Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 30. september 2010 25
Haustið 1946 birti tímarit-ið Helgafell tvær ritgerðir
um stjórnarskrármál, aðra eftir
Ólaf Jóhannesson, síðar forsæt-
isráðherra, og hina eftir Gylfa
Þ. Gíslason, síðar menntamála-
ráðherra. Þeir voru þá báðir um
þrítugt. Stjórnarskrá lýðveldis-
ins Íslands var þá aðeins tveggja
ára, en ástand þjóðlífsins var
lævi blandið að loknu stríði og
vakti vangaveltur um stjórn-
skipun landsins. Gefum Ólafi og
Gylfa orðið.
Mörg ríki í ríkinu
Ólafur: „Ég tel, að breytingar
á stjórnarskránni eigi fyrst og
fremst að miða að því að tryggja
raunverulegt lýðræði í land-
inu og fyrirbyggja hvers konar
ofbeldi einstaklinga og félags-
heilda.... vald stjórnmálaflokk-
anna og ýmissa hagsmunasam-
taka er orðið meira en góðu hófi
gegnir. Í rauninni er þar orðið
um að ræða mörg ríki í ríkinu,
og þau svo voldug, að þau beygja
ríkisvaldið og knésetja þjóðar-
heildina.“
Gylfi: „Ríkisstjórnin er ... allt-
of háð stjórnmálaflokkunum,
þar eð þeir eða einhverjir þeirra
beinlínis tilnefna hana. ... stuðn-
ingsmenn telja sig oft eiga hönk
upp í bakið á þeim, sem þeir
hafa lyft í valdastólinn, og erfitt
getur reynzt að halda því sæti
án ýmiss konar umbunar. ... Hin
nánu tengsl framkvæmdarvalds-
ins við stjórnmálaflokka valda
því, að menn eru oft og einatt
fremur valdir til trúnaðarstarfa
eftir stjórnmálaskoðun og fylgi-
spekt við valdhafa en hæfileik-
um og dugnaði. ... Það, að vera
í stjórnmálum á öndverðum
meiði við valdahafa, hefur jafn-
vel virzt svo vís trafali á vegi til
trúnaðarstarfa, að ungir menn
hafa oft talið það nálgast skerð-
ingu á skoðanafrelsi sínu.“
Vald forseta
Ólafur: „Ég er þeirrar skoðunar,
að auka beri vald forseta frá því,
sem nú er, og gera þurfi nokkru
gleggri grein á milli hinna ein-
stöku þátta ríkisvaldsins. ... Í
stjórnarskrána ætti því að setja
sérstök og skýlaus ákvæði um,
að forseti skuli tilnefna ráð-
herra án atbeina þingsins, þegar
það hefur gefizt upp við stjórn-
armyndun. ... Jafnframt stjórn-
arskrárbreytingunni þyrfti að
fækka þingmönnum, t.d. niður
í 40. Sú aðferð, sem höfð hefur
verið við svo að segja allar
stjórnarskrárbreytingar, sem
hér hafa verið gerðar, að fjölga
þingmönnum, er ófær og hlýt-
ur að enda í öngþveiti, ef henni
verður haldið áfram. ... Þá þarf
að setja í framtíðarstjórnarskrá
landsins ýtarlegri ákvæði um
eignarrétt ... og lögvernd hans,
þannig að einstakir menn auðg-
ist ekki óhæfilega fyrir beinar
aðgerðir hins opinbera.“
Gylfi: „Þingmönnum ætti að
fækka verulega, hafa þá t.d. 33.
... Til þess að festa ríkisstjórn-
ina í sessi og gera hana óháða
stjórnmálaflokkunum verð-
ur að gera löggjafar- og fram-
kvæmdarvaldið mun óháðara
hvort öðru en nú er. ... Forseti á
að taka vald sitt beint frá þjóð-
inni og vera hinn æðsti hand-
hafi framkvæmdarvaldsins.
Hann ætti að staðfesta lög og
geta synjað um staðfestingu, þar
til þjóðaratkvæði hefur geng-
ið um frumvarpið, og hann ætti
að hafa heimild til þess að rjúfa
þingið og fyrirskipa kosning-
ar. Ennfremur ætti hann að til-
nefna ráðherra, og ættu þeir
ekki að mega vera alþingismenn.
