöruflokk- ar myndu seljast á hærra verði,“ segir hann. Framleiðendur veita smásölum afslætti til þess að gera tilboð í verslunum möguleg. Í flestum til- vikum vita birgjar að vörur frá þeim eru að fara á tilboð í versl- unum og selja smásölum vörurn- ar því á lægra verði. Hagar játuðu nýverið á sig að hafa átt í ólög- legu samráði við kjötframleiðend- ur og féllust á að greiða 270 millj- ónir í sekt í kjölfarið. Samráðið fór þannig fram að framleiðend- ur merktu vörurnar á of háu verði sem Bónus, í eigu Haga, merkti síðan á ákveðnum prósentuafslætti við kassa. „Framleiðendur gera sér fulla grein fyrir því að varan er að fara á tilboð,“ segir Friðrik. „Þeir veita smásölum aukinn afslátt til þess að þeir geti verið með tilboð í búðum. Þessi tala sem stendur á vörunum, hið svokallaða upphaflega verð, er í raun bara ímynduð tala sem kemur hvergi fram. Það þarf tvo aðila til að láta svona lagað ganga upp.“ sunna@frettabladid.is Verslanir fái mun meira svigrúm til hækkana á verði FORVERÐMERKTAR KJÖTVÖRUR Bakkar með grísahnökkum eru forverðmerktir með kílóverði frá framleiðanda. Límmiða með 10 prósenta afslætti er bætt við svo endan- legt verð kemur ekki fram. Slíkt verður óleyfilegt á komandi ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Virknisafar heitir ný tegund náttúrulegra safa sem Ölgerðin hefur sett á markað. Þeir eru sagðir innihalda virk náttúruleg efni úr jurtunum Yerba Mate og Ginkgo Biloba. „Þeir bragðast líkt og hefðbundnir ávaxtasafar en virku innihaldsefnin í jurtunum tveimur eru fleiri en áður hefur þekkst í ávaxtasöfum hérlendis. Yerba Mate-safinn slær á hungur milli mála, en Ginkgo Biloba-safinn skerpir einbeitingu og eykur orku,“ segir í tilkynningu Ölgerðarinnar. Í umfjöllun um Yerba Mate kemur fram að Charles Darwin hafi kallað jurtina „hina fullkomnu örvun, en drykkurinn sé ríkur af trefjum og andoxunarefnum og hentugur milli mála, með morgunmat eða sem miðdegissnarl. Þá er því haldið fram í tilkynningu fyrirtækisins að lækningamáttur Ginkgo Biloba-laufanna sé óumdeilanlegur. „Það er löng hefð fyrir því að nýta þau til heilsubótar en auk andoxunaráhrifa, auka þau blóðflæði, vinna á móti kekkjun í blóði, bæta minni og auka einbeitingu,“ segir þar. ■ Drykkjarföng Nýir virknisafar frá Ölgerðinni Veitingastaðirnir Fiskmarkaðurinn, Potturinn og pannan og Ruby Tuesday hafa verið sektaðir af Neytendastofu um 50.000 krónur hvert fyrir að fara ekki eftir tilmælum um verðmerkingar. Sektirnar eru af því tilefni að staðirnir hafa ekki matseðil með verði við inngöngudyr eins og verðmerkingareglur gera ráð fyrir. Neytendastofa hóf kannanir á slíku í ágúst og fylgdi því eftir fyrr í septembermánuði. Þá var farið á eitt safn og fjórar veitingasölur sem ekki höfðu verðmerkt sem skyldi þegar fyrri könnun var gerð. Hönnunarsafn Íslands hafði farið eftir tilmælum Neytendastofu og sett upp verðskrá yfir aðgangseyri. Verðmerkingar voru einnig komnar í lag hjá kaffiteríunni Gerðarsafni, Súpubarnum í Listasafni Reykjavíkur og Kaffitári í Þjóðminjasafninu. ■ Veitingahús Fá 50.000 króna sekt fyrir brot POTTURINN OG PANNAN Einn þeirra staða sem Neyt- endastofa sektaði. 20 02 20 04 20 06 20 08 20 10 Heimild: Hagstofa Íslands. 82 kr. Útgjöldin > Verð á 40W ljósaperu 130 120 110 100 90 80 70 79 kr. 77 kr. 87 kr. 126 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.