19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 55

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 55
svo töm, hafi gert vart við sig. Mér fannst hreinlega leiðinlegt að vera að etja kappi við aðrar konur." Heldur þú að karlmaður fái sam- viskubit gangvart kynbræðrum sínum þegar hann sækir um starf? „Örugglega ekki," svarar hún um hæl. „Karlmenn virðast hafa allt önnur viðhorf til slíkra hluta og taka öðruvísi á þeim en við konurnar. I mörgum tilfell- um hefja þeir baráttu, ef svo mætti segja, til að kynna kosti sína á meðan við förum okkur mun hægar í sakirnar og bfðum nánast þess sem verða vill. Þegar ég fann fyrir sektarkenndinni tók ég það mjög alvarlega en þegar við er- um að tala um þetta núna þá hljómar það nánast skondið þótt það sé ekkert fyndið við svona hugsanir. Það truflaði mig svolítið að ég, sem tel mig vera barn míns tíma, skuli lenda í kreppu við sjálfa mig við svona kringumstæður." Hanna María segir að hún hafi verið búin að búa sig undir það að fá ekki stöðuna á Þingvöllum þegar kallið kom. „Þorsteinn Pálsson, dóms- og kirkjumála- ráðherra, hringdi í mig dag nokkurn og sagði að umsókn minni hefði verið tek- ið. Hvílíkt símtal og hvílík gleði. Ég stóð eins og þvara á meðan orðin síuðust inn í huga mér en síðan langaði mig að hoppa hæð mína af gleði. Ég gat fengið draumastarfið mitt!" Ráðning Hönnu Maríu tók gildi frá og með 1. október sl. og símtalið góða kom seint f september. „Þar með rauk ég upp til handa og fóta og hafði í raun ekki tíma til að gera mér grein fyrir umfangi starfsins fyrr en ég fór með mitt hafur- task til Þingvalla síðasta dag september- mánaðar." Hún brosir oft á meðan við- tali þessu stendur en þegar hún rifjar upp tilfinningarnar sem gagntóku hana þegar hún ók að gamla Þingvallabæn- um er hún alvarleg á svip. „Ég kom hingað sem nýr þjóðgarðsvörður og sóknarprestur, það þyrmdi yfir mig allt í einu og mér varð hugsað til þess út f hvað ég væri komin. Ég var með mikinn hjartslátt þegar ég stöðvaði bílinn minn við gamla fallega bæinn." Þrátt fyrir al- vöru málsins gerir Hanna María góðlát- legt grín að sjálfri sér og segir að hún hafi haft svo mikið að gera þessa fyrstu daga í október að hún hafi sveiflast á milli gleði og kvíða jöfnum höndum. „Ég held að því sé þannig farið með marga sem er falið stórt verkefni að þeir geysist af stað en nái sér svo fljótlega og blóðþrýstingurinn og spennan minnka. Þessu var þannig farið með mig og fyrst þegar ég fór um svæðið sem mér þykir svo vænt um fann ég stundum fyrir skelfingu yfir því hve yfirgripsmikið þetta starf er. En nú er ég komin með báða fætur á jörðina á ný og einbeiti mér að því að sinna skyldum mfnum eins vel ég og mér er frekast unnt. Auð- vitað vil ég standa mig en ég er hætt að reyna að vera fullkomin og geri bara mitt besta. Þeir sem til Þingvalla koma eru góðu vanir vegna hins mikla starfs sem séra Heimir hefur unnið hér og ég mun reyna að mæta þeim kröfum sem til mín eru gerðar." Hún brosir í kamp- inn þegar hún segir frá því að fyrst eftir komuna til Þingvalla hafi hún setið heilu næturnar við lestur bóka og rita um Þingvelli. „Þó svo ég telji mig vita eitt og annað þá má alltaf á sig blómum bæta og saga Þingvalla og náttúrufræði eru óendanleg uppspretta fróðleiks." Þú ert fyrsta konan sem gegnir emb- ætti þjóðgarðsvarðar og sóknarprests á Þingvöllum, þessum völlum karlyfirráða til skamms tíma. Hvernig líður braut- ryðjanda? „Bara vel," segir hún og bætir við að það sé ekki hægt annað en að líða vel á Þingvöllum. „Saga okkar, hvort sem við erum stödd á Þingvöllum eða annars staðar, er saga karlmanna, a.m.k. hin opinbera saga. Mér finnst hins vegar öll ÞÆGILEGIR OG FALLEGIR GALLAR I MÖRGUM LITUM OG GERÐUM FYRIR DÖMUR OG HERRA SENDUM I PÓSTKRÖFU ks UTIUFt GLÆSIBÆ SÍMI 812922 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.