Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Page 7

Morgunn - 01.12.1948, Page 7
MORGUNN 153 það, að boðskapur Krists hefur verið áreiðanlegur. Þær hafa líka gefið okkur ljósar bendingar um það, að í þeim boðskap sé fólginn dýpri sannleikur en við getum gert okkur að fullu ljóst á því stigi, sem við stöndum nú. Væri ekki líklegt, að prestarnir færu nú að leggja við hlustirnar? Yfirleitt hafa þeir ekki gert það. Viðbárurn- ar eru margvíslegar. Að það sé syndsamlegt að afla sér vitneskju um ráðsályktanir guðs — að gera það, sem maður getur, til þess að læra að þekkja hans vegi og hans vilja. Að við þurfum engar aðrar sannanir annars lífs en þær, sem við höfum fengið fyrir mörgum öldum. Þetta segja þeir í sömu andránni, sem þeir kveina og kvarta út af því, að mennimir taki ekki gildar þær sannanir. Á þessu stagast þeir, jafnframt því sem þeir sjá sorgina og eymdina og syndina og rangsleitnina hvarvetna í heim- inum, sjá allt þetta illa, sem þeir vita að stafar af því, að sannanirnar fyrir kærleiks-ráðsályktunum guðs ná ekki valdi á hugum mannanna. Og þeir hnykkja á viðbár- unum með ýmsum endileysum líkri þeirri, sem nýlega heyrðist á virðulegasta prédikunarstól þessa lands: að guð hafi aldrei ætlazt til þess, að við kæmum fram fyrir hann hlaðnir sönnunum. Eins og við séum ekki alltaf að koma fram fyrir hann, á hverju augnabliki lífsins! Og eins og hann sé ekki alltaf að láta okkur sæta ábyrgð fyrir vitleysuna og vanþekkinguna og vanræksluna á því að skilja hans lögmál og hans vilja og hans ráðsályktanir! Og eins og sannanir sé nokkuð annað en óræk vissa um sannleikann! Við urðum mörg, sem hér erum, samferða út í Viðey á páskadaginn. Þegar við vorum að ganga þar um órækt- armóana, fulla af ágætustu gróðrarmold, vorum við að tala um það, að gaman væri að sjá þetta allt orðið að túni. Þá datt mér í hug stúlka norður í Eyjafirði. Faðir hennar bjó á litlu koti. Túnið var örlítið. En út frá því lágu rennsléttar engjagrundir, sem ekkert þurftu annað on áburð til þess að verða að túni. „Ætlar hann pabbi

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.