19. júní - 19.06.1997, Side 66
endurmeta stefnu og markmið félagsins frá grunni og vinnuað-
ferðirnar, og lauk vinnunni með því að samþykkt var fram-
kvæmdaáætlun félagsins desember 1996 - maí 1997.
Á fundinum var mikið rætt um fjármál félagsins og voru þátt-
takendur sammála um að þau stæðu starfseminni fýrir þrifurn.
I’ví yrði að leggja höfuðáherslu á að afla félaginu fastra tekju-
stofna auk félagsgjaldanna og voru viðraðar nokkrar hugmynd-
ir í þeim efnum. Rétt er að geta þess að félagið fékk styrk af fjár-
Iögum í ár, í fyrsta sinn í mörg ár. Styrkurinn var reyndar ekki
eins hár og við hefðum óskað en þó munar verulega um hann.
Segja má að landsfundur félagsins og undirbúningur hans
hafi verið meginverkefni sumarsins og haustsins auk stefnumót-
unarhelgarinnar. Að auki tók formaður félagsins þátt í alþjóð-
legu samstarfi sem síðar verður greint frá auk þess sem nokkur
tími fór í að undirbúa fyrstu umsókn félagsins til Evrópusam-
bandsins vegna samanburðarverkefnis sem félagið hyggst vinna.
Timamótadómi fagnað
Á fundi framkvæmdastjórnar 25. feb. sk, var samþykkt ályktun
um dóm Hæstaréttar frá 20. fcbrúar sl. Dómurinn felur í sér
tímamót að því leyti að þar er viðurkcnnt að það sé mannrétt-
indabrot að ákvarða fólki mismunandi örorkubætur á grund-
velli kynferðis. Félagið mótmælti á sínum tíma dómum sem
gengu á árinu 1995 þar sem stúlkum voru dærndar 75% af ör-
orkubótum sem drengir hefðu fengið og sendi félagið Dómara-
félagi Islands, Lögmannafélagi Islands og lagadeil HI bréf þar
sem skorað var á viðkomandi að kynna lög og alþjóðasamninga
er banna mismunum á grundvclli kynferðis, í sínum röðunt.
Stjórnin sá því ástæðu til að fagna sérstaklega þessari stefnu-
breytingu og setti fréttatilkynningu þess efnis í dagblöð. Svo
virðist reyndar sem fleiri dómar séu að líta dagsins Ijós sem
bendi til þess að dóntstólar séu að taka við sér varðandi löggjöf
um jafnan rétt kvenna og karla, en tvö mál hafa nýlega unnist
fyrir Hæstarétti þar sem mismunun á grundvelli kynferðis er
viðurkennd.
Heiðmerkurferö 19. júni
Á kvenréttindadaginn hélt föngulegur hópur félagskvenna í
Heiðmörk og voru um 200 plöntur gróðursettar í reit félags-
ins. Að lokinni gróðursetningu var þátttakendum boðið á skrif-
stofu félagsins þar sem frarn voru reiddar léttar veitingar í tilefni
dagsins.
Landsfundur KRFÍ 1996
Nítjándi landsfundur félagsins var haldinn í Hafnarfirði 27.-28.
september. Bryndís Hlöðversdóttir setti fundinn á föstudags-
kvöldinu, en Ingvar Viktorsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, ávarp-
aði gesti. Síðan tók við sérstök hátíðardagskrá í tilefni þess að
þann dag voru 140 ár liðin frá fæðingu Bríetar Bjarnhéðins-
dóttur. Ragnhildur Rúriksdóttir leikkona túlkaði þætti úr lífi
Bríetar með upplestri úr bók hennar Strá í hreiðrið. I’á sungu
Sara Guðmundsdóttir og Stefán Orn Gunnlaugsson nokkur lög
og Jóna Einarsdóttir lék á harmonikku milli atriða. Veislustjóri
var einn af yngstu félögum okkar, Stefán Karl Stefánsson leik-
listarnemi.
Á laugardaginum voru hefðbundin landsfundarstörf. Fund-
arstjórar voru kjörnar þær Arndís Steinþórsdóttir, Hansína B.
Einarsdóttir og Inga Jóna Þórðardóttir. Formaður félagsins
flutti skýrslu stjórnar frá síðasta landsfundi og að því loknu
flutti formaður MMK skýrslu sína. Hún tilkynnti jafnframt að
sjóðurinn hefði ákveðið að gefa Kvennasögusafni íslands 150
þúsund krónur í tilefni af formlegri opnun safnsins í Þjóðarbók-
hlöðu.
Aðalefni fundarins var Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna,
CEDAW, sem fékk formlega heitið Kvennasáttmálinn. Frarn-
sögur höfðu Elsa S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu
jafnréttismála, Brynhildur Flóvens, lögfræðingur, Sigríður Lillý
Baldursdóttir, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneyti, Lára V. Júl-
íusdóttir lögmaður, Aðalheiður Héðinsdóttir, frkvstj. Kaffitárs
ehf. og Inga Þyrí Kjartansdóttir, frkvstj. Atlantsfisks ehf.
