19. júní


19. júní - 19.06.1997, Síða 26

19. júní - 19.06.1997, Síða 26
vítis þrettán” eins og oft var sagt; alltaf nokkrar rífandi kjaft hér og þar. Við fórum yfirleitt tvær á ftindi, bara til þess að eiga a.rn.k. einn liðsmann í salnum. Staðan er allt önnur í dag. Nú tckur ótrúlegasta fólk, jafnvel karlmenn, ekki bara undir með manni heldur bætir í.” Það er alltaf erfitt að vera fáliðaður. Þegar verið er að sá nýj- um hugmyndum fara sáningarmennirnir af stað, einn og einn, en nauðsynlegt er að þeir hafi eitthvert bakland, til að næra eig- in hugmyndir og fá aðstoð, ræða þau vandamál sem þeir lenda í. Það er þarna sem ég sé Kvenréttindafélagið fyrir mér. KRFÍ er fjölmennt félag og einhuga þrátt fyrir að vera samsett af kon- um úr öllum pólitísku flokkunum. Ég sé félagið fyrir mér sem bakland fyrir þær konur sem eru að vinna að jafnréttismálum um allt þjóðfélagið.” I framhaldi af þessu bendir Sigríður Lillý á að stjórn félagsins sé skipuð fulltrúum allra þingflokka. „Þetta er hópur kvenna sem eru virkir þátttakendur í pólitík og takast á þar, en geta unnið saman innan félagsins,” segir hún. „Framkvæmdastjórn- in er líka kraftmikil, en þar eru konur sem allar eru í fullri vinnu annars staðar. Það er ekkert einfalt að reka svona félag en það rekst áfram af miklum áhuga. Það er svo alltaf spurning hvern- ig hægt er að virkja hinn almenna félaga betur, ekki þannig að stjórnin fari um landið og messi yfir fólki, heldur að félagsmenn geti litið til félagsins sem þessa bakhjarls. Ég hcld að félagið sé ekki síður mikilvægt núna en 1907. Það er oft einfaldara að búa til stemningu í kringum citthvað nýtt, en að halda á floti jafn flóknu og gömlu félagi og KRFÍ. Það cina sem félagsmennirnir eiga sameiginlegt er að vilja vinna að kvenfrelsismálum. Almennt er ég þeirrar skoðunar að ekki eigi að hanga á stofnunum eða félögum ef verkefnin eru á þrotum en því er ekki að heilsa með KRFÍ. Né ef stofnunin er líflaus og hugmyndasnauð, cn það er heldur ekki raunin með KRFÍ. Þar er mikið líf og öflug skoðanaskipti. Aðkoman er góð og verk- efnin næg. Mér finnst full ástæða til að viðhalda félaginu og það hefur alla burði til að skila miklum árangri.“ Verkefnin framundan Sigríður Lillý fer að lokum yfir starfið framundan: „Verkefni haustmisserisins eru sveitarstjórnarkosningarnar sem verða vor- ið 1998. Það er eðli málsins samkvæmt verkcfni félagsins að gæta þess að konur séu þar þátttakendur. Við erum að útbúa möppu með ýmsum upplýsingum, leiðbeiningum og greinum fyrir konur sem eru í sveitarstjórnarmálum. Brottfall kvenna í sveitarstjórnum er mikið, þótt við höldum í horfinu hvað hlut- fall varðar, og það er áhyggjuefni hvað þær endast stutt. Við ætlum að styrkja konur til að halda áfram og veita nýjum fram- bjóðendum upplýsingar. Samhliða þessu ætlum við að kanna ímyndir. Það er grunur okkar margra að sú ímynd sem dregin er upp af konu gangi illa með ímyndinni um stjórnmálamann. Þær konur sem ákveða að fara út í pólitík geta lent í krísu; kröfurnar standa á þeim að vera konur, en jafnframt að vera stjórnmálamenn. Ef ímyndirnar eru ólíkar í hugum fólks geta konurnar, eðli málsins samkvæmt, ekki leikið bæði hlutverk í senn. Það cr t.d. bent á að konur þurfi að vera dimmraddaðar og t.a.m. var Margaret Thatcher sett á námskeið og látin lækka röddina um áttund, það var ekki fyrr en þá að menn fóru að heyra í henni. Ég held að það sé ým- islegt í fari kvenna sem menn geta ekki samsamað stjórnmála- manninum og ýmislegt sem konur vilja ekki taka upp en er talið stjórnmálamanninum til tekna. Það er þetta sem við ætlum að skoða og vekja athygli á.“ ■ ^.fóSatáuíecÁan í Borgarleikhúsinu 16. og 17. ágúst 1997 á efnisskrá - íslenska einsöngslagið - Flytjendur: Björn Jónsson, tenór Elsa Waage, mezzósópran Finnur Bjarnason, baritón Gunnar Guðbjörnsson, tenór Hanna Dóra Sturludóttir, sópran Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran Judith Gans, sópran Þóra Einarsdóttir, sópran og Jónas Ingimundarson píanóleikari Borga rleikhúsið - erðuberg Hótel Varmahlíð Sími: 453 8170 - Fax: 453 8870 Nýtt og glæsilegt hótel í hjarta Skagafjarðar * 15 tveggja manna herbergi m/baði * 110 manna veitingasalur * Bar og setustofa * Veiðileyfi, sundlaug og hesta- leiga á staðnum. Verið velkomin Ásbjörg Jóhannsdóttir hótelstjóri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.