19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 69
Vesturgötu 71. Sími 24060 Síðumúla 34. Sími 84161
101 Reykjavík. 125 Reykjavík
Póstbox 1227.
INNRÉTTIÐ SJÁLF
Ef þú vilt innrétta heimili þitt á óhefðbundinn og nýstár-
legan hátt áttu erindi til okkar. Við höfum margþætta
reynslu í framleiðslu húsgagnasvamps allt frá frumstigi
til fullmótaðra hluta, og getum því útbúið margvísleg-
ustu hluti eftir hugmyndum þínum og smekk. Starfs-
menn okkar eru fúsir til að leiðbeina þér og aðstoða. -
Líttu inn og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
ÞJÓNUSTA
Við framleiðum bæði staðlaðar gerðir og sérhannaðar,
sé þess óskað, þvi að stærðum og lögun má endalaust
breyta eftir þörfum hvers og eins.
Þeir sem vilja sauma yfir svampinn sjálfir geta fengið
hann óklæddan. Hinir geta valið úr áklæðum frá okkur.
Við höfum jafnan á boðstólum fjölbreytt úrval áklæða,
svo sem strigaefni, dralon ullaráklæði og velúr, en
einnig er hægt að koma með eigin efni til okkar.
Á saumastofu okkar vinna reyndar saumakonur og ból-
strarar.
FRAMLEIÐSLA
Úretan frauðplast hefur margvislega eiginleika, sem
gefa nær óendanlega möguleika til hagnýtingar þess
í iðnaðarframleiðslu nútímans. Má þar nefna dúnmjúka
púða og húsgagnasvamp, stólgrindur og stuðara eða
mælaborð í bíla, svo að ólík dæmi séu tekin. Notkun
úretans breiðist sífellt út í iðnaði, þar sem þörf er fyrir
mýkt og sveigjanleika eða hörku og slitþol.
Selsvör sf., dótturfyrirtæki Péturs Snælands hf. er
brautryðjandi í framleiðslu úretans hérlendis. Það hóf
starfsemi í júní 1968, en Pétur Snæland hf. hefur fram-
leitt og unnið svamp til húsgagnaiðnaðar um nær
þriggja áratuga skeið.
Við búum til ótal hluti úr svampi; rúm, húsgögn, leikföng
og að sjálfsögðu dýnur og púða af öllum gerðum.
Höfum opnað nýjan sölustað
að Síðumúla 34.
THORVALDSENS-BASAR
Mikið úrval af íslenskum
minjagripum og ullarvörum
Allur ágóði rennur til
Fjölfatlaðra barna