Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Page 30

Morgunn - 01.12.1948, Page 30
Séra Jón Auðuns: ísleifur Jónsson. Húshv. 22. okt. ’lf8. „Vinur, flyt þig hærra upp“. 1 einni af líkingum sínum segir Jesús oss frá manni, sem boðið hafði verið til veizlu, og í yfirlætisleysi sínu hafði maður þessi tekið sér sess utarlega í veizlusalnum. En þegar sá, sem veizluna hélt, gekk inn í veizlusalinn, kom hann til hins auðmjúka gests og sagði við hann: „Vinur, flyt þig hærra upp.“ „Vinur, flyt þig hærra upp“, — þessi orð komu mér í huga, er mér var flutt fregnin um andlát Isleifs Jóns- sonar, en hann hafði ég reynt að dýrmætari vináttu en flesta aðra menn. Vinur, segi ég, því að við fáa menn var eins sjálfsagt og eðlilegt að nota það fagra orð sem við hann. Vinui’ er falslaus maður, hjartahreinn, traustur og öruggur, sá, sem ekkert óhreint kemur nálægt, sá, sem lýkur upp hjarta sínu fyrir vinunum vegna þess, að þar hefur hann ekkert að fela. En á þessa eiginleika Isleifs Jónssonar bar aldrei skugga, og barnið í sálinni, hinn barnslega hrein- leika, hafði honum tekizt frábærlega vel að varðveita, eins og allir, sem þekktu hann, munu á einu máli um. En hér er ég að tala um vin, og þá ætti ég að byrja þar, sem hann reyndist vinurinn mestur, og það var 1 heimilinu með ástvinum sínum. Vér sáum það öll, hve mikill heimilisfaðir hann var, og þó vissi það enginn bet- ur en þú, kæra vinkona, sem nauzt þeirrar hamingju að standa hjarta hans næst. Af deginum ykkar leggur þanu

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.