Morgunn - 01.06.1953, Blaðsíða 11
MORGUNN
5
um þær mundir, sem deilan geisaði þar, og hann sagði
. frá henni í einu dagblaða höfuðstaðarins, er
„ . J hann kom heim. Sennilega hafa menn almennt
á IsIandiS undrun yfir því, að um þessa hluti
skyldi standa deila hjá frændþjóðinni. En þá
gerðist það, að einn af samherjum Hallesbys hér á landi
reis upp til að afsaka þetta tiltæki hins norska prófessors.
Og það varð mörgum alvarlegt íhugunarefni, að þetta
skyldi gera framkvæmdarstjóri K.F.U.M. í Reykjavík,
maður, sem trúað er fyrir kristilegu uppeldi ungra manna
og stúlkna. Menn spurðu undrandi: Er þessi kenning einn
liðurinn í starfi því, sem í K.F.U.M. er unnið fyrir ungt
fólk? Er ekki ástæða til að foreldrar í höfuðstaðnum fái
að vita, hvað unga fólkinu er þarna kennt? Er þessi leið-
in til þess að laða unga fólkið að kristindóminum? Er unga
fólkinu þarna kennt, að foreldrar þess, sem ekki hafa tek-
ið afturhvarfi fyrir dauðann á Hallesby-vísu, fari beint
til helvítis og kveljist þar um alla eilífð?
Spíritistar eru ekki í neinum vafa um, að víti er til, en
þeir trúa ekki á eilífa fordæming nokkurrar mannssálar.
Hinar sálrænu frásagnir segja margar frá hræðilegum af-
drifum látinna manna. Þar eiga þær samleið með því, sem
vitranamenn fyrri alda og fram til þessa dags telja að sér
hafi vitrast. Má í því sambandi minna á sýnir hins heit-
E . trúaða vitranamanns, Sadhu Sundars Singh,
.... . á vorri öld. En spíritistar hafa lært að líta
er eilíf ^ sorSlega ófarnað sálnanna hinu meg-
in grafarinnar sem uppeldisráðstöfun hins
alvitra og algóða Guðs, en ekki sem refsing frá Guði, og
ekki sem eilífa kvöl. Þeir líta svo á, að þjáningin hinu
megin grafarinnar sem afleiðing illrar jarðlífsbreytni, eigi
það eina markmið, að koma vitinu fyrir vitstola mannssál,
að í skóla þjáninganna annars heims eigi hún að læra það,
sem henni tókst ekki að læra í jarðlífinu. Þeir trúa því,
sem stendur í Júlíu-bréfunum, sem rituð voru ósjálfrátt
og fræg eru orðin, að það sé sæla himnaríkis að tæma hel-