Fréttablaðið - 30.09.2010, Síða 50
30. september 2010 FIMMTUDAGUR
Flensborgarskóli verður
fyrsti framhaldsskóli lands-
ins til að innleiða hugmynda-
fræðina heilsueflandi fram-
haldsskóli. Það er gert í nánu
samstarfi við Lýðheilsustöð. Í
kjölfarið fylgir 21 framhalds-
skóli sem nú eru að hefja sitt
undirbúningsár.
„Það var ákveðið að byrja á
einum skóla og athuga hvern-
ig gengi og þegar hugmynd-
inni var hent í loftið vorum
við þau fyrstu sem gripum
hana,“ segir Magnús Þor-
kelsson aðstoðarskólastjóri,
spurður hvers vegna Flens-
borg sé svona framarlega í
heilsueflingunni. „Við erum
náttúrulega með flottan skóla
og fullt af íþróttafólki og þótt-
um upplögð í verkefnið.“
Magnús segir rannsóknir
hafa sýnt að heilsuefling auki
vellíðan og árangur allra í
skólasamfélaginu, bæði nem-
enda og kennara. Fyrsta árið
verði áherslan lögð á hollt
mataræði og af því tilefni
hafi matseðill mötuneytisins
verið endurskoðaður en einn-
ig séu Flensborgarar hvattir
til að borða hollt utan skól-
ans.
Heilsueflingunni verður
formlega ýtt úr vör í Flens-
borg á föstudaginn 1. októb-
er með hátíðlegri dagskrá.
Forseti Íslands og ráðherrar
mennta- og heilbrigðismála
eru meðal þeirra sem ávarpa
viðstadda, ásamt forseta bæj-
arstjórnar Hafnarfjarðar og
forstjóra Lýðheilsustöðvar.
Síðan leggja nemendur og
starfsfólk skólans af stað í
göngu og marsera um bæinn
með ráðherra í broddi fylk-
ingar. Skrúðgöngunni lýkur á
Víðistaðatúni þar sem ýmsar
keppnir fara fram og gleðin
verður við völd. - gun
Hollt í Flensborgarskóla
AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRINN Við erum náttúrulega með flottan skóla
og fullt af íþróttafólki og þóttum upplögð í verkefnið,“ segir Magnús
Þorkelsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskuleg móðir okkar,
Adelheid Ingibergsson
(Heidi),
Njarðarvöllum 4, Njarðvík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
26. september. Útförin fer fram frá Ríkissal Votta
Jehóva, Hraunbæ 113, laugardaginn 2. október kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Marín Svavarsdóttir
Hafdís Andersen
Reinhard Svavarsson
Sóley Berthel
Ástkær sonur minn, bróðir okkar,
mágur og frændi,
Sölvi Heiðar Matthíasson
Melasíðu 6i, Akureyri
varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 17. sept-
ember. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni
á Akureyri föstudaginn 1. október kl. 13.30.
Anna María Þórhallsdóttir
Ásta Ottesen Páll H. Jónsson
Gunnlaug Ottesen Friðrik Diego
Þórhallur Ottesen Margrét Jóhannsdóttir
Kristín Ottesen Sigmundur Ásgeirsson
Vilhelm Ottesen
og frændsystkini.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Kristinn Kristmundsson
frá Kaldbak,
fyrrverandi skólameistari
Menntaskólans að Laugarvatni,
Safamýri 73, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Skálholtsdómkirkju laugardag-
inn 2. október kl. 14.00. Jarðsett verður á Laugarvatni.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð
Kristins og Rannveigar í vörslu Menntaskólans að
Laugarvatni. Markmið sjóðsins er að styrkja efnilega
nemendur Menntaskólans að Laugarvatni til frekara
náms. Reikningsnr. 0130-05-578537, kt. 630807-1070.
Rannveig Pálsdóttir
Ari Páll Kristinsson Sigrún Þorgeirsdóttir
Kristrún Kristinsdóttir
Sigurður Kristinsson Guðfinna Hallgrímsdóttir
Jónína Guðrún Kristinsdóttir Jóhann Friðrik Valdimarsson
og barnabörn
Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðbjörg Sigurðardóttir,
Njálsgötu 4a,
er látin. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Hjartans þakkir til Móður Theresu systra, vel-
ferðarsviðs borgarinnar og allra sem sinntu henni
af alúð og umhyggju.
Margrét Sigurðardóttir
Elísabet Sigurðardóttir Eyþór Guðlaugsson
Íris Eggertsdóttir Jón Páll Eyjólfsson
Hildur Rúnarsdóttir Torfi Þór Torfason
Sigurður Eyþórsson María H. Stefánsdóttir
Telma Guðbjörg Eyþórsdóttir
Guðlaugur Andri Eyþórsson
Embla Sól Pálsdóttir
Sóley Úa Pálsdóttir
Ilmur Jara Torfadóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Brynhildur Eydal,
Hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Seljahlíð mánudaginn 27.
september. Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 5. október kl. 15.00.
