Fréttablaðið - 30.09.2010, Page 70
30. september 2010 FIMMTUDAGUR54
UTAN VALLAR
Henry Birgir Gunnarsson
segir sína skoðun
Ákvörðun stjórnar KSÍ að veita
U-21 árs liðinu forgang á undan
A-landsliðinu að leikmönnum er
einstök og sitt sýnist hverjum um
hana. Reyndar virðist mér fleiri
styðja hana og ég er í þeim hópi.
Ég er á því að KSÍ hafi tekið hár-
rétta ákvörðun aldrei þessu vant.
Strákarnir í þessu U-21 árs liði
er einhver besti hópur sem hefur
komið upp í karlaboltanum lengi
og það þarf að hlúa vel að þeim.
Valið að þessu sinni stendur á milli
einstaks tækifæris, sem er að kom-
ast á lokamót EM, eða spila næsta
tilgangslausan leik með A-liðinu.
Mitt álit er að strákarnir græði
mun meira á þessum tveimur leikj-
um og ef þeim tekst ætlunarverk
sitt fá þeir í ofanálag reynslu sem
er ómetanleg. Mér fannst þetta
því alltaf borðleggjandi ákvörðun
miðað við núverandi stöðu.
Því má heldur ekki gleyma að
ákvörðunin segir meira en mörg
orð um stöðu Ólafs Jóhannes-
sonar landsliðsþjálfara. Ólafur
hefur ekki náð neinum árangri
með landsliðið og aðeins unnið
einn alvöru leik á þremur árum í
starfi.
Sú staðreynd að liðið missteig
sig enn eina ferðina í upphafi
núverandi undankeppni, og í raun
eyðilagði alla möguleika sína á að
gera nokkurn skapaðan hlut, auð-
veldaði ákvörðun stjórnar KSÍ.
Ólafur getur því að mörgu leyti
kennt sjálfum sér um. Ólafur gæti
hæglega litið á málið sem svo að
verið sé að vaða yfir hann á skítug-
um skónum. Auðvitað er verið að
gera það að vissu leyti en hann
veit, eins og allir, að hann
er ekki í sterkri stöðu
til þess að þenja sig.
Hann ákveður því að
þegja þunnu hljóði
um málið.
Ef einhver árang-
ur hefði náðst í þeim
leikjum þá væri allt
annað upp á ten-
ingnum. Þá efa ég
að stjórnin hefði
tekið þessa ákvörð-
un. Hún er örugg-
lega ekki léttvæg
því með þessari
ákvörðun er í raun
verið að gjald-
fella A-lands-
liðið og þjálfarann. Ólafur er aftur
á móti ekki að ná nokkrum árangri
og því er hann réttilega settur á
bekkinn að þessu sinni.
Það er von mín að strákarnir
klári dæmið og fari alla leið. Að
komast á Evrópumót með aðeins
átta þjóðum er einstakur árang-
ur og segir meira en mörg orð
um hversu gott þetta U-21 árs lið
okkar er.
KSÍ þarf að vanda til verka
á næstu árum og sjá til þess að
hlúð verði á réttan hátt að þess-
um strákum svo þeir geti lyft A-
landsliðinu á þann stall sem það á
að vera á. Þessir strákar hafa alla
burði til þess að lyfta þessu lands-
liði á hærra plan en það hefur áður
náð.
Ef það takmark á að nást þarf
líka hæfan mann í brúna. Mun
hæfari en þann sem þar er fyrir
því hann einfaldlega virðist ekki
ráða við starfið. Það ber árangur
síðustu þriggja ára vitni um.
KSÍ steig jákvætt skref í rétta
átt með þessari ákvörðun og það
er von mín að því lánist að taka
fleiri slíkar ákvarðanir á næstu
misserum.
Rétt ákvörðun
hjá stjórn KSÍ
GEIR ÞOR-
STEINSSON,
FORMAÐUR
KSÍ.
FÓTBOLTI Ekki er búið að ganga frá
starfslokum Gunnlaugs Jónsson-
ar hjá Val en honum var sagt upp
störfum í lok tímabils. Við starfi
hans hjá Val tekur Kristján Guð-
mundsson, fyrrverandi þjálfari
Keflavíkur.
Ágreiningur kom upp við starfs-
lok Gunnlaugs sem taldi Val ekki
búið að gera upp við sig að fullu.
