19. júní - 19.06.1992, Qupperneq 38
Og er ekkert í þessum nýju lögum
sem lagar það?
„Nei. Sektarákvæðið er lagað veru-
lega þannig að nú verður hægt að beita
þann sem fer með forsjána miklu hærri
sektum. Sektirnar voru svo lágar að það
þótti ekki taka því að leggja þær á. Þær
voru 200 krónur fyrir hvern dag sem
umgengni átti að vera en í nýju lögun-
um er búið að hækka sektirnar í 5000
krónur og tengja við einhverja vísitölu."
En ekkert sem tekur á því vandamáli
að fá feður til að umgangast börnin?
„Nei, ekkert. Auk þess eru mæður al-
mennt það skynsamar að þeim dettur
ekki í hug að pína feður til umgengni.
Þær eru að hugsa um hag barna sinna
og ef þeir sinna ekki umgengni við
börnin, þá telja þær sig ekkert geta við
því gert. Konur fá sér ekki lögmann og
fara í hart eins og karlar gera, þær nota
aðrar leiðir; hafa samband við föðurinn,
mömmu hans eða einhverja aðra til að
reyna að koma umgengninni á."
En ef við hugsum eingöngu um hag
barnsins í tilfellum sem þessum?
„Þú getur ímyndað þér hvernig það
yrði fyrir barnið ef sá sem er með það
fer að heimila umgengni til þess eins að
þurfa ekki að borga 10.000 krónur fyrir
helgina. Hvað fylgir þá barninu í þessa
umgengni? Viðhorf þess sem er með
barnið skiptir svo miklu máli: Finnst
mér umgengnin sjálfsögð og eðlileg eða
er ég henni ofsalega mótfallinn - og er
ég bara að leyfa hana svo ekki verði
gert fjárnám í bílnum mínum eða íbúð-
inni. Samskipti sem eru knúin fram með
sektum geta aldrei orðið eins og eðlileg
samskipti. Ætli verði ekki bara næst
sektir vegna þess að samverutími fjöl-
skyldunnar er of lítill. Sektir á þá sem
vinna alltof mikið eða taka of mikinn
þátt í félagsstörfum. En svona er þetta
ekki bara á íslandi. Þetta er svona að
minnsta kosti líka á hinum Norðurlönd-
unum en þó er einhvers staðar búið að
fella svona ákvæði niður."
Sameiginlega forsjáin
viðhorfsmótandi
„Það sem ég er að segja er að með þess-
um lögum er verið að hliðra til ýmsum
formreglum en mér finnst þau ekki gera
nóg fyrir börn. Þó held ég að til lengri
tíma litið geti ákvæðið um sameiginlega
forsjá kannski gert það. Ég held ekki að
það breyti neinu núna, vegna þess að
fólk sem á annað borð getur og vill
vinna saman að hagsmunum barna
sinna gerir ekki forsjá að ágreiningsefni.
Það bara semur sín á milli um það hvort
er með forsjána. En mér finnst þessi
möguleiki góður og ég held að hann
geti stuðlað að viðhorfsbreytingu, þann-
ig að það þyki eðlilegt - ekkert sem þarf
að hugsa eða ræða um - eftir skilnað
eða samvistarslit að fólk vinni saman að
hagsmunum barna sinna. Ég held að
núna vanti heilmikið upp á að fólk
vinni þannig saman."
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32.
Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Pórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
Skoðið gœðavörur hjá okkur og umboðsmönnum okkar um allt land:
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
38