I fundarlok var samþykkt ályktun þar sem m.a. var ákveðið að
félagið beitti sér fyrir fræðslu urn sáttmálann og kynningu á
honum í samvinnu við aðra. Bent var á að SÞ legðu áherslu á
nauðsyn frjálsra félagasamtaka og því þyrftu stjórnvöld að hafa
samráð við KRFÍ um framkvæmd og eftirlit sáttmálns. Einnig
var bent á nokkur mikilvæg atriði á sviði mannréttinda kvenna
sem ekki hafa verið færð í lög hér.
Félagið hafði leitað til félagsmálaráðherra um útgáfu á sátt-
málanum og ávarpaði Páll Pétursson landsfundinn og færði fé-
laginu að gjöf nýja vasaútgáfu sáttmálans í 2000 eintökum.
Stefnumótunarhópur landsfundar lagði fram greinargerð sem
fundurinn studdi heilshugar.
Að loknum landsfundarstörfum var fundargestum boðið til
móttöku forsetahjónanna Olafs Ragnars Grímssonar og Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur að Bessastöðum.
Eftirtaldar konur voru kjörnar í stjórn félagsins: Oddný Vil-
hjálmsdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir, Elín Harðardóttir, Soffia
Guðmundsdóttir, Kristín Einarsdóttir og Ásta R. Jóhannes-
dóttir. Til vara voru kjörnar; Sigríður Friðriksdóttir, Bessí Jó-
hannsdóttir, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Þuríður Jónsdóttir,
Helga Jónsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Hall-
grímsdóttir, Elsa S. Þorkelsdóttir, Salvör Gissurardóttir, Guð-
rún Halldórsdóttir, Guðrún Árnadóttir og Lára V. Júlíusdóttir.
Opnun Kvennasögusafns íslands
Kvennasögusafn Islands var formlega opnað í Þjóðarbókhlöð-
unni þann 5. des. í sömu viku hafði félagið áætlað að halda jóla-
fund sinn en ákveðið var að fclla fundinn niður en hvetja félaga
þess í stað til að mæta á opnun safnsins. KRFI gaf safninu borð
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og stól og ritvél Laufeyjar dóttur
hennar í tilefni af opnuninni.
90 ára afmæli KRFÍ
Þann 27. janúar sl. hélt félagið upp á 90 ára afmæli sitt, en fé-
lagið var stofnað sama dag árið 1907. Dagskrá afmælisdagsins
hófst með morgunverðarfúndi um kosningar og lýðræði en þar
hafði dr. Ólafur Harðarson framsögu og velti því m.a. fyrir sér
hvort núverandi kosningakerfi þjónaði konurn jafnvel og körl-
um. Að erindi hans loknu voru umræður og fyrirspurnir en
ftindurinn var vel sóttur.
Kiukkan 17.00 hófst hátíðardagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur. Bryndís Hlöðversdóttir formaður félagsins setti
hátíðina en að því loknu héldu ávörp þær Guðrún IC. Þorbergs-
dóttir sem jafnframt var heiðursgestur samkomunnar, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, og Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrúi og fv. formaður KRFÍ. Á samkomunni voru þrír
félagar tilnefndir heiðursfélagar, þær Vigdís Finnbogadóttir,
Sigríður Th. Erlendsdóttir og Björg Einarsdóttir og voru þeim
afltent heiðursskjöl í því skyni. Sophie Schoonjans lék á hörpu
og tveir nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík, þær Arnbjörg
Sigurðardóttir og Berglind María Tómasdóttir fluttu flautu-
dúetta. Að lokinni hátíðardagskrá var bauð borgarstjóri til mót-
töku.
Urn kvöldið var skemmtidagskrá á vegum Listaklúbbs Leik-
hússkjallarans. Kjallarinn var troðfullur af fólki og meðal gesta
voru forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir. Dagskráin bar yfirskriftina: „Konur með
penna“. Leikkonurnar Kristbjörg Kjeld, Edda Heiðrún Back-
man, María Sigurðardóttir og Halldóra Geirharðsdóttir sögðu
frá ævi og starfi íslenskra skáldkvenna í upphafi aldarinnar og
lásu úr verkum þcirra, en auk þeirra stóð Auður Soffla Birgis-
dóttir, bókmenntafræðingur, að sýningunni.
Fjöldi skeyta og gjafa barst félaginu í tilefni afmælisins og
fjöldi kvenna skrifaði greinar í dagblöð vikurnar á undan afntæl-
inu. Eru öllum sem sýndu félaginu hlýhug a afmælinu færðar
bestu þakkir. Afmælishátíðin vakti milda athygli fjölmiðla og