Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 49

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 49
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2010 3 Gunnari Karli Gíslasyni, mat- reiðslumeistara á Dill Restaur- ant í Norræna húsinu, hefur ávallt fundist hrútspungar, svið, lifrarpylsa og blóðmör vera herramannsmatur. Hann komst á bragðið í eldhúsinu hjá föð- urömmu sinni, þar sem hann aðstoðaði gjarnan við sláturgerð sem barn. „Þarna var ég bara lítill gutti að hjálpa ömmu Huldu [Gísla- dóttur], í eldhúsinu heima á Spít- alavegi á Akureyri, að sauma saman vambir og hræra í stór- um bölum og fannst þetta allt saman einstaklega spennandi og ljúffengt á bragðið,“ rifjar Gunn- ar upp. Hann getur þess að afa sínum, Sigurgeiri Jónssyni, hafi hins vegar fundist lítið koma til aðfara þess stutta. „Nei, honum fannst þetta vera hálfgert kvenmannsverk, þótt hann hafi reyndar látið hafa sig út í þetta sjálfur, blessaður,“ segir hann og brosir. Gunnar Karl þakkar þó afa sínum ekki síður en ömmu fyrir að hann hafi snemma lært að kunna að meta gott slátur. „Við afi vorum miklir vinir og hann kenndi mér að velja bestu bitana; sagði að ekkert slægi þeim feitu við og þá speki hef ég haft á bak við eyrun allar götur síðan, líka í starfi mínu sem matreiðslumaður á veit- ingahúsinu Dill.“ Gunnar Karl var til í að miðla til lesenda af reynslu sinni af slát- urgerðinni, reyndar þó með nokkuð nýstár- legri nálgun. „Fyrst ég er að þessu á annað borð er kannski ekki úr vegi að bregða út af vana og bæta við slátrið nokkrum skemmtilegum kræsingum,“ útskýrir hann og gefur uppskrift þar sem nýupp- teknar íslenskar kartöflur, jurt- ir og lambafillet kemur við sögu. „Og svo auðvitað fitan, sem er afar mikilvæg,“ bætir hann við. roald@frettabladid.is Feitir bitar eru langbestir Gunnari Karli Gíslasyni, matreiðslumanni á Dill restaurant, finnst fátt jafnast á við íslenskt slátur. Frétta- blaðið fékk Gunnar til að bregða á leik með þennan þjóðlega mat og búa til úr honum dýrindis veislu. Gunnar Karl segir tilvalið að breyta aðeins til og bæta nokkrum nýjungum við slátrið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gunnar segist hafa lært sláturgerð heima í eldhúsi ömmu sinnar og afa. Maturinn er gómsætur að sjá.. Lamb 600 g lambafille. Klípa smjör Steikið lambið vel á pönnu upp úr smjöri. Klárið í ofni við 150 gráður uns uppáhalds steikingu ykkar er náð. Mæli með því að lambið sé fallega rautt í miðjunni. Slátur Byrjið á að taka slátur í góðum félagsskap. Eftir að slátrið hefur verið soðið er það kælt og svo skor- ið niður í bita og steikt á pönnu upp úr smjöri og sykri. Kartöflumús 4 bökunarkartöflur 1 dl rjómi ½ dl mjólk 100 g smjör Salt Sjóðið kartöflurnar og skrælið, þrýstið þeim því næst í gegnum kartöflu-músara og setjið í pott. Hrærið vel í pottinum á meðan þið hellið restinni af innihaldinu út í og bragðbætið að lokum með salti. Soðið smælki Vel af smælki Klípa af smjöri Gott gróft salt Sjóðið smælkið og steikið svo ögn upp úr smjörinu uns fallega gylltar og kryddið með saltinu. Rótargrænmeti 150 g rófur 150 g gulrætur 50 g olía 3 kvistar garðablóðberg Gróft salt Blandið öllu saman og bakið undir álpappír við 150 gráður uns nánast meyrt. Kryddið að lokum með salti. SLÁTUR OG ANNAÐ GÓÐGÆTI að hætti Gunnars Karls Gíslasonar á Dilli F í t o n / S Í A VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 ÞAÐ ER AUÐVELTAÐ KAUPA ÁSKRIFT ÁSTOD2.IS Ný alíslensk og hörkuspennandi gamanþáttaröð í 12 þáttum. Siggi Hlemm er fráskilinn ljúflingur á fertugsaldri sem erfir myndbandaleigu eftir föður sinn. En rekstur mynd- bandaleigu er honum síður en svo efst í huga því lengi hefur hann gælt við þá hugmynd að gerast alvöru einkaspæjari. Úr því rætist þegar hann flækist inn í stórhættulegt og eldfimt sakamál sem teygir anga sína mjög víða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.