Morgunn - 01.12.1948, Page 46
192
MORGUNN
gekk úr Brezka Sálarrannsóknafélaginu og með honum
tugir ágætra manna, sem voru orðnir þreyttir á sam-
starfinu við þá sálarrannsóknamenn, sem rannsökuðu af-
burða miðla árum og árum saman, fengu að sjá stórfelld
fyrirbæri, en þorðu engar ályktanir að draga af reynslu
sinni og rannsóknum. En það, hve leiðir sálarrannsókna-
mannanna og spíritistanna hafa fjarlægst, hefur orðið
spíritistunum til tjóns. Margir þeirra hafa af þessum á-
stæðum misst nokkuð kjölfestu, misst sjónar af sjálfsögð-
um kröfum til vísindalegra sannana, en gengið lengra og
lengra inn á trúarbrautina og farið að skaða málið með
ýmis konar ósannanlegum fullyrðingum, og stefnan þann-
ig í ríkara mæli en æskilegt hefði verið fengið á sig
trúarblæ.
1 fyrirlestri þeim, sem ég hlýddi á, reyndi Mr. Murtoh
að bera sættarorð milli þess, sem hann taldi vera öfga>
hóflausra renginga sumra sálarrannsóknamannanna ann-
ars vegar og jafnhóflausrar trúgimi sumra spíritistanna
hins vegar. Hann harmaði það, að spíritistarnir hefðu alh
of mikla tilhneiging til að gera félög sín að sértrúar-
flokkum, og fjarlægðust með því hinn sanna þekkingat'
grundvöll spíritismans. Hann taldi það mikið mein, að
helztu miðlarnir hefðu nú í seinni tíð forðazt Brezka Sál'
arrannsóknafélagið, svo að það hefði því nær enga mikU'
hæfa miðla, til að gera tilraunir með. Hann afsakaði
ekki óbilgimi þá, sem þetta félag hefði oft og tíðum sýn*
góðum miðlum, en hann benti á, að spíritismanum vmri
hin mesta nauðsyn á, að miðlarnir fengjust til að vinna
með vísindamönnunum, til þess að sannfæra þá, því a^
enda þótt spíritistafélögin hefðu unnið geypilega mikid
verk að því að breiða út þekkinguna á málinu og afla
því fylgis, hefði þó miklum mun meira verið um hitt vert>
sem frægir vísindamenn hefðu birt almenningi um ranh'
sóknir sínar og niðurstöður.
Ég hirði ekki um að rekja efni þessa ágæta erindis
hins kunna ritstjóra elzta spíritistablaðs veraldarinnaf*