19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 29

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 29
ir getu hvers og eins. Enginn vinnur og enginn tapar í kvennahlaupinu vegna þess að allir þátttakendur fá verðlauna- pening að hlaupi loknu. Annað kvennahlaup verður haldið í ágúst í tengslum við Vestnorrænu kvennaráðstefnuna á Egilsstöðum. Þar mun nefndin kynna starf sitt, stöðu kvenna í íþróttum hér á landi og einnig mun hún skipuleggja íþróttastarf meðan á ráðstefnunni stendur, þ.á.m. verður hlaup fulltrúanna frá Færeyjum, Græn- landi og Islandi. Af öðrum störfum nefndarinnar í sumar og haust má geta þess að út verð- ur gefið veggspjald með mynd af hinni vinsælu sundkonu Ragnheiði Runólfs- dóttur sem er önnur íslenskra kvenna til að hljóta hinn eftir- sótta titil íþrótta- maður ársins. Jafn- framt verður gefinn út þæklingur í haust um kvennaíþróttir og verður honum dreift í bekkjardeild- um grunnskólanna. Tilgangurinn með útgáfu bæklingsins er að hvetja ungar stúlkar til dáða og fá þær til að leita í auknum mæli inn í íþróttafélögin. Að sögn Unnar Stefánsdóttur, sem er ekki aðeins for- maður umbótan- efndarinnar í kvennafþróttum heldur einnig þekkt hlaupakona og margfaldur íslands- meistari, hafa við- brögð við störfum nefndarinnar verið mjög góð. „Við höf- um leitað fanga víða og okkur virðast óendanleg verkefni bíða okkar. Það er ánægjulegt til að þess að vita að stjórn ÍSÍ skuli hafa skipað þessa nefnd sem reyndar hefði átt að gera fyrir mörgum árum. Sennilega getum við konur kennt okkur sjálfum um að staða okkar innan íþróttanna er veik. Ýmsar íþróttakonur, sérstaklega í hópíþróttun- um, kvarta undan því að þær fái verri æfingatíma og að lítil áhersla sé lögð á að þær fái jafn hæfa þjálfara og karlarn- ir. Einnig hefur oft komið í Ijós, m.a. í hópíþróttunum, að landslið kvenna eru gerð út af örkinni til að safna fjármunum, ef þau eiga að keppa erlendis, á meðan körlunum er séð fyrir fjármagni og þeir þurfa ekki að ganga á milli fyrirtækja með þetlistaf eða að standa í sölutjöld- um á torgum." „Hvað varðar stjórnunarstörf innan íþróttahreyfingarinnar má benda á að núna eru aðeins tvær konur í fram- kvæmdastjórn ÍSÍ en hins vegar sjö karl- menn." Hún kann enga ákveðna skýr- ingu á þessu en telur ekki leika vafa á því að konum sé mun erfiðara að hasla sér völl í heildarsamtökunum en í sér- og héraðssamböndunum. „Ég er viss um að karlar sem lesa þetta segja núna: „Konur eru engu síður en karlmenn velkomnar í trúnaðar- störf." Málið er þara það að þeir lýsa oft yfir jafnréttisskoðunum þegar þessi mál ber á góma en reynast síðan tregir til að styðja og veita kvenframbjóðendum brautargengi til ábyrgðarstarfa. Auðvit- að verðum við konur sjálfar að vinna að okkar eigin málum og það er einmitt það sem er komið í gang núna. Við er- um að vekja athygli á stöðu okkar í íþróttahreyfingunni, sérstaklega athygli kvenna. Við verðum að taka okkur al- varlega á, bretta upp ermarnar og gefa okkur fram til starfa. íþróttirnar eru einn margra þátta heilbrigðs lífs og eru fyrir alla. íþróttamenn læra sjálfsaga, ósér- hlífni, tillitssemi, hópvinnu og svona mætti lengi telja. Á þessum tímum þeg- ar svo margt gagntekur unga hugi eru íþróttirnar, að mínu mati, sá vettvangur sem við eigum að beina börnum okkar á. Það er hins vegar erfitt að ala á jafn- réttishugsjón þegar ýmsir brestir eru í henni hjá okkar sjálfum. Við íslendingar tölum mikið um jafnrétti og höfum meira að segja lög þar um. Jafnrétti inn- an íþróttahreyfingarinnar verður að auka og það gerir enginn nema við kon- ur sjálfar." Unnur vísar að lokum til þess hvernig þekktur útvarpsmaður spurði nýlega með undrun í röddinni hvort kvenna- baráttan væri komin á takkaskó. „Ef menn kjósa að orða það svo er svar mitt við þessu já." Ein nefndarkvenna er Lovísa Einars- dóttir íþróttakennari sem átt hefur sæti í framkvæmdastjórn ÍSÍ um nokkurra ára skeið. I viðtali hér í blaðinu fer hún nokkrum orðum um reynslu sína úr starfinu í íþróttahreyfingunni og ræðir m.a. um það áhugaleysi sem fjölmiðlar sýna íþróttaiðkun kvenna. „Sennilega getum við konur kennt okkur sjálfum um að staða okkar innan íþróttanna er veik," segir for- maður Umbótanefndar ÍSÍ í kvennaíþróttum, Unnur Stefánsdóttir. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.