Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Side 70

Morgunn - 01.12.1948, Side 70
216 MORGUNN getur ekki átt við þjóðkirkjuna íslenzku. Brezka kirkjan hefur engan Harald Níelsson átt, og þessvegna er afstaða kirkjufólks og kennimanna þar í landi á ýmsan hátt önn- ur en hér hjá oss. Þó getur íslenzka kirkjan haft gott af að staldra við margt það, sem þessi höf. segir um kirkj- una, kennisetningarnar og eilífðarmálin. Þriðji kaflinn er um spíritismann almennt, og sá fjórði um bækurnar, sem höf. hefur stuðzt við, en þar er getið sumra hinna merkustu bóka spíritismans um lífið eftir dauðann. Er þessi kafli góður leiðarvísir fyrir þá, sem fara vilja lengra út í að kynna sér þau mál. Eru allar þser bækur, sem vitnað er í, til í bókasafni Sálarrannsóknafé- lags Islands. Fimmti kaflinn er um sannanimar fyrir framhaldslíf- inu, en hann er of stuttur til þess að gera því efni veru- leg skil, og þá kemur sjötti kaflinn, sem vegna ónákvæms prófarkalesturs er ranglega tölusettur og er um dauðann á vigvellinum. Þessi þáttur bókarinnar mun mörgum þykja hinn athyglisverðasti og ekki sízt vegna þess, að allur er kaflinn frásagnir, sem tjá sig komnar frá mönnum, sem féllu í síðustu styrjöldinni. Ekki er rétt að eyðileggja á- nægjuna fyrir þeim, sem eiga eftir að lesa bókina, með því að birta hér neina af þeim frásögnum, en einhvern mun undra það, sem hér er sagt frá, er hermennirnir vakna eftir andlátið. Þá kemur sjöundi kaflinn um „aðferðir og skilaboð“, en sá áttundi er um „heimana", en þar segist höf. vera kom- inn að aðalefni bókar sinnar. Þar, eins og í níunda kafl' anum „um vítin“ og tíunda kaflann um „lífið á himnum“- vitnar hann til nokkurra kunnustu höfunda og þó einna mest í hin miklu rit, sem ágætispresturinn Vale Owen reit ósjálfrátt um þau efni í skrúðhúsi kirkjunnar sinnaf í Orford. Þykir Dowding lávarði orðið einkennilega hljótt um þau merkilegu rit, einnig meðal spíritistanna sjálfra- 1 ellefta kaflanum er allýtarlega farið út í efni bókarinn- ar, Bréf frá látnum, sem lifir, er kom út í íslenzkri þý^'

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.