Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Síða 6

Morgunn - 01.12.1948, Síða 6
152 MORGUNN komst á. Hún er fólgin í því, að það fannst með þeim hætti, að hver mannssál getur gengið úr skugga um það, ef hún hefur einlægan vilja á því. Þessi óumræðilega dýr- lega uppgötvun var gerð 31. marz 1848. Og það var ofur- lítið, fátækt og fáfrótt stúlkubarn, sem gerði hana. Sjald- an hafa rætzt átakanlegar ummæli meistarans okkar um það, sem er hulið spekingum, en opinberað smælingjum. Ég ætla ekki að fara að fjölyrða um þá atburði. Flest ykkar þekkja þá eins vel og ég. Og þó að þeir þyki enn ekki þess verðir að vera settir í mannkynssögur, þá eru samt nógar bækur til, sem fræða menn um þá. Og ég ætla ekki heldur að fara að rekja sögu spíritismans. 1 stað þess ætla eg að benda ykkur á, með örfáum orð- um, hvernig þessari uppgötvun og þeirri viðleitni allri, sem stendur í sambandi við hana, hefur verið tekið. Árangur sambands-rannsóknanna hefur að mjög miklu leyti verið vísindalegs eðlis. Þær hafa umturnað sálar- fræðinni. Ekki þeirri sálarfræði, sem kennd er hér í presta- skólanum, heldur þekkingu þeirra manna á mannssálinni, sem vita nokkuð um hana. Þær hafa leitt í ljós stórmerki- lega hæfileika mannsandans. Þær hafa leitt í ljós öfl, sem áður voru ókunn. Þær eru vel á veg komnar með gagn- gerða byltingu á hugmyndum manna um efnið sjálft. Væri ekki iíklegt, að annað eins og þetta æsti að minnsta kosti forvitni vísindamannanna? Það æsti lengi vel ekkert hjá þeim annað en fyrirlitninguna. Er ekki það út af fyrir sig óumræðilega kynlega dularfullt fyrirbrigði? Hin hlið sambands-rannsóknanna veit að trúarbrögð- unum, stendur í nánu sambandi við þau. Þær hafa ekki eingöngu sannað, að lífið heldur áfram eftir dauðann. Þær hafa líka gefið stórmerkilegar bendingar um það, hvernig því lífi sé háttað. Þær hafa fært sönnur á það, að vitsmunimir lifa og að kærleikurinn lifir. Þær hafa líka fært sönnur á það, að hið illa lifir hinumegin, þangað til sól kærleikans eyðir því. Þær hafa margfaldað ábyrgð- artilfinninguna. Og þær hafa ekki aðeins fært sönnur á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.