19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 7
Móðir, kona, meyja:
„Konur
geta verið ótal
margt annað en
mæður“
- sá sem á barn veit ekki hvers hann fer á mis,
segja þær Esther og Sigurbjörg sem aldrei hafa
eignast börn og sakna einskis í lífi sínu
Þær hafa aldrei átt börn. „Veslings konurnar," hugsar þú kann-
ski með vorkunnsemi. Þær sem eiga stór hús, eru barngóðar og
gefandi manneskjur. Og öll þessi tækni í læknavísindunum,
smásjáruppskurðir, tæknifrjóvgun, glasabörn og hver veit
hvað. En þær kæra sig ekki um neina vorkunnsemi. Líf þeirra
er fullnægjandi. Þar er ekkert tómarúm sem þarf að fylla með
börnum. Báðar hefðu þær getað lagt á sig langa göngu á milli
lækna og sjúkrahúsa, aðgerða og rannsókna. En þær gerðu það
ekki og eru sáttar við það.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir er yfirmaður öldrunarþjónustu
Félagsmálastofnunar Reykjavíkur. Hún er 37 ára, gift og býr í
fallegri íbúð í nýju húsi í miðborginni. Esther Ólafsdóttir er 47
ára, rak eigin hárgreiðslustofu í 20 ár en starfar nú hjá heild-
sölu í Kópavogi sem selur snyrtivörur. Hún býr með manni sín-
um í stórri þakíbúð á Seltjarnarnesi. Við hittumst kvöld eitt
fyrir stuttu á heimili Estherar. Þær höfðu ekki hist áður og báð-
ar héldu að það væri ekki svo margt um málið að segja. En
annað kom á daginn.
- eftir Vilborgu Davíðsdóttur
7