Morgunn


Morgunn - 01.12.1957, Page 7

Morgunn - 01.12.1957, Page 7
MORGUNN 93 viðhorfin, líf og breytni þeirra, sem sannfæringuna um lífið eftir dauðann öðlast. Því miður líta ekki allir, sem við spíritismann fást, á hann af þessum víða sjónarhóli. Á hinu ber því miður langt um of, að fólk elti tilraunir og miðilsfundi, án þess hin sálræna reynsla fái að móta lífið, lífsviðhorfin. Það er sjálfsagt afleiðing þess, hve spíritisminn er öfl- ugur í Bretlandi, að spumingunni um lífið eftir dauðann x ,, ... er oftar hreyft í brezkum kirkjublöðum Lundunabiskup , .. . . , .L , . . ... en 1 kirkjubloðum annarra þjoða, þeim tGKur tii mais ». . • «r , , . sem ritstj. Morguns eru kunn. S.l. vetur birti vikublaðið Church Times greinaflokk eftir ýmsa kunna kirkjumenn brezka. Þar kenndi að vonum ýmissa grasa og mundi lesendum Morguns finnast sitthvað af því vera ritað fremur barnalega og æði bundið gömlum kredd- um, sem greinarhöfundar gagnrýndu ekki, en báru samt á borð. Aprílhefti Kirkjuritsins birti á liðnum vetri eina beztu greinina, eftir dr. Wand Lundúnabiskup, í þýðingu annars ritstjórans, séra Gunnars Árnasonar. Þar er hóf- lega haldið á málinu og mælt af víðsýni. Biskupinn ræðir um örlög þeirra, sem ekki trúa. Hann ræðir um heiðingj- ana, sem uppi voru fyrir Krists burð, og segir: „Þeir, sem ekkert hafa þekkt til fagnaðarerindisins, en beina þó lífi sínu á þá braut, er þeir vita bezt, þeir eru umluktir náð Guðs og njóta liðveizlu Andans, jafnvel þótt þeir þekki hann ekki. Tertúllían sagði, að andinn væri krist- inn að eðlisfari, Justínus píslarvottur, Klemens frá Alex- andrínu og Órígenes hugsuðu sér allir, að heimspeking- arnir miklu (heiðnu) hefðu átt sinn hlut í því, að undir- búa komu fagnaðarerindisins og voru sannfærðir um, að þeir myndu hljóta fyrir það sín laun í öðru lífi“. Biskup- inn vísar á bug kenningu lúterska rétttrúnaðarins á ger- spillingu manneðlisins. Hannn bendir á kenningu Ntm. um að Kristur hafi predikað fyrir öndunum í varðhaldi og vill bersýnilega draga af því þá ályktun, að möguleik- ar til afturhvarfs séu til eftir dauðann, hann talar um

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.