Málið endaði á borði lögfræðinga
en verður leyst eftir því sem Frið-
jón Friðjónsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Vals, segir.
„Gunnlaugur á eftir að fá
greidda lokagreiðslu um mánaða-
mótin. Sú greiðsla verður greidd
og við stöndum við gerða samn-
inga,“ sagði Friðjón sem vill ekki
meina að illindi séu í málinu þó svo
leita hafi þurft aðstoðar lögfræð-
inga.
„Það eru engin illindi eða neitt.
Við munum klára þetta mál. Við
stöndum við gerða samninga. Ég
býst ekki við frekari eftirmálum.
Ekki af okkar hálfu.“
Valur ekki búinn að gera upp við Gunnlaug Jónsson:
Munum standa við
gerða samninga
GUNNLAUGUR JÓNSSON Mun fá greitt
frá Val. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Blikarnir heilluðu alla
í sumar með flottum fótbolta og
frábærri liðsheild sem á endanum
skilaði þeim fyrsta Íslandsmeist-
aratitlinum í sögu félagsins en
þessi árangur kom þeim einnig inn
í sögubækurnar. Undanfarna þrjá
áratugi hefur ekkert yngra lið náð
því að vinna titilinn. Fréttablað-
ið hefur reiknað út meðalaldur 30
síðustu Íslandsmeistaraliðanna.
Meðalaldur þeirra leikmanna
Breiðabliks sem náðu að spila tíu
leiki eða fleiri í Pepsi-deild karla
í sumar er aðeins 22,9 ár. Marka-
hæsti leikmaður liðsins er hinn 21
árs gamli Alfreð Finnbogason sem
átti stórkostlegt tímabil en að auki
voru fimm aðrir lykilmenn í sumar
á aldrinum 19 ára til 21 árs.
Ólafur Helgi Kristjánsson,
þjálfari Blika, hefur unnið magn-
að starf með ungt og óharðnað lið
sem hefur þroskast hratt undir
hans stjórn. Það verður erfitt fyrir
lið að bæta þennan árangur Blik-
anna enda hafa níu af tíu síðustu
Íslandsmeisturum á undan verið
með hærri meðaldur en 26 ár.
Í næstu tveimur sætum eru
Framliðið frá 1986 og lið Skaga-
manna frá árinu 1992. Það ætti
að boða gott fyrir Blika í komandi
framtíð því bæði þessi lið unnu
marga stóra titla á næstu árum og
þeir meistaratitlar voru upphafið
að gullkynslóð beggja félaga.
Framarar frá 1986 eru í öðru
sæti en þeir urðu Íslandsmeistarar
1986 á mjög ungu liði þar sem með-
aldur þeirra leikmanna sem spiluðu
tíu leiki eða fleiri var 23,2 ár. Lyk-
ilmenn og leiðtogar Framliðsins
þá voru þó komnir með talsverða
reynslu. Guðmundarnir, Torfason
og Steinsson, sem skoruðu 29 af
39 mörkum liðsins voru 25 og 26
ára og Pétur Ormslev var þarna
28 ára og kominn heim eftir nokk-
ur ár í atvinnumennsku. Framarar
fylgdu þessum Íslandsmeistartitli
eftir með því að vinna stóran titil,
Íslands- eða bikarmeistaratitil,
næstu fjögur sumur og öll árin var
Ásgeir Elíasson þjálfari liðsins.
Skagaliðið frá 1992 er í þriðja
sæti á listanum en það lið er eina
liðið sem hefur orðið Íslands-
meistarar sem nýliðar í deildinni.
Meðal aldur þeirra leikmanna sem
spiluðu tíu leiki eða fleiri með
Skagaliðinu þetta sumar var 23,6
ár. Tvíburarnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir slógu í gegn þetta
sumar aðeins 19 ára gamlir og
jafnaldri þeirra Þórður Guðjóns-
son var líka í stóru hlutverki hjá
liðinu sem var þjálfað af Guðjóni
Þórðarsyni. Fyrirliði liðsins var
hins vegar reynsluboltinn Lúkas
Kostic sem þá var 34 ára gamall
og hækkaði því meðalaldurinn
talsvert enda hefði hann verið 22,8
ár án hans. Mikilvægi Lúkasar
var þó mjög mikið í þessum fyrsta
Íslandsmeistaratitli af fimm sem
Skaginn vann á árunum 1992 til
1996 en liðið vann bikarinn einnig
1993 og 1996.
