19. júní


19. júní - 19.06.1997, Page 12

19. júní - 19.06.1997, Page 12
Heilbrigð sál í hraustum líkama, sögðu Forn-Grikkir. Ár- þúsundum síðar eru þessi fornu sannindi enn í hávegum höfð. Hanna Katrín Friðriksen gluggaði í skýrslur og kannanir sem sýna frarn á mikilvægi íþróttaiðkunar og enn aðrar þar sem kemur fram að brottfall stúlkna og kvenna úr íþróttum er rnikið - of mikið. íþróttum er almennt skipt í almenningsíþróttir annars vcgar og keppnisíþróttir hins vegar og þesstim tveimur flokkum gjarnan stillt upp sem miklum andstæðum. Uppeldislegt gildi almenningsíþrótta er alla jafna talið mikið: sjálfstraust, þor, kjarkur og réttsýni svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem jafnaðar- hugtakið er í hávegum haft. Þó svo að margt sé ólíkt með al- menningsíþróttum og keppnisíþróttum, tel ég óhætt að fúll- yrða að uppeldislegt gildi sé ekki síður í síðarnefnda flokknum. Einstaklingar læra að búa sig undir keppni, hvað þarf til að ná árangri, læra að virða leikreglur og taka sigri jafnt sem ósigri, svo fátt eitt sé nefnt. Allt eru þetta óumdeilanlega þættir sem koma að góðum notum síðar á lífsleiðinni og slæmt er að fara á mis við. Rannsóknir hafa sýnt að brottfall íslenskra stúlkna úr íþrótt- um á vegum íþróttafélaga, þ.e. keppnisíþróttum, er mjög mik- ið. í skýrslu sem Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála (RUM) birti árið 1994 í samvinnu við Þróunarhóp Umbóta- nefndar ÍSÍ um kvennaíþróttir um brottfall stúlkna úr íþróttum kemur fram að margt er ólíkt mcð aðstæðum og viðhorfum pilta og stúlkna til (þrótta, stúlkurnar taka mun minni þátt og brottfall þeirra er mikið. Skýrslan var unnin úr könnun sem náði til 8. bekkjar grunnskóla og þar var reynt að leita svara við því hvers vegna stúlkurnar heltast frekar úr lestinni en piltar. Meðal þess sem kom í ljós í könnuninni var að foreldrar, afi og amma, vinir og íþróttakennarar hvetja stúlkur að jafnaði mun minna en pilta til þátttöku í starfi íþróttafélaga. „Þetta er rnjög alvarleg niðurstaða fyrir íþróttaiðkun stúlkna og þátttöku þeirra í íþróttafélögum. Líklega er hér að finna verulegan þátt í ástæðu brottfalls stúlkna úr íþróttum,” segir í niðurstöðum skýrslunn- ar. Með þessa vitneskju í farteskinu er fróðlegt að skoða niður- stöður bókar sem kom út sama ár, 1994, líka á vegum RUM, um íþróttir íslenskra ungmenna. Bókinni var ætlað að koma á framfæri sem mestum upplýsingum um gildi íþrótta íyrir íslensk ungmenni og er öll hin athyglisverðasta. Meðal annars er þar könnuð fylgni getu í íþróttum og líkamsæfmga við þætti eins og sjálfsvirðingu, líkamsímynd, þunglyndi, kvíða, sálvefræn ein- kenni og námsárangur. í stuttu máli má segja að rannsóknin sem bókin byggir á og náði til tugþúsunda nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 1992, hafi sýnt að samband íþrótta við sjálfsvirð- ingu, líkamsímynd og námsþátt sé jákvætt en neikvætt við þunglyndi, kvíða og sálvefræn einkenni. Með öðrurn orðum, unglingar sem stunda íþróttir bera meiri virðingu fyrir sjálfum sér en þeir sem stunda ekki íþróttir, hafa jákvæðari hugmyndir um eigin líkama og gengur betur í skóla. Þeir finna líka síður fyrir þunglyndi, kvíða og sálvefrænum einkennum. Maður skyldi ætla að hér væru komnar nægar ástæður til þess að hvetja unglinga til íþróttaiðkunar. I umræddri bók er sýnt fram á svo ekki verður um villst að brottfall stúlkna úr íþróttum er alvarlegt mál og dapurlegt ef eina helstu ástæðuna má rekja til þess að þeir letji þær til íþróttaiðkunar, scm eiga að gegna því

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.