19. júní


19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 51

19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 51
kirkjulífið. Sjálfur hlýt ég að æskja þess að hlutfall karla og kvenna jafnist. Þannig tala ég meðal annars vegna reynslu minnar af samstarfi við sóknarnefndir. Eitt sinn þjónaði ég í sókn þar sem allir sóknarnefndarmenn voru konur. Þá brá svo við, að ýmsum þörfum verkefnum innan sóknarinnar var sinnt eftir langa vanræksiu. Mér hefur einnig reynst mikils virði yfir- leitt að áherslur kvenna næðu inn í sóknarnefndir sem ég hef starfað með. I’að eru því ekki cingöngu tilfinningarök sem mér ganga til heldur einnig hagnýt rök byggð á eigin reynslu, er ég fullyrði að þörf sé á rneiri áhrifum kvenna á yfirstjórnina. Nú kjósa sóknarnefndarmenn til kirkjuþings og kirkjuþing aftur kirkjuráð. Þetta eru í fyrirsjáanlegri framtíð helstu valdastofnan- ir kirkjunnar. Æskilegasta leiðin til að tryggja raunveruleg áhrif kvenna er að jafna hlut þeirra á kirkjuþingi. Kosið verður til kirkjuþings á næsta ári og fýrir þann tíma ættu áhugasamar kon- ur í kjördæmunum að vera búnar að kanna möguleika á slíkri jöfnun. Ekki skal standa á mér að vera talsmaður hennar. Náist jöfnunin þarna kemur hitt af sjálfú sér að þessar sameiginlegu nefndir skipast af meiri jöfnuði. 2. Fyrir löngu hef ég haldið því fram að rétt sé að sneiða hjá kyngreinandi orðalagi í helgihaldinu eftir því sem hægt er og smekklcgt getur talist. Þetta hef ég nokkuð iðkað eins og fjöl- margir prestar aðrir. Að því leiti eigum við ekki langt að sækja fyrirmyndirnar til annarra Lútherskra kirkna. Þannig tel ég mig hafa tekið nokkurt mark á gagnrýni þeirri sem kentur fram í spurningunni. Hvað varðar biblíuþýðingar eða hinn opinbera texta Biblíunnar er vandamálið nokkuð flókið. Þessar þýðingar hafa leitast við að vera sem stafréttust miðlun frumtextans. Unt það itvort ég sem biskup ætli ntér að beita mér fyrir því að gagnrýni kvenna hafi mótandi áhrif í kirkjunni, er því til að svara, að það cr hluti af viðleitni biskups til að varðveita einingu kirkjunnar að öll guðfræðileg gagnrýni sé tekin alvarlega og um hana fjallað. 3. Varðandi þessa þriðju spurningu vil ég rninna á það sem ég sagði áðan um sóknarnefndir og áhrif kvenna á störf þeirra. Ef konur yrðu helntingur kirkjuþingsmanna og helmingur kirkju- ráðs efast ég ekki um að við færum að sinna betur ýmsum brýn- um verkefnum sem nú eru vanrækt. minnihluta á Kirkjuþingi, aðeins ein kona gegnir prófastsemb- ætti og kona hefur aldrei setið í Kirkjuráði eða á biskupsstóli. Þó hafa Alkirkjuráðið og Lútherska heimssambandið, sem þjóðkirkjan á aðild að, unnið ötullega að jafnrétti innan aðild- arkirknanna. Tilmæli þessara hreyfinga um fjölgun kvenna í störfúm og nefndum fyrir árið 2000 virðast hafa skilað litlum árangri hér á landi. Feministar eru konur sem láta sig varða um réttindi kvenna. Þær kjósa sér ekki allar sama vettrv'ang og nota ekki allar sömu aðferðir í baráttu sinni. Engu að síður eiga þær sameiginlegt markmið: jafnan rétt kvenna og karla. I guðfræðilegu samhengi hafa konur bent á að þetta markmið er hið sama og Jesús Krist- ur sjálfur hafði að leiðarljósi í boðskap sínum og starfi. Kristur braut blað í mannkynssögunni með viðhorfum sínum og sam- skiptum við konur. Á öllum tímaskeiðum kirkjusögunnar hafa konur hvatt kristna kirkju til þess að prédika og starfa í samræmi við þessa