19. júní - 19.06.1997, Side 76
Kvenréttindi í utanríkisstefnu Bandaríkjanna
Hillary Rodham Clinton er talin hafa lagt nýjar línur í utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna; kvenréttindi. Hillary notar hvert tæki-
færi til að kynna það sjónarmið sitt að kvenréttindi séu mannrétt-
indi, hvort sem það er á vettvangi sameinuðu þjóðanna eða á ferða-
lögum erlendis. Hillary segir að hafi einhvern tímann verið hug-
myndin að hunsa konur þá sé það ekki möguleiki lengur.
Skipun Madeileine Albright í embætti utanríkisráðherra þykir
sty'rkja þessar áherslur á kvenréttindi. Madeileine skipaði svo fyrir í
upphafi ársins að sendiherrar Bandaríkjanna skyldu kynna kvenrétt-
indi sem mikilvxgan hluta af utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Talið er að kvenréttindaáherslan sé þegar farin að skila árangri,
meðal annars með stuðningi við menntun kvenna víðs vegar í ver-
öldinni. Nefnt er sem dæmi að alþjóða Rauði krossinn hefur verið
styrktur um 570.000 dollara til að byggja skóla fyrir afgönsk flótta-
mannabörn í Pakistan. Urn 9.000 afganskar stúlkur hljóta nú
menntun þar, en eins og kunnugt er bönnuðu Talibanaskæruliðar
stúlkum að ganga í skóla, er þeir tóku völdin í landinu. Þess má
geta að aðeins 20% afganskra kvenna teljast læs.
Árangurinn þykir þó sá helstur að hugsunin um kvenréttindi er
kornin inn í kerfið og verður ekki svo auðveldlega dregin til baka.
En Hillary vekur einnig athygli á réttarstöðu kvenna á annan
hátt. Hún hefúr ferðast víða með dóttur sinni, Chelsea, m.a. til
Suður-Asíu, Bosníu og Afríku. Mæðgurnar hafa kornið ákveðnum
skilaboðum á framfæri við þau samfélög sem meta dætur ekki jafn-
hátt og syni. Hillary bendir á að forseti Bandaríkjanna leggi allt sitt
traust á einkabarn sitt, og sé stoltur af því, það vilji bara þannig til
að það sé stúlka. Hvar sem hægt sé að leiða fólki fyrir sjónir að kyn
barnsins skipti ekki rnáli, sé von til þess að fræi verði sáð.
HEIMILISLINAN
Traustur banki - Einfaldarjjármálin
grœnnL
gnein
MEÐ SPARIASKRIFT
Er falinn
fjársjóður
á heimilinu?
Á mörgum heimilum má finna ,xfalinn fjársjóð“;
útgjaldaliði sem má lœkka.
Þetta veitir svigrúm til að lœkka skuldir, byrja
reglulegan sparnað og vera á grœnni grein í
Búnaðarbankanum.
7<t