19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 18

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 18
Að kæra launamisréttið Hildur Jónsdóttir, verkefnisstjóri norræna jafnlaunaverkefnisins: Við konur á islandi eigum að búa við þau grundvallarmannréttindi að njóta launajafnréttis á við karla. Þessa stefnu hefur samfélagið í heild markað sér með setningu jafnréttislaga. Raunveruleikinn er annar. Margar konur geta greint frá þeirri reynslu sinni að vera mismunað í launum og hlunnind- um miðað við karla í sömu eða svipuðum störfum. Við getum líka greint þá tegund misréttis að starfsgreinar kvenna eru vanmetnar miðað við hefðbundnar karlagreinar. Svo virðist sem launa- munur kynjanna fari ekki minnkandi þó menntun kvenna og vinnuframlag sé stöðugt að aukast. Jafnverðmæt og sambærileg störf Réttur kvenna til launajafnréttis á við karla hvílir á fjórðu grein jafnréttislag- anna sem kveður á um að konum og körlum skuli greidd jöfn laun og þau njóti jafnra kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Það gefur auga leið að þar sem konur gegna sömu störfum og karlar eiga þær að hafa sömu laun. En rétturinn til launajafnréttis einskorðast ekki við sömu störf. Hann er mun víð- tækari. Konur geta átt rétt á sömu laun- um og karlar þó þær gegni störfum sem eru frábrugðin störfum karla. Að öðrum kosti væri rétturinn til launjafnréttis tak- markaður við þann hóp kvenna sem gegnir nákvæmlega sömu störfum og karlar en vegna þess hve vinnumarkað- urinn er kynskiptur er sá hópur hlutfalls- lega mjög lítill. Sjálft orðalag laganna vefst hins vegar fyrir mörgum. Hvaða störf eru jafnverðmæt? Hvernig á að meta verðmæti starfa? Þetta ákvæði er ættað úr samþykkt Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar nr. 100 sem var fullgilt af íslands hálfu árið 1958. Jafnlaunalög flestra ríkja innihalda sambærileg ákvæði. Því er eðlilegt að líta til Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar með túlkun á þessu orðalagi. Rauði þráðurinn í túlkuninni felst í því að verðmæti starfa er metið á grundvelli þeirra krafna sem starfið gerir til þess sem gegnir því, óháð starfsheitum og óháð þeim ytri mun sem kann að vera á störfunum. Reynt er með skipulögðum að- ferðum að svara þvf hversu krefjandi eða erfitt starfið er og hversu mikillar hæfni það krefst. Menntun er einn þeirra þátta sem hæfni launþegans getur ráðist af. Þurfi t.d. að Ijúka fjögurra ára sérskólanámi til að gegna ákveðnu kvenna- starfi er eðlilegt að leggja það að jöfnu við jafnlangt nám sem Konur þarf til að gegna karlastarfi. Þá á ekki að þurfa að skipta máli að námið sé á ólík- um sviðum. Fólk getur líka öðlast hæfni eftir óformlegum leiðum og gildir það ekki síst um mörg kvennastörf. Sú ábyrgð sem kona í dæmigerðu kvenna- starfi gegnir getur verið fyllilega sam- bærileg við aðra tegund ábyrgðar karls í hefðbundnu karlastarfi. Svona mætti áfram telja. Talsverð reynsla er fyrir hendi í ýmsum öðrum löndum af því að beita þessurn aðferðum við samanburð á milli kvennastarfa og karlastarfa í þeim tilgangi að skera úr um hvort þau séu jafnverðmæt en hér á landi hefur ekki enn verið úrskurðað um jafnlauna- kæru á þessum grundvelli. Kærutilefnin vantar ekki Að úrskurða um kærur vegna launamis- réttis og jafnvel að höfða mál fyrir dóm- stólum er mikilvægur hlekkur í því að óttast afleiðingar þess að kæra launamisrétti. þróa túlkun laganna og efla þekkinguna á þeim - og leiðrétta einstök tilvik þar sem jafnréttislög eru brotin. Slíkt getur haft fordæmisgildi og þannig haft áhrif á launamál kvenna í víðum skilningi. Hver kæra sem vinnst getur því verið jafnlaunabaráttunni ómetanleg lyfti- stöng. Það er hins vegar einkennandi fyrir stöðu þessara mála á íslandi að kærur vegna meintra brota á ákvæðum laganna um launajafnrétti eru afar fáar og þær sem hafa komið til kasta Jafn- réttisráðs hafa haft takmörkuð áhrif. Á sama tíma benda allar tölfræðilegar upplýsingar, sem til eru um launamál karla og kvenna, til þess að íslenskar konur hafi síst minni ástæðu en konur í nágrannalöndunum til þess að kæra meint launamisrétti. Það er því nærtækt fyrir okkur sem störfum að norræna jafnlaunaverkefn- inu að leita svara við því hvers vegna kærur eru svo fáar sem raun ber vitni. Endurspeglar það almenna van- þekkingu á jafnréttislögunum? Vita konur ekki hvort verið sé að brjóta á þeim? Er eitthvað í meðferð kærumála sem fælir konur frá því að kæra? Þessar spurningar og aðrar svipaðar eru önnur af tveim ástæðum fyr- ir þeirri ákvörðun verkefnis- stjórnar norræna jafnlaunaverk- efnisins að gefa út sérstakt kynn- ingarrit um meðferð kærumála vegna launamisréttis kynja. Hin er að leggja grunn að meðferð þessara mála í samræmi við það hlutverk verkefnisstjórnar að gera tillögur að framkvæmd fjórðu greinar laganna. Þar veg- ur þyngst að skilgreina orðalag laganna um jafnverðmæt og sambærileg störf. Bætt meðferð kæru- mála Meðferð kærumála var styrkt til muna vorið 1991 með samþykkt nýrra jafnréttislaga, en þá var stofnuð sérstök kærunefnd jafn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.