Morgunn - 01.06.1932, Side 36
30
M O R G U N N
sem frá eilífð var til hjá Guði, og í himneskri fortilveru
hallaðist að brjósti föðurins; úr þessari kenningu vil eg
á engan hátt gera lítið, hún er þvert á móti einn ríkasti
þátturinn í trúarlífi mínu, Kristur er í trúarvitund minni
hinn eilífi guðsson, logos, orðið, sem var í upphafi hjá
Guði, en páskarnir hafa ekki gefið mér þá sannfæring.
Upprisufögnuðinn og tilfinninguna fyrir nálægð anda-
heimsins fann eg ekki hjá neinum þýzkum presti, sem eg
hefi hlustað á, að einum undanteknum. Eg ætla að nefna
yður eitt dæmi þess skilningsleysis á hlutverki sálarrann-
sóknanna, sem jafnvel ríkir meðal frjálslyndra guðfræð-
inga á Þýzkalandi. Fyrir all-mörgum árum tóku ágætir og
víðsýnir þýzkir guðfræðingar í Marburg að gefa út tímarit
eitt, sem nefnist „Die christliche Welt“. Kemur það út enn
og nýtur almennrar virðingar í heimi prókstantiskrar guð-
fræði; í einu af fyrstu heftunum birtist viturleg og sann-
gjörn grein um sálarrannsóknirnar, en ekki hefir þeimlitist
á blikuna að halda lengra út í þá sálma, og var svo rækilega
fyrir þesskonar skrif tekið, að mér er ekki kunnugt um,
að síðan hafi birst nokkur grein í þeim anda í þessu tíma-
riti. í þýzku guðfræðinni varð eg hvergi var spiritistiskra
áhrifa, utan lítillega hjá kennara mínum, próf. Heiler,
frægum guðfræðing og hinum ágætasta manni, sem nú
fyrir nokkrum vikum hefir tekið við biskupstign sýrlenzku
kirkjunnar. Ný-guðfræðin, sem svo er nefnd hér, er naum-
ast til lengur í föðurlandi sínu, Þýzkalandi, en margt úr
henni lifir þó enn, t. d. hin ríka tilhneiging hennar til þess
að neita afdráttarlaust kraftaverkunum sem raunveru-
legum fyrirbrigðum, er gerst hafi. Þegar kennari minn,
próf. Heiler, var að flytja fyrirlestur um kraftaverk nýja
testamentisins, vissi hann um vantrú margra stúdenta á
þau og hann valdi skynsamlegustu leiðina: hann bar fyr-
ir sig reynslu parapsychologanna, sem m. a. fást mikið við
fysisk miðlafyrirbrigði. Einn hinn frægasti þessara sál-
könnuða, sem eg nefndi, er dr. Konstantin Österreich;
próf. Heiler sagði okkur stúdentunum, að dr. österrcich