Morgunn - 01.12.1948, Qupperneq 4
150
MORGUNN
um fögnuði. Ámaðaróskir bárust í bundnu og óbundnu
máli, en milli erindanna voru fluttir vandaðir tónleikar.
Annar þáttur hátíðahaldanna var sá, að S.R.F.l. hafði
samfellda dagskrá í ríkisútvarpinu afmæliskvöldið sjálft,
31. marz. Þar fluttu þeir ávörp, forseti félagsins, séra
Jón Auðuns, dómkirkjuprestur, séra Kristinn Daníelsson,
præp. hon., sem sakir sjúkleika hafði talað inn á plötu
heima hjá sér, og séra Jakob Jónsson. Frú Soffía Har-
aldsdóttir las upp úr ritverkum Haralds Níelssonar, pró-
fessors, og cand. juris. Ævar Kvaran, leikari, las upp kafla
úr sögunni Sálin vaknar eftir Einar H. Kvaran, en á milli
þessara atriða voru fluttir tónleikar.
Þriðji þáttur hátíðahaldanna fór fram í Fríkirkjunni í
Reykjavík sunnudagskvöldið 4. apríl, og var kirkjan troð-
full áheyrenda. Organisti kirkjunnar, hr. Sigurður Isólfs-
son og söngflokkur kirkjunnar önnuðust tónleikana, en
erindi fluttu hr. Einar Loftsson, kennari, séra Jón Thór-
arensen og séra Jón Auðuns. Eru erindi þeirra prentuð
hér í ritinu, nema erindi séra J. Th., sem væntanlega
kemur síðar, en handrit hans varð fyrir óhappi, er það
átti að fara í prentun.
Flest dagblaðanna í Reykjavík fluttu fræðandi greinar
um málið þessa dagana, en MORGUNN kom út 31. marz
og var aðalefni hans helgað aldarsögu málsins. Var upp-
lagið óvenju stórt, en seldist svo vel, að sérprentun er nú
að koma á markaðinn.