Fréttablaðið - 30.09.2010, Side 60
44 30. september 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Shia LaBeouf, leikarinn úr Transform ers,
skammar bæði Steven Spielberg og
Harr ison Ford í viðtali við breska götu-
blaðið The Sun. Hann hneykslast líka á
Robert De Niro sem hafi einfaldlega náð
ákveðnu takmarki og sé sáttur við það.
Shia hefur skotist með ógnarhraða
upp á stjörnuhimin Hollywood en hann
vakti fyrst mikla athygli í hasarmynd-
inni Transformers. Hann kveðst hins
vegar ekki hafa verið hrifinn af því hvað
Steven Spielberg og Harrison Ford gerðu
með Indiana Jones and the Kingdom of
the Crystal Skull. „Hún stóðst engan veg-
inn þær væntingar sem til hennar voru
gerðar,“ segir Shia í samtali við The Sun.
Myndin sló hins vegar rækilega í gegn
hjá áhorfendum og þénaði vel en gagn-
rýnendur virtust ekki alveg jafn hrifnir.
„Ég var búinn að samþykkja að leika í
Wall Street 2 þegar myndin var frum-
sýnd og hafði áhyggjur af því að ég yrði
tengdur við misheppnaðar framhalds-
myndir. Ég var nýlega búinn að leika í
mynd þar sem mér fannst við kasta rýrð
á orðspor Indiana. Ég vildi ekki endur-
taka þann leik.“
Shia lýkur viðtalinu á því að skamm-
ast yfir ferli Roberts De Niro sem hefur
vissulega ekki verið upp á sitt besta und-
anfarin ár. „Ég er ekki þar sem mig
langar að vera. Og ég vonast til að
ná aldrei þessum De Niro-stað þar
sem maður er einhvers staðar og
er bara ánægður með það,“ segir
Shia. - fgg
> PORTMAN SEM LANE
Það stendur til að endurreisa
Ofurmennis-bálkinn (Superman).
Darren Aronofsky hefur bæst á
lista yfir hugsanlega leikstjóra.
Ef það yrði að raunveruleika
yrði fyrsta val hans í hlutverk
Louis Lane bandaríska leik-
konan Natalie Portman sem
fer á kostum í kvikmynd Aro-
nofsky, The Black Swan.
Þríleikir af öllum stærðum
og gerðum hafa verið vin-
sælir beggja vegna Atlants-
hafsins. Kvikmyndatíma-
ritið Empire fékk lesendur
sína til að velja þá bestu og
þar kemur kannski fátt á
óvart.
1. Hringadrottinssaga: (2001-2003)
Þetta þrekvirki Peters Jackson
var í raun einstakur kvikmynda-
atburður. Bækur J.R.R Tolkien
höfðu átt miklum vinsældum að
fagna og hörðustu fylgjendur bók-
anna leyfðu sér að efast um að
nokkur kvikmyndagerðarmaður
gæti fangað ævintýraheiminn og
andrúmsloftið sem einkennir þessi
meistaraverk Tolkien. Jackson
tókst það hins vegar, myndirnar
þrjár eru augnakonfekt sem eiga
vafalítið eftir að lifa í hugum og
hjörtum áhorfenda.
Jackson tókst meira að segja
að velja réttu leikarana; Viggo
Mort ensen smellpassaði í hlutverk
Aragorn og danska ofurstjarnan
bar uppi myndina. Síðasta mynd-
in, Hilmir snýr aftur, hlaut ell-
efu Óskarsverðlaun og er því ein
af þremur sigursælustu myndum
sögunnar á þeirri verðlaunahátíð.
2. Stjörnustríð (1977-1983)
Alec Guinness hataði Stjörnustríð,
henti öllum aðdáendabréfum án
þess að opna þau og krafðist þess
að Obi-Wan Kenobi yrði drepinn
sem fyrst. Guinness hefur senni-
lega ekki órað fyrir því hver áhrif
Stjörnustríðs-þríleikur George
Lucas myndi hafa á poppmenningu
20. og 21. aldarinnar með endalaus-
um tilvísunum í kvikmyndum sem
hafa ekkert með geimstríð að gera.
Þrátt fyrir að flestir hefðu talið
að það væri nánast ekki hægt að
betrumbæta fyrstu myndina þá
tókst það bæði hjá Irvin Kershner
og Richard Marquand. Sorglegust
eru kannski örlög Carrie Fisher
og Marks Hamil en Harrison Ford
getur vafalítið vel við unað.
3. Aftur til framtíðar (1985-1990)
Delorean-bifreiðin sem þeytti
Marty McFly fram og aftur í tíma
Bestu þríleikir sögunnar
ÞEIR BESTU
Þríleikir eru vinsælt
form í Hollywood og
eiga jafnan auðvelt
með að laða að
kvikmyndaáhorfendur.
Það þarf hins vegar
eitthvað sérstakt til
að gera þríleik sem
heldur algjörlega í
þrjár myndir og það
hefur reynst mörgum
ákaflega erfitt.
Það er fremur hljótt yfir kvikmyndahúsum borgar-
innar eftir allar sprengingar sumarsins. Kannski er
því vel við hæfi að í miðri haustlægðinni sem gengur
yfir höfuðborgarsvæðið skuli vera frumsýnd róm-
antísk mynd, Eat Pray Love, með Juliu Roberts
í aðalhlutverki. Myndin er byggð á samnefndri
bók Elizabeth Gilbert sem hefur setið í efstu
sætum vinsældarlista Bandaríkjanna.