... Kostir þessarar tilhögunar
eru fyrst og fremst þeir, að ...
meiri líkur eru til þess, að farið
sé heiðarlega með framkvæmd-
arvaldið og því ekki misbeitt
í þágu einstaklinga, héraða,
flokka eða annarra samtaka og
til starfa í þágu ríkisins velj-
ist hæfir menn, þar eð stjórnin
er engum háð öðrum en forseta.
Yfirleitt ætti að mega búast við
því, að draga mundi úr hinum
alltof miklu áhrifum stjórn-
málanna í þjóðlífinu og ýmsu
því, sem óheilbrigt hefur mátt
telja í opinberu lífi þjóðarinnar.“
Alþingi, stjórnarskráin og þjóðin
Ólafur: „Alþingi ... er sú stofnun
þjóðarinnar, sem mestrar virð-
ingar á að njóta. Eigi það ekki að
glata þessari virðingu, þarf að
gera á skipun þess vissar breyt-
ingar. Eigi það í framtíðinni að
verða fulltrúasamkunda þjóðar-
innar og landsins í heild, en ekki
einstakra klíkna eða hagsmuna-
hópa, þarf að breyta kjördæma-
skipaninni.“
Gylfi: „... hverjar sem þær
breytingar verða, er afráðið
verður að gera á stjórnkerfinu,
er jafnhliða og jafnvel fyrst og
fremst nauðsynlegt, að um verði
að ræða róttæka hugarfarsbreyt-
ingu hjá þjóðinni, stjórnmála-
mönnum hennar og embætt-
ismönnum. ... Vér Íslendingar
skipum oss alltof fast í flokka,
vér erum óvægnir í deilum, oss
skortir hlutlægni í hugsun og
dómum og er miklum mun of
gjarnt að líta á menn fremur en
málefni.“
Ólafur: „Þess vegna megum
við ekki setja neitt oftraust á
nýja stjórnarskrá. Það er þjóðin,
sem við verðum að treysta. Hana
þarf ef til vill einnig eitthvað að
bæta.“
Samræða um nýja stjórnarskrá
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Í DAG
Ólafur: „Þess vegna megum við ekki
setja neitt oftraust á nýja stjórnar-
skrá. Það er þjóðin, sem við verðum
að treysta. Hana þarf ef til vill einnig
eitthvað að bæta.“
AF NETINU
Steingrímur til óþurftar
Þingmennirnir leggjast lágt með
því að stefna stjórnmálaandstæð-
ingi fyrir refsidóm. Það er rétt, sem
Geir sagði á Stöð 2, að Steingrímur
J. Sigfússon, formaður vinstri-
grænna, stendur að baki þessum
ofsóknum. Hann er mesti óþurft-
armaður íslenskra stjórnmála um
þessar mundir.
Steingrímur J. stóð að því með
Árna Þór Sigurðssyni, formanni
vinstri-grænna í utanríkismála-
nefnd alþingis, að senda ESB-
aðildarumsókn Íslands til Brussel.
Steingrímur J. stóð að því með
Svavari Gestssyni að semja um
Icesave á hinn versta hátt fyrir
þjóðina.
Steingrímur J. stóð að því með
Indriða H. Þorlákssyni að breyta
skattkerfinu til verri vegar og grafa
undan sparnaði og atvinnustarf-
semi.
Steingrímur J. stóð að því með
Atla Gíslasyni að breyta pólitískum
andstæðingi í sakamann.
bjorn.is
Björn Bjarnason
Geir er einn fyrir alla
Sök Geirs er meiri en sök Ingi-
bjargar Sólrúnar, Árna og Björg-
vins. Þau voru bara venjulegir
ráðherrar, en hann var forsætis.
Hann er „einn fyrir alla“, sjálfur
hrunstjórinn. Að vísu eru Davíð
og Halldór Ásgrímsson sekari. En
sök þeirra var fyrnd samkvæmt
lögum um Landsdóm. Þeir verða
teknir í bakaríið á öðrum vettvangi.
Geir svaf óneitanlega á vaktinni í
hruninu. Svaf ekki bara í hruninu,
heldur í heilt ár fyrir hrun.
jonas.is
Jónas Kristjánsson