19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 56

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 56
umgjörð og náttúra hér engan veginn vera af ætt karla frekar en kvenna þótt hinir fyrrnefndu séu mest áberandi í sögunni. Ég grúska mikið í þjóðfræði og gleðst í hvert sinn sem ég finn eitthvað í ritum eða sögnum um konur. Ég er allt- af að raða saman upplýsingabrotum um stöðu kvenna í sögunni. Um þessar mundir er ég að skrifa kafla í nýrri kristnisögu og ég gríp sjálfa mig f því að vera sérstaklega vakandi gagnvart stöðu kvenna og leita meðvitað og ómeðvitað að upplýsingum til að skilgreina stöðu þeirra. Þjóðfélagið og allt umhverfi okk- ar er svo mótað af karlmönnum og ég, sem guðfræðingur og prestur, er ætíð vakandi fyrir stöðu kvenna og þeim breytingum sem hún tekur í karlaþjóð- félaginu. Sem betur fer stefnum við í rétta átt í að jafna hlut kvenna og karla. Skipun mín í þetta virðulega embætti er ágætt dæmi um það en auðvitað er margt enn ógert í þessum efnum." Við snúum tali okkar að skyldum þjóðgarðsvarðar og spyrjum Hönnu Maríu hvort hún sé búin að móta sér stefnu um varðveislu þjóðgarðsins. „Ég veit ekki hvort kalla megi það stefnu en hins vegar hef ég ýmsar hugmyndir sem mig langar að hrinda í framkvæmd. Grundvöllurinn að þeim er í sjálfu sér „Ég kom hingað sem nýr þjóðgarðs- vörður og sóknarprestur, það þyrmdi yfir mig allt í einu og mér varð hugsað til þess út hvað ég væri komin." einfaldur. Ég vil svo gjarnan að sem flestir sæki Þingvelli heim og að staður- inn sé lifandi tákn fslensku þjóðarinnar, ekki aðeins í sögunni heldur líka í hug- um ungra sem aldraðra. Þingvellir eru eign þjóðarinnar allrar og ég hef mikla löngun til þess að skipuleggja allskonar starf hér til að kynna menningu okkar til forna, sögu staðarins o.s.fv." Við erum greinilega komnar inn á svið sem Hönnu Maríu er hugleikið og andlit hennar geislar af áhuga. „Ég sé til dæm- is fyrir mér að hér mætti sýna heyskap með gömlum aðferðum. Hér eru nokk- ur eyðibýli og mér finnst upplagt að hópur fólks sýni þar gömlu aðferðirnar og að slíkt væri auglýst í fjölmiðlum til að hvetja fólk, ekki síst börn, til að koma og taka jafnvel þátt í heyskapn- um. Starf með börnum er mér mjög hugleikið og annar möguleiki til að auka áhuga þeirra á Þingvöllum er að leiða þau um staðinn og segja þeim frá því sem hér hefur gerst, fá þeim síðan blað og liti í hendur og láta þau tjá sig með myndum. Ég er viss um að slík starfsemi væri foreldrum hvatning til að koma með börn sín hingað og ég er sannfærð um að heimsóknir af þessu tagi myndu verða foreldrum og börnum mikið ánægjuefni." Einstök hönnun - Fegurð — Gœði — Tískuefni - Tískulitir Heildsölubirgðir Ástbjörg Gunnarsdóttir — Sæviðarsundi 60 — Sími 33290 — 104 Reykjavík 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.