Myndin er sannsöguleg og segir frá höf-
undinum sjálfum, Liz. Hún á allt sem hana
hafði dreymt um, traustan og trygg-
an eiginmann, vinnu og heimili. En
hún finnur á sjálfri sér að hún er
ekki ánægð og einn daginn ákveð-
ur hún að segja skilið við þetta
allt saman, eiginmanninn líka,
og heldur í ferðalag um heiminn í
leit að sjálfri sér. Með önnur hlutverk
í myndinni fara þeir James Franco, Javi-
er Bardem og Billy Crudup en leikstjóri er
Ryan Murphy, einn af höfuðpaurunum á bak við Glee.
Dinner for Schmucks er eftir sama leikstjóra og
gerði Meet the Parents-myndirnar. Og skartar þeim
Paul Rudd og Steve Carell í aðalhlutverk-
um. Myndin segir frá ungum manni
að nafni Tim sem þráir frama. For-
stjóri fyrirtækisins hefur þann undar-
lega vana að halda matarboð þar sem
starfsmennirnir taka með sér mesta
furðufuglinn. Tim telur sig hafa
dottið í lukkupottinn þegar hann
rekst á Barry sem klæðir meðal
annars mýs í föt.
Julia Roberts og gott grín
HAUSTMYNDIR Gott grín með Steve
Carell og rómantísk sjálfsleitarmynd
með Juliu Roberts er það sem
boðið er upp á í kvikmyndahúsum
borgarinnar.
Josh Holloway, sem leikur Sawyer í
Lost-þáttaröðinni, hefur samþykkt
að leika í Mission: Imposs ible-mynd
númer fjögur. Framleiðandi mynd-
arinnar, JJ Abrams, er á fullu við
að finna leikara til að leika í mynd-
inni og hefur þegar fengið Simon
Pegg, Jeremy Renner og Mika-
el Blomkvist-leikarann Michael
Nyqist til að vera með í myndinn.
Sem þýðir að Stieg Larsson-stjörn-
urnar tvær hafa uppskorið laun erf-
iðsins því Noomi Rapace, Lisbeth
Salander sjálf, hefur samþykkt að
leika í Sherlock Holmes tvö.
Tom Cruise og Wing Rhames
verða á sínum stað en leikstjóri
myndarinnar verður Brad Bird.
Sem kemur kannski eilítið á óvart.
Því þótt Bird hafi hlotið tvo Óskara
eru eflaust ekki margir sem þekkja
til hans. Bird er nefnilega maður-
inn á bak við margar af skemmti-
legustu teiknimyndum síðustu ára
og nægir þar að nefna The Incred-
ibles og Ratataouille.
Josh Holloway hefur ekki leikið
í neinu af viti frá því að Lost-ser-
ían rann sitt skeið. Holloway hefur
hins vegar verið vinsæll meðal
kvenfólksins og því ljóst að það
gæti verið jafnt kynjahlutfall í bíó-
húsum þegar Mission:Impossible 4
verður frumsýnd.
Holloway í M:I 4
SÉRSTAKUR HÓPUR
Michael Nyqist sem lék Blomkvist í
Stieg Larsson-myndunum mun leika
í Mission: Impossible-mynd númer
fjögur ásamt Josh Holloway. Leikstjóri
verður Brad Bird, frægastur fyrir teikni-
myndir sínar.
Shia skammar Spielberg og Harrison Ford
ÁKAFUR UNGUR
MAÐUR Shia
LaBeouf hefur
eflaust hlaupið
aðeins fram úr sér
þegar hann skamm-
aði Harrison Ford,
Steven Spielberg og
Robert De Niro.
og rúmi hefur eflaust birst í draum-
um sérhvers manns sem sá Back
to the Future-þríleikinn. Fyrsta
myndin, þar sem Marty fer aftur
til ársins 1955, er frábær gaman-
mynd með ógleymanlegum atrið-
um. Hinar tvær, þar sem Marty
ferðast til framtíðarinnar og reynir
að bjarga syni sínum og svo kúreka-
myndin, náðu ekki alveg að fylgja
frummyndinni eftir en lifa engu
síður ágætis lífi.
4. Leikfangasaga (1995 - 2010)
Bósi Ljósár og Viddi kúreki. Ef það
er til eitthvað barn sem er fætt eftir
1990 og hefur ekki átt sitt Bósa- eða
Vidda-tímabil þá hefur viðkomandi
barni verið miskunnarlaust haldið
frá sjónvarpi og afþreyingarmenn-
ingu. Teiknimyndirnar eru einstak-
lega velheppnaðar, fullar af leiftr-
andi kímni og frábærum söguþræði
ásamt með uppbyggilegri fræðslu
handa smáfólkinu um vináttu. Það
besta við Leikfangasögu er kannski
að myndirnar forðast pólitíska rétt-
hugsun í lengstu lög.
5. Guðfaðirinn (1972-1990)
Ef um væri að ræða keppni í dúett-
um hefði Francis Ford Coppola
staðið uppi með pálmann í hönd-
unum. Því fyrstu tvær myndirn-
ar eru meistarastykki af guðs náð.
Coppola datt hins vegar í hug að
það væri sniðugt að fá dóttur sína,
Sofiu, og Andy Garcia til að leika
par í þriðju myndinni og láta Al
Pacino vera svo veikan að áhorf-
endur heyrðu varla í honum. Þess-
ar hugmyndir sprungu rækilega í
andlitið á Coppola og gerðu það að
verkum að Guðföður-þríleikurinn
er í raun bara tvær myndir. Flestir
hafa afneitað þeirri þriðju.
Við bjóðum Guðrúnu Hrönn
hjartanlega velkomna til starfa á ný!
Tímabókanir í síma:
533-1333/568-9977
KRISTA/Quest
Kringlunni 4-12
3.hæð, norðurhús
www.krista.is