Það þykir öllum ljóst að Blikar
eru með efnivið í sína eigin gull-
kynslóð alveg eins og þessi tvö
fyrrnefndu lið. Þeir munu eflaust
missa stráka út í atvinnumennsku
en það gerðu Framarar líka 1986
(Guðmundur Torfason) sem og
Skagamenn 1992 (Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir). Það sem eftir
stendur er að í liðinu eru ungir og
hæfileikaríkir leikmenn sem hafa
alla burði til að halda sigurgöngu
félagsins áfram sem hófst með bik-
armeistaratitlinum síðasta haust.
ooj@frettabladid.is
Blikar yngsta meistaraliðið
Fréttablaðið skoðaði meðalaldur allra Íslandsmeistaraliða síðustu þrjátíu ára og
komst að því að Blikar eru með yngsta Íslandsmeistaraliðið. Tvö þau næstu á
eftir þeim, Fram 1986 og ÍA 1992, hófu mikla sigurgöngu í kjölfarið.
EINN AF REYNSLUBOLTUNUM Arnór Sveinn Aðalsteinsson með bikarinn en þrátt fyrir
að vera aðeins 24 ára er hann með þeim elstu í Blikaliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Yngstu meistararnir
Reiknað út frá fæðingarári og með telj-
ast þeir sem spiluðu 10 leiki eða fleiri.
Yngstu Íslandsmeistaralið 1980-2010:
Breiðablik, 2010 22,9 ár
Fram, 1986 23,2
ÍA, 1992 23,6
KA, 1989 23,9
ÍBV, 1997 24,1
Víkingur, 1981 24,3
ÍA, 1994 24,7
ÍA, 1983 24,8
Breiðablik 2010
Meðalaldur: 22,9 ár (22,6 ár allt liðið)
Fyrirliði: Kári Ársælsson 25 ára
Markahæstur: Alfreð Finnbogason 21 árs
Aðrir lykilmenn:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson 24 ára
Elfar Freyr Helgason 21 árs
Finnur Orri Margeirsson 19 ára
Guðmundur Kristjánsson 21 árs
Ingvar Þór Kale 27 ára
Jökull I. Elísabetarson 26 ára
Kristinn Jónsson 20 ára
Kristinn Steindórsson 20 ára
Fram 1986
Meðalaldur: 23,2 ár (23,2 ár allt liðið)
Fyrirliði: Guðmundur Steinsson 26 ára
Markahæstur: Guðmundur Torfason 25 ára
Aðrir lykilmenn:
Friðrik Þór Friðriksson 22 ára
Gauti Laxdal 20 ára
Jón Sveinsson 21 árs
Kristinn Rúnar Jónsson 22 ára
Ormarr Örlygsson 24 ára
Pétur Ormslev 28 ára
Viðar Þorkelsson 23 ára
Þorsteinn Þorsteinsson 22 ára
ÍA 1992
Meðalaldur: 23,6 ár (22,8 ár allt liðið)
Fyrirliði: Luca Lúkas Kostic (34 ára)
Markahæstur: Arnar Gunnlaugsson (19 ára)
Aðrir lykilmenn:
Alexander Högnason 24 ára
Bjarki Gunnlaugsson 19 ára
Haraldur Hinriksson 24 ára
Haraldur Ingólfsson 22 ára
Kristján Finnbogason 21 árs
Ólafur Adolfsson 25 ára
Sigursteinn Gíslason 24 ára
Þórður Guðjónsson 19 ára
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN verður í íslenska landsliðinu sem mætir Portúgölum í undankeppni EM á Laugardals-
velli 12. október. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Eiður Smári, sem er nú á mála hjá Stoke, var ekki valinn í landsliðið
þegar Ísland mætti Norðmönnum og Dönum í fyrstu leikjum sínum í undankeppninni þar sem að hann skorti leikæfingu að
mati Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara.sport@frettabladid.is
- vélar
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000N1 VERSLANIR
Þráðlaus 9mm
myndavél með barka
og 3,5” LCD skjá
Tilboðsverð
39.900 kr.
16108803AL
SKOÐUNAR-
MYNDAVÉL