Morgunn - 01.12.1948, Síða 21
MORGUNN
167
Því miður var kristin kirkja ekki vel vopnum búin til
að mæta þessari öldu efnishyggju og vantrúar, og hinum
sívaxandi efasemdum um framhaldslífið gat hún ekki
niætt með öðru en því að kalla á trú mannanna á það,
sem þeir voru milljónum saman að missa trúna á. Grund-
völlur kristninnar var ekki boðaður sem sannanleg stað-
reynd, eins og upprisan var í byrjun. Ný kynslóð var að
koma fram, sem trúboð kirkjunnar náði ekki til. Reynslu-
vísindin kröfðust sannana um eilífðarmálin eins og um
annað.
Þá gerðist sá atburður í smábænum Hydesville í Banda-
Ukjunum, sem átti eftir að reynast örlagaríkari en nokk-
úrn mann gat grunað.
1 fátæklegu húsi í Hydesville bjó fjölskylda, sem bar
®ttarnafnið Fox. Af systkinunum, sem farin voru að
heiman, kemur ekkert við sögu spíritismans annað en
systirin Leah, sem stundaði um þetta leyti hljómlistar-
kennslu í öðrum bæ og reit síðar á ævinni merkilega bók
útn starf systra sinna og vandamál, sem upp komu í sam-
bandi við það.
Hjá foreldrunum voru tvær systur heima, Margaret, 14
ara, og Kate, 11 ára. Einhverrar óskiljanlegrar ókyrrðar
hafði orðið vart í húsinu um skeið, en um kvöldið 31.
ú^arz 1848, þegar fjölskyldan ætlaði að fara að sofna, tóku
hávær högg að heyrast í herberginu, og fljótt varð ber-
sýnilegt, að viti gædd vera væri þarna að verki. Ósýni-
leSi gesturinn stafaði nafn sitt, sem engum þarna var kunn-
uSt, hann kvaðst hafa verið umferðasali, sagðist hafa
Verið myrtur í húsinu ekki allmörgum árum áður, og lík
Sltt væri grafið undir kjallaragólfinu. Þótt áliðið væri orð-
■ kvölds, þusti fólkið úr bænum saman, og höggin dundu
11111 herbergið, á veggjum og lofti. Það var ekki fyrr en
40 árum síðar, að lík myrta mannsins fannst undir
hjallaragólfinu og önnur þau ummerki, sem sönnuðu alla
hessa furðulegu sögu.
iVTeð þessu hófst miðilsstarf þeirra systra, sem engan