Morgunn


Morgunn - 01.06.1932, Page 88

Morgunn - 01.06.1932, Page 88
82 MORGUNN ar, minkar sveifluhraðinn og hún verður aftur sýnileg,. fyrst sem gufa, og svo sem vatn. Okkar sanni líkami er eterlíkaminn, og jarðlíkam- inn að eins verkfæri, sem notað er hér á jörðu, en eter- líkaminn er samstiltur eterheiminum, enda þótt hann geti eigi orðið hans var meðan hann er í sambandi við efnið. — Þegar menn deyja, losna þeir við jarðlíkamann og þá tekur eterlíkaminn til starfa í eterheiminum, óhindr- aður af þeim jarðneska, enda verður alt eins raunveru- legt fyrir honum í eterheiminum eins og það áður var á jörðinni. Menn flytja alt með sér inn í eterheiminn, nema jarðlíkamann: alla hæfileika sína, skapgerðina, per- sónuleikann, minnið, vináttuböndin, því þetta eru alt eiginleikar eterlíkamans. Mönnum finst umhverfið á, næsta stigi lífsins mjög líkt og það, sem þeir þekkja hér, en þó er það þannig, að ástandið fer að miklu leyti eftir hugarástandi þeirra. Þeir, sem eru á sama sviði og hafa svipað hugarfar, skynja hið sama, en sviðin eru mörg, og þó menn geti flutt sig niður á við og- skynjað það, sem gerist á lægri sviðum en þeirra eig- in, þá geta þeir ekki skynjað neitt eða starfað á hærra sviði en þeir eru hæfir til að starfa á. Þess vegna geta tveir framliðnir menn komið á fund og báðir talað við fundarmenn, þó þeir stundum viti ekki hvor af öðrum. Segir höfundurinn eina sögu af slíku fyrirbrigði, sem mig langar til að segja yður. Kona ein, sem hann var kunnugur í Glasgow, and- aðist. Viku eftir að jarðarförin hafði farið fram, var Mr. Findlay á fundi hjá Mr. Sloan. Á þeim fundi kom sonur konunnar, Cecil að nafni, sem fallið hafði í stríð- inu, og lét í ljós ánægju sína yfir því, að móðir hans væri nú komin. Mr. Findlay spyr þá, hvort hún sé hjá hon- um núna, og hann sagði að hún væri það, en hún vissi ekki ennþá alveg að hún væri komin yfir um.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.