Fréttablaðið - 30.09.2010, Síða 52

Fréttablaðið - 30.09.2010, Síða 52
36 30. september 2010 FIMMTUDAGUR BAKÞANKAR Charlotte Böving ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. vísupartur, 6. einnig, 8. kæla, 9. endir, 11. fyrir hönd, 12. móhraukur, 14. tipl, 16. samtök, 17. útsæði, 18. titill, 20. persónufornafn, 21. horfðu. LÓÐRÉTT 1. líkami, 3. golf áhald, 4. tré, 5. skip, 7. raupari, 10. belja, 13. tilvist, 15. laut, 16. máttur, 19. innan. LAUSN LÁRÉTT: 2. stef, 6. og, 8. ísa, 9. lok, 11. pr, 12. drýli, 14. trítl, 16. aa, 17. fræ, 18. frú, 20. ég, 21. litu. LÓÐRÉTT: 1. hold, 3. tí, 4. espitré, 5. far, 7. gortari, 10. kýr, 13. líf, 15. lægð, 16. afl, 19. út. Í alvöru, þú verður að prófa eitthvað nýtt. Þessi klipp- ing er svo 1995 eitthvað! Onei, alltaf þegar ég hef prófað eitthvað nýtt þá hefur það komið hræðilega út! Treystirðu mér ekki? Ég segi ný klipping! Ekki eitt sekúndu- brot! Ég segi nei! Ókei, þá er það tvöfalda atkvæðið mitt sem ræður. Hey! Af hverju færð þú tvöfalt atkvæði? Og... Þú færð nýja klippingu! NEI! Ég ætla að loka hurðinni. Það kemur enginn inn til mín, ekki undir neinum kring- umstæðum. Ha? Ég er móðir þín! Ég kem bara inn í herbergið þitt þegar ég vil! Ókei, ókei. Þú mátt koma inn með einu skilyrði. Að ég banki fyrst? Að þú hringir á undan þér. Og bankir síðan. Ert þú aðal umsjón- armaður barnanna? Ég hef lagt ýmis- legt á mig til að matreiða þessar svínakótilettur! EINS GOTT AÐ ÞIÐ BORÐIÐ ÞÆR! Þannig er það bara! einn barnaís eða Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra kosta aðeins 229 krónur á dag í Stöð 2 Vild. Tryggðu þér áskrift í dag! FYRIR 229 KRÓNUR FÆRÐ ÞÚ: frábæra skemmtun í heilan sólarhring fyrir alla fjölskylduna 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 Fyrir nokkru skrifaði ég pistil um „dug-leg-fasisma“, sem er útbreiddur hér á landi. Um það hvernig við ölum börnin okkar upp við það frá unga aldri að vera dugleg. Sem í sjálfu sér væri kannski ekki alslæmt, ef við notuðum orðið duglegur bara þegar eitthvað væri raunverulega þess virði að hrósa fyrir. Í stað þess að nota það um allt: Mikið ertu dugleg að labba, duglegur á koppnum, dugleg að taka til, róla, leika, hátta, sofa, syngja, dansa, vera stilltur, hlusta, kúka … Listinn er endalaus. HVERS vegna segjum við þetta? Við erum að hrósa, já, en bak við hrósið er falin valdbeiting (þess vegna orðið dugleg-fasismi). Þetta gengur út á að fá barnið til þess að borða meira, leika sér sjálft, vera stillt, pissa í kopp o.s.frv. En stýringin er orðin ósjálf- ráð, við spáum ekki í það hvað við notum orðið stöðugt. Og auk þess sem það stýrir barninu í átt að ákveðinni, æskilegri hegðun, þá verður það að vera duglegur svo stór þátt- ur í sjálfsmynd barnsins að það getur staðið í vegi þess, þegar það er orðið fullorð- ið og langar stundum bara að vera, en ekki gera. HEIMA hjá mér urðu allir skyndilega svo meðvitaðir um dugleg-fas- ismann að enginn þorði lengur að nota orðið. Í staðin sögðum við: „Það er svo dás- amlegt að leika sér“, „mikið er gaman hjá þér að læra heima“, „er maturinn góður, viltu meira?“, „hvað það er gott hjá þér að kúka í koppinn“ o.s.frv. Alls konar nýjar útgáfur, til þess að forðast að nota sögn- ina að vera duglegur. Og ef einhver missti orðið út úr sér, varð sá hinn sami strax nið- urlútur og leit skömmustulega á mig, eins og til þess að segja: „Fyrirgefðu, ég veit að ég sagði bannorðið.“ NÚ var ég allt í einu orðin dugleg-fasistinn með öfugum formerkjum. PERSÓNULEGA þykir mér kostur að við séum meðvituð um það hvaða orð við notum. Orð hafa áhrif á okkur. En að útrýma tilteknu orði úr orðaforða fjölskyld- unnar er ekki mögulegt. Í gærmorgun kom önnur af litlu tvíburunum mínum til mín þar sem ég sat á klósettinu (hjá tveggja ára börnum er ekkert til sem heitir lokaðar dyr eða friðhelgi). Hún horfði á mig með ynd- islega blíðu barnsaugunum og sagði full hróss og viðurkenningar: „Mamma, þú ert svo dugleg að kúka og pissa!“ Ég held ekki að hún hafi verið að reyna að stjórna hegð- un minni. Ég held að henni hafi einfaldlega fundist þetta vera eitthvað til þess að hrósa mömmu fyrir. Dugleg-fasismi 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.