19. júní - 19.06.1992, Page 36
Hverjir verða oft verst úti við skilnað?
félagsráðgjafa sem veitir barni stuðning
á meðan unnið er úr forsjárdeilunni.
Hér hefur aðeins verið drepið á nokk-
ur þeirra atriða sem er að finna í lögun-
um en á eftir fer viðtal við Hjördísi
Hjartardóttir félagsráðgjafa þar sem velt
er upp ýmsum flötum á frumvarpinu og
þeim málum sem þau varða. Að sjálf-
sögðu er ekki hægt að fjalla á nokkurn
tæmandi hátt um barnalögin í grein sem
þessari en þeim sem vilja vita meira er
bent á að hægt er að nálgast frumvarpið
á skrifstofu Alþingis.
Nauðsynlegt að tryggja fólki
ráðgjöf
Hjördís var fyrst spurð að því hvort nýju
lögin myndu gera það að verkum að
auðveldara yrði að leysa úr erfiðum
málum.
„Það eru í rauninni ekki lögin sem
eru vandinn heldur maðurinn; hvað
hann er fullkominn eða ófullkominn.
Manneskjan syrgir og lendir í kreppu
sem verður til þess að hún umturnast.
Þetta getur valdið miklum erfiðleikum,
sérstaklega hvað varðar börnin. Það
sem mér finnst fyrst og fremst vanta, og
er á engan hátt tekið á í frumvarpinu til
barnalaga, er að fólki sé tryggð ráðgjöf.
Mér finnst jafnvel að það eigi að skylda
fólk í forsjárdeilu til að fara í ráðgjöf.
Frumvarp um ráðgjöf hefði átt að koma
hér með. Félagsmálaráðuneytið skipaði
starfshóp til að semja frumvarp til laga
um fjölskylduráðgjöf sem síðan var flutt
sem stjórnarfrumvarp árið 1989. Það
hét fjölskylduráðgjöf þó að það miðaði
einvörðungu að skilnaðarráðgjöf en
hópurinn hefur ekki viljað láta það
heita svona neikvæðu nafni."
Hvað varð um þetta frumvarp?
„Það bara dagaði uppi. í því voru að-
eins tvær preinar:
1. gr. A vegum hins opinbera skal
veita ráðgjöf í skilnaðarmálum, fræðslu
um málefni barna í tengslum við sam-
búðarslit foreldra og leiðbeiningar um
úrlausn í forsjár- og umgengnisréttar-
málum. í þessum tilgangi skal starfrækja
sérstaka miðstöð fjölskylduráðgjafar
undir yfirstjórn Félagsmálaráðuneytisins
þar sem veitt verður m.a. sérfræðiað-
stoð sálfræðinga og lögfræðinga. Fé-
lagsmálaráðherra setur reglugerð um
það hvernig háttað verði greiðslu fyrir
þjónustu skv. gjaldskrá og um starfsemi
miðstöðvarinnar.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Meira var þetta ekki. Barnalögin
varða réttarstöðu barna almennt og í
mínu starfi sé ég þau í tengslum við
samvistarslit foreldra og hjónaskilnaði.
Og það sem sárvantar bæði hér í
Reykjavík og úti á landi er að fólk geti
farið í meðferðarviðtöl þar sem einhver
er til að benda á að það er barn með til-
finningar sem deilurnar snúast um og
hjálpar síðan fólkinu að vinna úr þeim."
Finnst þér börnin sjálf oft gleymast?
„I skilnaði gleymast þau oft vegna
þess að skilnaður er svo mikið áfall fyrir
alla - líka þann sem vill skilja. Því þótt
það sé aðeins annar aðilinn sem vill
skilja þá er hann samt að afsala sér
þeim draumum og væntingunum sem
gerðar voru til sambúðarinnar eða
hjónabandsins og það er áfall. Þetta er
erfiðleikatímabil og ekki bara í forsjár-
deilum. Þegar fólk er að skilja er það
tætt, vansælt og hefur lítið að gefa.
Bregst ekki við aðstæðum af skynsemi,
yfirvegun eða jafnvægi og hefur í raun
mikla þörf fyrir stuðning. Þetta er fólkið
sem stendur næst börnunum."
Dómstólaleiðin góð fyrir full-
orðna fólkið
Hvað finnst þér gott við þetta frumvarp?
„Þessi möguleiki á sameiginlegri for-
sjá. Svo eru örfá dreifð ákvæði. Þetta
eru smávægilegar lagfæringar en engar
grundvallarbreytingar gagnvart börnun-
um. Mér finnst aftur á móti mjög erfitt
að sjá hvort dómstólaleiðin kemur
börnunum til góða. Ég sé að hún getur
komið foreldrunum til góða, en ég sé
ekki að hún skili sér á einn eða neinn
veg fyrir börnin."
Hvað er talið að dómstólaleiðin bæti?
„Þar eru skýrari reglur um málsmeð-
ferðina, sem er eitt af því sem er til bóta
í þessum barnalögunum. Dómstólaleið-
in er góð fyrir fullorðna fólkið. Það get-
ur þá vasast með öll gögnin, rifist með
sínum lögfræðingum og hefur betri að-
stöðu til að gæta hagsmuna sinna. En
hver gætir hagsmuna barnsins? Ekki
ræður það sér lögfræðing. Ef lögin eru
samþykkt þá er hægt að fara hvora leið-
ina sem er, stjórnvaldsleiðina - að láta
dómsmálaráðuneytið taka ákvörðun -
36