19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 49

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 49
Undirbúningur að Vestnorræna kvennaþinginu, „Kvinnutingi Útnorðurs", er í full- um gangi. Ragnheiður Harðardóttir, formaður undirbúningsnefndar. en þar verður til sýnis og sölu allt það besta sem til er af handverki kvenna í þessum löndum. Enda þótt dagskráin sé ekki fullmótuð þegar þetta er skrifað er samt sem áður hægt að segja frá henni í höfuðdráttum. Leitast verður við að hafa dagskrána sem fjölbreyttasta þannig að vestnor- rænar konur nái að kynnast hver ann- arri, kynnast menningu þjóðanna sem löndin byggja og mynda varanleg tengsl. Þingið hefst með menningar- vöku á fimmtudagskvöldinu þar sem yrkisefnið er konan í þjóðsögum og fornsögum Grænlands, Færeyja og ís- lands. Þetta verður sameiginleg vestnor- ræn dagskrá þar sem tvinnað er saman atriðum og stuttum fyrirlestrum um efn- ið frá löndunum þremur. Föstudagurinn hefst síðan með íþróttaiðkun einhverskonar og er reynd- ar meiningin að hafa þetta fastan lið alla þingdagana. Vonast er til að konur í íþróttahreyfingunni verði liðtækar við að skipuleggja hópleikfimi. Meginvið- fangsefni föstudagsins er „Menntun og vinnumarkaður". Um kvöldið verður skemmtidagskrá í urnsjón austfirskra kvenna. Umræðuefni laugardagsins verður hin sameiginlega lífsbjörg vestnorrænu þjóðanna eða „Hafið". Þá mun gefast kostur á að ræða hvaðeina sem tengist því, s.s. umhverfi, friður, auðlindir og efnahagsmál. Um kvöldið verður farið í Hallormsstaðaskóg þar sem skógræktar- stjóri sýnir það markverðasta, haldin verður heljarmikil gri11veisla með öllu tilheyrandi í Atlavík og hvert land stendur fyrir einhverskonar uppákomu. Þema sunnudagsins er möguleikar kvenna til að hafa áhrif í þjóðfélaginu. Þá verður rætt um völd, vinnustaðalýð- ræði, stjórnmál, áhrif breytinganna í Evrópu o.m.fl. Um miðjan dag, eða kl. 15.00, verður þingið rofið en þá munu konur frá löndunum þremur ræða ár- angur starfsins á þinginu, möguleika kvenna til að vinna áfram að því að bæta stöðu sína á þeim sviðum sem rædd hafa verið og hvernig konur í þessum löndum geti stofnað til varan- legs samstarfs um hagsmunamál sín. Þá er einnig mikilvægt að tekin verði af- staða til þess með hvaða hætti löndin í útnorðri geti undirbúið sameiginlega þátttöku sína í Nordisk Forum sem haldið verður í Ábo í Finnlandi 1994. Undirbúningsnefndin er fyrir löngu búin að panta hið margrómaða aust- firska hitabeltisveður þessa ágústdaga. Þá er hægt að spóka sig í sandölum og ermalausum sumarkjól. En þinghaldið stendur ekki og fellur með veðrinu. Konurnar í útnorðri láta það ekki á sig fá þó að rigni og blási; þá værum við ekki hér. Þess vegna er sennilega best að leyfa regngallanum og stígvélunum að fljóta með stuttbuxunum og hlýra- bolunum þegar farið er að ferðbúast fyr- ir vestnorrænt kvennaþing á Egilsstöð- um í sumar. Rey kj a víkurbor g Thorvaldsensfélagið Samband Alþýðuflokkskvenna Úlfar Þormóðsson Samband íslenskra samvinnufélaga Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt Sjálfstæðisfélagið Vorboði, Hafnarfírði Verkakvennafélagið Aldan, Sauðárkróki Verkakvennafélagið Framsókn Verkakvennafélagið Framtíðin Seltj arnarneskaupstaður Verkamannafélagið Dagsbrún Stjórnunarfélag íslands Verkamannasamband íslands Stefánsblóm, Skipholti 50b 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.