19. júní - 19.06.1992, Side 48
Vestnorrænt kvennaþing:
„Kvinnuting Utnorðurs“
eftir Ragnheiði Harðardóttur
Dagana 20.-23. ágúst n.k. verður háð
vestnorrænt kvennaþing á Egilsstöðum.
Vestur-Norðurlönd mun vera tiltölulega
nýtt hugtak í landafræðinni en þá er átt
við Grænland, ísland og Færeyjar.
Vestnorræna kvennaþingið er haldið í
samræmi við samþykkt Alþingis á
þingsályktunartillögu frá vestnorræna
þingmannaráðinu um að árið 1992
skuli vera sérstakt vestnorrænt ár. Því til
áréttingar verða haldnar ráðstefnur um
þrjú mikilvæg málefni í löndunum
þremur - jafnréttismálin komu í hlut
okkar Islendinga.
í framhaldi af samþykkt Alþingis skip-
aði félagsmálaráðherra undirbúnings-
nefnd og kom hún fyrst saman 9. apríl
1991. I nefndinni sitja Ragnheiður
Harðardóttir tilnefnd af Jafnréttisráði og
er hún jafnframt formaður, Lára V.
Júlíusdóttir tilnefnd af ASÍ, Guðrún
Árnadóttir tilnefnd af KRFÍ, Þórveig Þor-
móðsdóttir tilnefnd af BSRB og Stefanía
M. Pétursdóttir tilnefnd af Kvenfélaga-
sambandi íslands. Þær Hulda Karen Ól-
afsdóttir varamaður Guðrúnar og Lísa
Thomsen varamaður Stefaníu hafa einn-
ig unnið mikið með nefndinni í vetur.
Undirbúningsnefndin ákvað á fyrsta
fundi sínum að setja stefnuna á kvenna-
þing frekar en fámenna ráðstefnu. Eftir
Nordisk Forum í Osló 1988 var mikill
áhugi meðal kvenna í þessum löndum á
að halda sitt eigið „forum". Óformlegur
undirbúningshópur tók til starfa þá um
haustið og starfaði fram á sumar 1989
þegar fréttist af ályktunum vestnorræna
þingmannaráðsins. Var þá ákveðið að
hætta frekari undirbúningi og setja
traust sitt á þjóðþing landanna þriggja.
Það var því Ijóst að þegar voru fyrir
hendi ákveðnar væntingar um að hald-
ið yrði kvennaþing hér á landi. Enn-
fremur var fljótlega ákveðið að halda
þingið utan suð-vesturhornsins og með
tilliti til samgangna við Færeyjar urðu
Egilsstaðir fyrir valinu. Einnig eru Egils-
staðir sá staður á Austurlandi sem getur
tekið við samkomu af þeirri stærð sem
hér um ræðir. Nefndin réði Guðrúnu
Ágústsdóttur til að vera framkvæmda-
stjóri þingsins og tók hún til starfa 1.
nóv. 1991. Guðrún hefur aðsetur hjá
Jafnréttisráði.
Undirbúningur fyrir þingið er nú í
fullum gangi. Búið er að halda einn
samráðsfund með tengiliðum frá Fær-
eyjum og Grænlandi. Gert er ráð fyrir
að um 300 manns sæki þingið; 50 frá
Grænlandi, 100 frá Færeyjum og 150 frá
íslandi. Skráningarfrestur er til 8. júní en
ráðstefnugjaldið er kr. 2.000,- Öll tiltæk
funda- og gistiaðstaða á Egilsstöðum og
í nágrenni verður nýtt til hins ýtrasta.
Þar sem gististaðir eru eilítið dreifðir
verða skipulagðar rútuferðir um svæðið
nokkrum sinnum á dag. Höfuðstöðvar
þingsins verða í íþróttahúsinu þar sem
allur þingheimur getur safnast saman í
einu til að hlýða á fyrirlestra sem tengj-
ast meginviðfangsefni dagsins. Þar verð-
ur einnig komið fyrir sýningar- og kynn-
ingarbásum þar sem ýmis samtök og
áhugafélög kvenna geta kynnt starfsemi
sína. Smærri fyrirlestrar og hópastarf
verða í menntaskólanum og grunnskól-
anum. Einnig verður útimarkaður þeirra
Egilsstaðabúa notaður í þágu þingsins
Kvenréttindafélag Islands þakkar eftirtöldum
aðilum góðar óskir og stuðning í tilefni af 85 ára afmœli félagsins
Landssamband lífeyrissjóða Mjólkurbú Flóamanna
Landsvirkjun Morgunblaðið
LEGO Nj arð víkurbær
Menntaskólinn á Akureyri Norræna húsið
Menntaskólinn á Egilsstöðum Nói-Siríus hf.
Menntaskólinn á Laugarvatni ORA hf.
Menntaskólinn á ísafírði Póstur og sími
48