Fréttablaðið - 05.02.2011, Qupperneq 72
44 5. febrúar 2011 LAUGARDAGUR44
menning@frettabladid.is
KJARVALSSTOFA
Í PARÍS
er stúdíóíbúð með vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir lista-
menn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og
menningarmálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er staðsett
í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af
stjórn Cité Internationale des Arts er rekur stofuna og miðast við
kostnað af rekstri hennar. Á árinu 2011 verða þau 395 evrur á
mánuði fyrir einstakling en 505 evrur á mánuði fyrir tvo. Úthlutun
er lágmark tveir mánuðir í senn en vegna fjölda umsókna undan-
farin ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir. Dvalargestir
skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts
varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að
þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn.
Auglýst er eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu fyrir tíma-
bilið 1. ágúst 2011 til 31. júlí 2012. Umsóknareyðublöð ásamt
reglum um afnot af Kjarvalsstofu má finna á
www.reykjavik.is/menningogferdamal.
Umsóknir, með lýsingu á því verkefni sem umsækjandi hyggst
vinna að, skulu stílaðar á stjórnarnefnd Kjarvalsstofu, Menningar-
og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti, Vesturgötu 1,
101 Reykjavík. Ætlast er til að umsækjendur skili inn stuttri grein-
argerð um afrakstur dvalarinnar. Umsóknir skulu berast í síðasta
lagi mánudaginn 7. mars 2011.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
Þitt er valið
www.lydheilsustod.is
Stöldrum við og kynnum okkur innihaldið
áður en við svölum þorstanum.
Verndum tennurnar!
Kynnið ykkur veggspjald Lýðheilsustöðvar
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.
Ráðgert er að fimm binda
yfirlitsrit um íslenska lista-
sögu komi út með haustinu.
Fjórtán höfundar taka þátt
í ritun verksins, sem For-
lagið gefur út í samvinnu
við Listasafn Íslands.
Yfirlitsritið Íslensk listasaga, sem
væntanlegt er í haust, spannar
tímabilið frá síðari hluta 19. aldar
til upphafs 21. aldar og verður um
1.500 síður í stóru broti. Fjög-
urra ára vinna liggur að baki
útgáfunni. Árið 2007 var Ólaf-
ur Kvaran ráðinn ritstjóri verks-
ins, skipuð var ritstjórn og gerð-
ir samningar við fjórtán höfunda
um ritun verksins.
„Markmiðið var að gera vand-
að yfirlitsverk um íslenska mynd-
list fyrir íslenskan almenning,“
segir Jóhann Páll Valdimarsson,
forleggjari hjá Forlaginu. Mikill
metnaður hafi verið lagður í að
gera ritið sem best úr garði, enda
eigi það að verða veigamikill þátt-
ur í íslenskri þjóðar- og menning-
arsögu.
Á síðum bókanna verða litljós-
myndir af hundruð listaverka, auk
þess sem mikill fróðleiksbrunnur
um íslenska listasögu verður nú
aðgengilegur á einum stað.
„Ég get fullyrt kinnroðalaust
að þetta er eitt mesta stórvirki
sem ég hef tekið þátt í,“ segir
Jóhann Páll. „Það er sennilega
einsdæmi að jafn umfangsmikið
verk komi út í heild sinni á sama
tíma enda algengast að margra
binda verk komi út með margra
ára, jafnvel áratuga millibili. Ég
vil því meina að Íslensk listasaga
sé mikið menningarframlag, sem
vert sé að gefa gaum á þessum
erfiðu tímum.“
Spurður hvort ekki hafi komið
til greina að setja verkefnið í salt
í ljósi árferðisins segir Jóhann
Páll að það hafi vissulega komið
til greina. „Hrunið hefur auðvit-
að valdið útgefendum sem öðrum
ómældum erfiðleikum. En við
létum slag standa. Eftir það hefur
allt kapp verið lagt á að Íslensk
listasaga verði að veruleika, bæði
sem sígilt menningarrit en ekki
síður sem vitnisburður um metn-
að og þrautseigju íslenskra lista-
manna og þeirra sem unna list-
um.“
bergsteinn@frettabladid.is
Vitnisburður um þraut-
seigju íslenskra listamanna
Að sögn Jóhanns Páls tekur hvert bindi verksins mið af
skýrum kaflaskiptum í íslenskri listasögu.
Fyrsta bindið fjallar um tímabilið frá seinni hluta 19.
aldar fram til um 1930, tímabil brautryðjendanna þegar
rómantísk náttúrutúlkun og symbólismi setja meginmark á
íslenska myndlist.
Annað bindi fjallar um tímabilið 1930 til 1945, þegar
fram kom á sjónarsviðið ný kynslóð listamanna sem var
handgengin róttækari viðhorfum úr evrópskri myndlist.
Þriðja bindið spannar tímabilið 1945 til 1960 og fjallar um
abstraktlistina. Um 1960 tók við tímabil nýsúrrealisma,
popplistar og nýdadaisma, sem fjallað er um í fjórða bindi.
Fimmta og síðasta bindið er hins vegar helgað tímabilinu
1980 og fram yfir aldamótin 2000, og þau tímamót sem
urðu með tilkomu nýja málverksins, gjörningalistarinnar,
myndbandalistarinnar og endurnýjun hugmyndalistarinnar.
ÍSLENSK LISTASAGA
JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON Telur einsdæmi að jafn umfangsmikið verk og Íslensk
listasaga komi út í einu lagi hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þrjú verkefni
tilnefnd til
Eyrarrósar
Þrjú verkefni hafa verið til-
nefnd til Eyrarrósarinnar,
árlegrar viðurkenningar fyrir
framúrskarandi menningar-
verkefni á landsbyggðinni.
Verkefnin sem eru tilnefnd í
ár eru: 700IS Hreindýraland á
Egilsstöðum, Sumartónleikar
í Skálholti og Þórbergssetur á
Hala í Suðursveit.
Tilkynnt verður um sigur-
vegara á Bessastöðum 13.
febrúar næstkomandi. Sigur-
laun eru 1,5 milljónir króna,
verðlaunagripur eftir Stein-
unni Þórarinsdóttur og flug-
ferðir frá Flugfélagi Íslands.
Verðlaunin veitir Dorrit
Moussaieff forsetafrú, sem
jafnframt er verndari Eyrar-
rósarinnar.
RAX Á SÚFISTANUM Sýning á verkum Ragnars Axelssonar á myndum úr Veiðimönnum norðursins opnar í dag
á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18. Ragnar Axelsson, RAX, hefur undanfarin 30 ár fylgst með og
skráð breytingar á lífsháttum á norðurheimsskautssvæðinu.