19. júní - 19.06.1992, Page 46
Fráfarandi stjórn Kvenréttindafélags íslands. Efri röð f.v.: Sigurveig Sigurðardóttir, Inga Jóna Þórðardóttir, Ásthildur Ketilsdóttir,
Kristín Karlsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Dóra Guðmunds-
dóttir. Neðri röð f.v.: Ellen Ingvadóttir, Jónína Margrét Guðnadóttir, Guðrún Árnadóttir, fráfarandi formaður, Ragnhildur
Hjaltadóttir og Áslaug Brynjólfsdóttir.
hún verið þar frá upphafi. Mikið starf er
unnið á vegum Stígamóta og því miður
hefur komið í Ijós að hér á landi er mik-
il þörf fyrir slíka stofnun.
6. Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna
Ásthildur Ketilsdóttir er fulltrúi félagsins
í nefndinni. Nefndin hélt opinn fund
um launamismun karla og kvenna sl.
haust og staðfestist í framsöguerindum
og umræðum, eins og svo oft áður, að
mikill launamismunur á milli kynjanna
ríkir á atvinnumarkaðinum.
7. Mæðrastyrksnefnd
Þar vinnur, sem áður, Ingibjörg
Snæbjörnsdóttir þarft verk fyrir hönd
KRFÍ.
8. Undirbúningsnefnd fyrir Vestnor-
rænt kvennaþing
Fulltrúar félagsins í nefndinni eru Guð-
rún Árnadóttir og Hulda Karen Ólafs-
dóttir. Undirbúningur kvennaþingsins,
sem haldið verður á Egilsstöðum dag-
ana 20. til 23. ágúst, gengur vel. Gert er
ráð fyrir 300 þátttakendum frá Færeyj-
um, Grænlandi og íslandi.
9. Áhugahópur um varðveislu og fram-
göngu um Kvennasögu íslands
Meginverkefni hópsins er að hafa heild-
arumsjón með skráningu Kvennasögu-
safnsins og að taka þátt í öflun efnis og
gagna. Fulltrúi KRFÍ er Guðrún Gísla-
dóttir.
10. Jafnréttisráð
Formaður KRFI, Guðrún Árnadóttir, á
sæti í ráðinu og varamaður hennar er
Ragnhildur Hjaltadóttir. Snemma sum-
ars 1991 skipaði félagsmálaráðherra nýtt
Jafnréttisráð og Kærunefnd jafnréttis-
mála. Nýju jafnréttislögin frá 1991
kveða á um aðskilnað kærumála frá
öðrum verkefnum ráðsins og Kæru-
nefndin, sem einungis er skipuð lög-
fræðingum, fer með kærumál. Ráðinu
er hins vegar ætlað að móta stefnu f
jafnréttismálum á íslandi og er því störf-
um þess hagað eftir því. Þetta er mikil
breyting frá því sem áður var en þá fór
mikill tími ráðsins í að sinna kærumál-
unum.
11. Undirbúningsnefnd fyrir „Nordisk
Forum"
Ráðherrar jafnréttismála á Norðurlönd-
um hafa ákveðið að efna til norræns
kvennaþings í Abo í Finnlandi árið
1994. Guðrún Árnadóttir var fulltrúi
KRFÍ. í undirbúningsnefndinni og hald-
inn var einn fundur á tímabilinu sem
skýrsla þessi nær til.
12. Alþjóðaár fjölskyldunnar
Félagsmálaráðherra hefur skipað nefnd
til að undirbúa þátttöku íslands í Al-
þjóðaári fjölskyldunnar 1994 á vegum
Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúi KRFÍ í
nefndinni er Sigríður ViIhjálmsdóttir.
13. Alþjóðasamtök kvenna
Alþjóðlegur fundur stjórnarformanna
aðildarfélaga, ásamt formönnum nefnda
og svæða, Alþjóðasamtaka kvenna
(International Alliance of Women) var
haldinn í Japan í byrjun september.
Fundinn sóttu 38 konur frá 24 löndum
og var fulltrúi íslands Esther Guð-
mundsdóttir sem á sæti f stjórn samtak-
anna.
Engin þeirra sem skipa ráð og nefndir
fyrir KRFÍ færðist undan starfi og vinna
þær því áfram í nefndunum að undan-
skilinni Landvernd en nýr fulltrúi KRFÍ
þar er Ellen Ingvadóttir.
í árskýrslu þessari hefur aðeins verið
stiklað á stóru í starfi KRFÍ en auðvitað
hefur verið unnið mikið starf í ýmsum
nefndum og hópum án þess að það hafi
verið tíundað hér. í því sambandi má
nefna MMK, Fræðslunefndina og nefnd
er fer yfir lagafrumvörp til Alþingis.
Einnig er að störfum undirbúningsnefnd
fyrir landsfund félagsins í haust. Nefnd-
in er störfum hlaðin og hvetur félagið
áhugasama félaga um að leggja henni
lið.
Úr stjórn ganga Arndís Steinþórsdóttir
og Sigurveig Sigurðardóttir. Jafnframt
hefur höfundur þessarar skýrslu beðist
lausnar frá formennsku af persónuleg-
um ástæðum. Tækifærið skal því notað
til að þakka öllum KRFÍ félögum og öðr-
um hvatningu og stuðning ásamt því að
óska félaginu góðs gengis í framtíðinni.
Guðrún Árnadóttir
46