fyrirmynd Krists. Oftast hafa þær ckki haft erindi sent erfiði. Síðustu þrjátíu árin hefúr þó margt áunnist í réttindabar- áttu kvenna innan kirkjunnar í kjölfar kvennabaráttunnar úti í þjóðfélaginu. Sú staðreynd að konur sem sækja um prestsembætti innan ís- lensku kirkjunnar eru í viðtölum spurðar um afstöður sínar til gagnrýninna viðhorfa kvenna í guðfræði bendir til þess að til- hneiging sé til þess að draga konur í dilka: konur sem eru með og konur sem eru á móti kvennaguðfræðinni . Þeir fordómar sem korna fram í fyrrnefndu viðtali við sænska biskupskandidat- inn virðist því lifa góðu lífi hér á landi. Konur sem kenna sig við kvenréttindi og vinna að bættri stöðu kvenna mega því enn sem fyrr gæta sín. Af dæmi hinnar sænsku Christina Odenberg mætti ætla að farsælast væri fyrir þær konur sem liyggja á starfs- frarna innan íslensku kirkjunnar að gefa út yfirlýsingu þess efn- is að þær séu „ekki feministar“. Kvenréttindakonur hafa í tímans rás tekið ákveðna áhættu með því að vinna að köllun sinni, það er að segja þá áhættu að þeim verði haldið frá valdastörfum innan kirkjunnar. Konur reka sig á veggi og sumar hafa gefist upp, á meðan aðrar láta ekki deig- an síga, knúnar áfram af fordæmi Krists. Þessum konum er ljóst að löngu er orðið tímabært að kirkjan starfi í anda þess sem hún kennir sig við, í anda Krists sem mismunaði ckki eftir kynferði, stétt eða kynþætti. Konurnar sem gefa kost á sér til starfa inn- an íslensku kirkjunnar í framtíðinni finna sig vonandi ekki knúnar til þess að lýsa því yfir að þær sér ekki fcministar. Sömu- leiðis verður spurningin um tímabært jafnrétti kvenna og karla utan sem innan kirkjunnar vonandi skjótt ótímabær. Rosmary Koen i Noregi ruddi brautina fyrir konur á biskupsstóli. Það verður sperxnandi að sjá hvort íslendingar feta í íótspor nágrannaþjóðanna með því að kjósa Auði Eir, segir Guðrún Jónsdóttir. Frjálslyndur brautryðjandi Fyrsti kvenbiskupirm á Norðurlöndunum, Rosmary Koen í Noregi, hefur nú starfað í um þrjú ár. Guðrún Jónsdóttir, framkvœmdastjóri þingflokks kvennalistans, bjó í Noregi þegar Rosmary fékk embœttið. Hún segir kvenpresta hafa fagnað þessum tímamótum ákaft og haft á orði að um stcerri viðburð vœri að rœða fyrir kirkjuna en Martin Luther var á sínum tíma. Guðrún segir að allmikill styr hafi staðið um embættisveitinguna, ekki aðeins vegna þess að Rosmary væri fyrsti kvenbiskupinn, heldur vegna þess að hún mælti fyrir frjáls- lyndari viðhorfum innan kirkjunnar; svo sem að kirkjan fordæmdi ekki fóstureyðingar eða samkynhneigða. „Þessi efni hafa verið mjög heit innan norsku kirkjunnar," segir Guðrún, „og í raun setti menntamálaráðherra hana í embætti þvert á vilja kirkjunnar." Að sögn Guðrúnar vakti Rosmary strax mikla athygli á stöðu kvenna innan kirkjunn- ar. Hún sagði sig t.a.m. úr prestafélaginu þar sem formaður þess var yfirlýstur andstæð- ingur kvenpresta, og lét yfirlýsta lesbíu fá prestakall sem vakti upp hávær mótmæli. Guðrún segir að sem kona hafi Rosmary sameinað öll frjálslynd sjónarmið í kirkjunni. Hún bendir á að starf hennar hafi rutt brautina fyrir aðrar konur og nú hafi Danir, Græn- lendingar og nú síðast Svíar eignast kvenbiskupa. „Það verður spennandi að sjá hvort íslendingar feta í fótspor nágrannaþjóðanna, ekki veitir af að bæta hlut kvenna innan kirkjunnar hér," segir Guðrún að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.