19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1992, Qupperneq 30

19. júní - 19.06.1992, Qupperneq 30
Stungu niðurstöðunum undir stól eftir Ellen Ingvadóttur Lovísa Einarsdóttir hefur unnið innan vébanda ÍSÍ síðan 1981, fyrst sem formaður Fimleikasambands ís- lands um fjögurra ára skeið en síðan var hún kjörin í framkvæmdastjórn ÍSÍ árið 1986, ásamt Katrínu Gunnarsdóttur, og eru þær fyrstu konurnar sem sæti eiga í framkvæmdastjórninni. Lovísa, sem er íþróttakennari að mennt, hefur aldrei keppt í íþróttum en fór í íþróttakennaraskólann á Laugarvatni á sínum tíma vegna brennandi áhuga á iþróttum. „Ég hef aldrei gengib með for- mennsku fyrir einu eða neinu félagi í maganum og það var nánast tilviljun að ég dróst inn í stjórn míns garnla sam- bands, Fimleikasambandsins, og að ég sæti svo sem formaður þess myndi ég ekki hafa trúað hefði einhver spáð því. Áhugi minn á íþróttunum, ekki síst á fimleikum, hefur einhvern veginn leitt til þess að ég sit nú í framkvæmda- stjórninni." Lovísa segir að frami hennar innan ÍSI hafi verið skjótur og að það gefi til kynna að konum séu flestir vegir færir þar. „Þess ber að geta að í varastjórn ÍSÍ var kona, Ástbjörg Gunnarsdóttir íþróttakennari, sem vann mikið starf," segir Lovísa þegar við rifjum upp feril kvenna innan stjórnar ÍSÍ. Hvernig var þér tekið í karlaveldinu í framkvæmdastjórninni? Eftir andartaks þögn segir Lovísa að hún hafi verið boðin velkomin. „En því er ekki að neita að ég fékk það fljótlega á tilfinninguna að það myndi ekki borga sig fyrir mig að koma með neinar bylt- ingarkenndar tillögur heldur að reyna að koma málum mínum að fet fyrir fet. Ég er og hef alltaf verið jafnréttissinni og vinn samkvæmt því. Því er hins vegar ekki að neita að það er oft á brattann að sækja í þeim efnum. Ef ég lendi í því að vera ósammála tillögu, sem karlmaður hefur lagt fram, dembast yfir mig spurn- ingar sem ég heyri aldrei lagðar fyrir karlmennina í stjórninni. Það hefur meira að segja komið fyrir að ég hef verið spurð, við slík tækifæri, hvort skoðanir mínar stjórnist af málefninu sjálfu eða af einhverjum kvennapólitísk- um málefnum. Mér finnst þetta móðg- andi en svona er þetta." Lovísa Einarsdóttir í framkvæmdastjórn ÍSÍ: „Ef ég lendi í því að vera ósammála tillögu, sem karlmaður hefur lagt fram, dembast yfir mig spurningar sem ég heyri aldrei lagðar fyrir karlmennina í stjórninni." Lovísa verður skyndilega glettin á svip þegar hún vísar til samtala sem hún hefur átt við konur í norrænu íþrótta- hreyfingunum. „Auðvitað ræðum við mikið saman vegna þess að við eigum svo margt sameiginlegt. Eitt sinn sem oftar sátum við nokkrar norrænar stöllur saman í Osló og ræddum stöðu kvenna í íþróttahreyfingunni. Ég var spurð að því hve lengi ég hefði verið í fram- kvæmdastjórninni og þegar í Ijós kom að ég hef verið það lengi að ég er ekki lengur með hjartslátt yfir því að vera ósammála karlmönnunum sagði ein konan við mig: „Heyrðu Lovísa, þetta þýðir að nú þarft þú að hafa gætur á þér. Reynsla okkur er sú að þegar konur í íþróttastjórnum fara að tala af sama ör- yggi og karlarnir er stutt í að þeir fari að huga að annarri konu í stjórnina." Hvort þetta eigi við hér veit ég ekki enn en þá hlýtur að fara að koma að því að ég verði að fara að tryggja mig í sessi hygg- ist ég halda áfram í framkvæmdastjórn- inni." Á alvarlegri nótum segir hún að þegar hún geri tillögur virðist hún yfir- leitt þurfa að hafa meira fyrir þeim en karlmennirnir í stjórninni. „Það er eins og að við konurnar tvær í stjórninni þurfum sífellt að vera betur undirbúnar en karlarnir ef einhver von á að vera til þess að við fáum tillögur okkar sam- þykktar. Þetta er ekki kvenleg minni- máttarkennd heldur köld staðreynd. Við Katrín höfum nú verið í framkvæmda- stjórn ÍSÍ í nokkur ár og erum báðar skólaðar í umgengni við karlanna þar. Ætla mætti að þeir viti betur en svo að við séum kvenrembur í málflutningi okkar en því miður þá fáum við oft niðurlægjandi spurningar þegar við tök- um á málefnum sem eru okkur hugleik- in. Ég er sannfærð um að á næstu árum, þegar konum í stjórninni fjölgar, muni karlmennirnir sjá að þeir verði að breyta viðhorfum sínum og koma á móts við okkur eins og við verðum að koma á móts við þá. Hingað til hafa karlmennirnir farið nokkuð í eina stefnu en sem betur fer sjáum við Katrín eitt og eitt merki þess að ekki er lengur litið á okkur sem einhverja óróaseggi og það er af hinu góða. Kannski erum við brautryðendur fyrir aðrar konur og ég vona sannarlega að þær sem seinna koma í stjórn ÍSÍ muni ekki þurfa að 30

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.