Anna Inger Eydal Jóhannes Magnússon
Guðfinna Inga Eydal
Matthías Eydal Bergþóra Vilhjálmsdóttir
Margrét Hlíf Eydal Friðrik Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ásgeir Jónsson,
fyrrverandi skókaupmaður,
Garðatorgi 17, Garðabæ,
lést miðvikudaginn 29. september. Útförin verður
auglýst síðar.
Guðríður Jónsdóttir
Erling Ásgeirsson Erla Þorláksdóttir
Anna Ásgeirsdóttir
Ingibjörg E. Ásgeirsdóttir Hallgrímur Jónasson
Ásgeir Ásgeirsson Unnur Steinsson
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragnhildur Geirsdóttir,
lést sunnudaginn 26. september sl. á Dvalarheimili
aldraðra, Borgarnesi. Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 6. október nk. kl. 15.00.
Ástríður Pálsdóttir Páll Hersteinsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorleifur Þorsteinsson,
Álfhólsvegi 84, Kópavogi,
lést á Landspítala í Fossvogi 28. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
8. október kl 15.00.
Ragnheiður Jónasdóttir
Ólöf B. Þorleifsdóttir
Brynjar S. Þorleifsson
Vilhjálmur Þorleifsson
Eva H. Þorleifsdóttir Guðmundur B. Kjartansson
Leifur H. Þorleifsson Hlíf B. Óskarsdóttir
Gróa K. Þorleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hildigunnur Birgisdóttir og Kolbeinn
Hugi Höskuldsson urðu hlutskörpust í
samkeppni um framhlið JL hússins við
Hringbraut 121. Til samkeppninnar efndi
húsfélagið í framhaldi af endurbótum á
framhlið hússins. Þrír listamenn voru
valdir í lokaða samkeppni en síðastliðinn
föstudag voru úrslitin kynnt.
Markmiðið samkeppninnar var að
auðga umhverfið og gera um leið vestur-
bæinn og borgina skemmtilegri ásýndar.
Stefnt er að því að verkið verði sett upp á
næstu vikum. Líftími verksins miðast við
endingu málningarinnar eða um 7-10 ár
en að þeim tíma loknum verður blásið til
nýrrar hugmyndasamkeppni.
Húsfélag JL-hússins var styrkt af
Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAka-
demíunni til verkefnisins. Í dómnefnd
sátu Hugleikur Dagsson fyrir hönd borg-
arinnar, Ingólfur Arnarson myndlista-
maður, tilnefndur af SÍM, og Gunnar Bogi
Borgarsson arkitekt tilnefndur af húsfé-
laginu. Nánari upplýsingar um samkeppn-
ina er að finna á vef Myndlistaskólans í
Reykjavík, www.myndlistaskolinn.is. - rat
Samkeppni um framhlið JL húss
HLUTSKÖRPUST Kolbeinn Hugi Höskuldsson og
Hildigunnur Birgisdóttir við tillögu sína að framhlið
JL hússins. MYND/ÚR EINKASAFNI
Menningarhátíð, svokölluð
Gorgelhátíð verður haldin í
Guðríðarkirkju í Grafarholti
dagana 3. til 10 október, til
að safna fyrir nýju orgeli í
kirkjuna.
Hátíðin hefst með tónlist-
arveislu í kirkjunni á sunnu-
dag, auk þess sem leikkonan
Þórunn Erna Clausen flytur
einleikinn Ferðasaga Guð-
ríðar klukkan 20.
Ótroðnar slóðir verða
farnar í söfnuninni, þar sem
kaupa má gamlar orgelpíp-
ur og veita frjáls framlög til
styrktar. - jbá
Hátíð í Guð-
ríðarkirkju
SÖFNUN Hátíðin er haldin til að
safna fyrir nýju íslensku orgeli í
kirkjuna.
Söngvarinn Friðrik Ómar
stóð fyrir tónleikum í minn-
ingu Vilhjálms Vilhjálmsson-
ar í Salnum í Kópavogi í lok
mars 2008. Nú tveimur árum
síðar hefur verið ákveðið að
flytja sömu dagskrá í nýju
og glæsilegu menningar-
húsi Akureyringa, Hofi, um
næstu helgu.
Valinkunnir listamenn
flytja vinsæl lög eftir Vil-
hjálm á tónleikunum. Upp-
selt er á tvenna tónleika á
laugardag, og hefur því verið
ákveðið að halda þá þriðju á
sunnudag klukkan 17. - jbá
Í minningu
Vilhjálms